Frjáls verslun - 01.03.1995, Page 45
hjá sér. Og ekki eru allir sérfræðingar
um stjórnun hrifnir af því að menn
komi sér upp fullkominni skrifstofu
heima - með nýtísku skrifstofubúnaði
á öllum sviðum. Þeir vísa fyrst
og fremst til þjóðfélagsað-
stæðna og segja að allt of mikil
hætta sé á að vinnu og fjöl-
skyldulífi verði ruglað saman.
Það sé ekki æskilegt.
Þeir gera þó greinarmun á
því hvort viðkomandi sé ein-
yrki í viðskiptalífmu eða starfi í
fyrirtæki. Ekkert sé því til
fyrirstöðu að einyrki, sem á
stórt heimili og vilji nýta það,
komi sér upp vinnuaðstöðu
þar og spari þar með leigu
skrifstofuhúsnæðis.
Hins vegar telja þeir að mikil og
stöðug vinna heima á kvöldin eftir
hefðbundinn vinnudag á skrifstofu
fyrirtækis úti í bæ beri vott um vinnu-
sýki sem leitt geti til síþreytu. í þeim
tilvikum sé best að skilja að vinnuna
og heimilið - sinna fjölskyldunni
óskiptur. Það sé raunar krafa nútím-
ans að fjölskyldunni sé meira sinnt.
Ekki dugi að yrða rétt á börnin í kort-
ér um kvöldmatarleytið og vera síðan
rokinn í burtu í vinnuna.
NÚTÍMAKRAFA: AÐ SINNA
FJÖLSKYLDUNNIÓSKIPTUR
Þeir segja ennfremur að með mik-
illi vinnu lieima fyrir geti myndast
togstreita á milli vinnunnar og
íjölskyldunnar. Eru menn ósk-
iptir hjá fjölskyldunni eða eru
þeir alltaf að skreppa í vinn-
una? Hættan verði sú að þeir
séu alltaf „að skreppa" í vinn-
una þegar þeir séu heima.
Vinnan, frítíminn og fjöl-
skyldan renni þá gjörsamlega
saman í eitt. Fyrir vikið fmnist
fjölskyldunni að aldrei sé al-
mennilegur og óskiptur frítími
fyrir hendi.
A móti má spyrja hvort
nokkuð sé að því að stjórnandi gefi
sér klukkustund eða svo að kvöldi
heima til að líta í gögn og skýrslur.
Vinnutími stjórnenda er lengri en
annarra starfsmanna.
Sím- og fjarskiptatækni er ein af forsendum þess
að hafa heimaskrifstofu og stjórna þaðan.
nashuateí
k Mest seldu
Ijósritunarvélar ó Islandi !
"k Faxtæki k Fjölritar ★ Kjölbinditæki
Veri& velkomin í vinningsliðið!
UmboS: FHljómver, Akureyri
Póllinn, IsafirSi
Geisli, Vestmannaeyjum
if 40 í\
v i . y
OPTÍMA
ARMULA 8 - SÍMI 88 9000
45