Frjáls verslun - 01.03.1995, Qupperneq 33
Fyrirtækjareglur - forsendur og
einkenni fyrirtækisins
1. Er reksturinn einfaldur og
skiljanlegur?
2. Hefur fyrirtækið stöðuga
rekstrarsögu?
3. Hefur fyrirtækið möguleika
til langs tíma litið?
Stjórnunarreglur - kostir sem
stjórnandi þarf að hafa
1. Eru stjórnendur skynsamir í
rekstri?
2. Eru stjórnendur hreinskilnir
við hlutahafa?
3. Forðast stjórnendur
stofnanalega hugsun?
ijármálafyrirtækinu Lloyd, Leith &
Sawin í Filadelfíu. Hann er kunnur af
skrifum sínum um goðsögnina, Warr-
en Buffett. En það hafði hann gert um
10 ára skeið áður en bókin var skrif-
uð.
UPPBYGGING 0G EFNISTÖK
Markmið höfundar með bókinni var
að leita svara við spurningunum:
Hvert er leyndarmálið að baki hinni
miklu velgegni Warrens Buffett?
Hvernig hefur honum tekist að gera
betur en allar verðbréfavísitölur sem
til eru? Warren Buffett hefur verið
mjög opinskár um áætlanir sínar um
fjárfestingar og aldrei legið á
ástæðum velgengni sinnar. Árs-
skýrslur Berkshire Hathaway er
helsta heimild höfundar, þar sem
Warren Buffett hefur alltaf notað þær
til að fjalla um fjárfestingar fyrirtækis-
ins hvað var gert, af hverju og hvað
ætlunin er að gera á komandi fjár-
hagsári. Þær eru dýrmæt heimild og
heill hafsjór af fróðleik um fjárfest-
Hegðun Warrens Buffett þegar kemur
að hlutabréfum
1. Geymið bréfin og gleymið
markaðnum í langan tíma
2. Reynið ekki að spá í eða hafa
áhyggjur af hagkerfinu
3. Látið eins og þið séuð að
kaupa fyrirtæki en ekki
hlutabréf
4. Veldu viðbótarfyrirtæki og
farðu í gegnum skref 1-3
Fjármálareglur - ákvarðanir sem
fyrirtæki þarf að viðhalda
1. Leggið áherslu á arðsemi
eiginfjár, ekki hagnað á
hlutabréf
2. Reiknið sérstaklega „hagnað
eigenda"
3. Leitið að fyrirtækjum með
mikinn jaðarhagnað
4. Óráðstafaður hagnaður á að
koma fram í markaðsvirði
Markaðsreglur - ákvarðanir tengdar
virðingu fyrirtækisins
1. Hvert er virði fyrirtækisins
m.v. ávöxtunarkröfu þína og
er hægt að kaupa fyrirtækið
ingamöguleika í Bandaríkjunum á
hverjum tíma.
Hér er á ferðinni ekki aðeins ævi-
saga frægasta fjárfestis Bandaríkj-
anna heldur nánast leiðbeininga- og
kennslubók um hvernig hann hugsar
og hegðar sér þegar kemur að fjár-
festingum. Bókin gefur lesendum
mjög glögga mynd af því sem hann
leggur til grundvallar ákvörðunum og
er því öllum lesendum gagnleg og
sérstaklega fræðandi.
Bókin skiptist í 8 kafla og er
skemmtilegt sambland af ævi- og
reynslusögum Warrens Buffett. Hún
skiptist í 4 kafla um manninn sjálfan og
hugsunina að baki fjárfestingunum og
4 kaflar fjalla í smáatriðum um ein-
staka fjárfestingar. Farið er gaum-
gæfilega í fjárfestingakosti á verð-
bréfamarkaðnum og hvað eigi að
forðast í þeim efnum.
STUH KYNNING ÚR BÓKINNI
Mikið af tilvitnunum er í bókinni í
það sem goðsögnin hefur látið frá sér
fara og er gripið niður í sum ummæli
hans hér:
Warren Buffett heldur þvf fram að
fjárfestar verði að vera fjárhagslega
og sálfræðilega viðbúnir hinum miklu
sveiflum sem verða á gengi hluta-
bréfa á hlutabréfamarkaði. Hann seg-
ir að ef þú þolir ekki að sjá hlutabréfa-
eign þína falla um 50% án þess að fara
alveg á taugum þá ættir þú ekki að
vera á hlutabréfamarkaði! Hann segir
að hlutabréf séu langtíma fjárfesting
og skiptir sér ekki af eða kippir sér
upp við sveiflur sem verða daglega á
markaðnum. „Eftir að hafa keypt
hlutabréf í fyrirtæki, sem ég met
vænlegt, er mér er alveg sama þótt
markaðurinn lokaði í 10 ár. Hann er
hvort eð er alltaf lokaður um helgar
og það hefur aldrei truflað mig“.
Hann hegðar sér allt öðru vísi en
spákaupmennirnir á Wall Street og
sést það best þegar hann fór að kaupa
í stórum stíl hlutabréf í Coca-Cola
fyrirtækinu. Hann keypti hlutabréf
þar fyrir rúman 1 milljarð þandaríkja-
dali á árunum 1988 og 1989, þótt bréf-
33