Frjáls verslun - 01.03.1995, Side 51
MOKOLLUR
TEKUR ÞÁTT í HM '95
Mókollur Landsbankans er lukkudýr HM ’95 í handbolta. Hann leikur aðal-
hlutverkið í 40 sekúnda landkynningarmynd sem sýnd verður á undan
hverjum leik í sjónvarpi. Hann mun því kynna land og þjóð frammi fyrir 130
milljónum áhorfenda.
legg.“ Að sögn Edvards mun Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðurinn spila
stórt hlutverk hvað varðar Lands-
bankahlaupið í vor, en þá verður ein-
mitt haldið upp á 10 ára afmæli þess.
Þá mun Landsbankinn bjóða öllum
sem áhuga hafa í sund í Laugardalnum
og í heimsókn í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn."
Á þessu stigi héldu flestir að út-
þenslu Mókolls væri lokið en ævin-
týrið var rétt að byrja. Framkvæmd-
arnefnd HM’95 var nefnilega að leita
lukkudýrs fyrir keppnina og þar á bæ
voru uppi hugmyndir um álf sem
lukkudýr. „Einhverra hluta vegna
fréttu þeir af álfinum okkar,“ segir
Edvard, „enda gott samstarf á milli
HSÍ og Landsbankans. Þegar fram-
kvæmdanefndin frétti af hönnunar-
og þróunarvinnunni hér óskuðu þeir
eftir samstarfi sem var auðfengið,
enda hefur Landsbankinn verið einn
aðal styrktaraðili HSI undangengin
ár. Það varð því úr að Mókollurinn
okkar varð lukkudýr HM’95 og þar
sem meira er, tákn lands og þjóðar
um leið. Það er nefnilega ekki nóg
með að Mókollur prýði ýmiss konar
minjagripi á HM’95, svo sem könnur,
hatta, boli og armbandsúr, hann er
líka á öllum veggspjöldum HM’95,
auk þess sem hann leikur aðalhlut-
verkið í 40 sekúndna langri landkynn-
ingarmynd sem sýnd verður á undan
hverjum leik í sjónvarpi. Mókollur
mun því kynna land og þjóð fyrir 130
milljónum sjónvarpsáhorfenda um all-
an heim, — og það munar nú um
minna!“
Edvard segir að með hverjum þeim
fundi sem hann hafi haldið vegna Mó-
kolls hafi hann sannfærst um að
Landsbandkinn hafi gert rétt í því að
skipta bangsunum út fyrir umferðar-
álfinn Mókoll, „því jafnvel virðuleg-
ustu menn gleyma mikilvægum fund-
arefnum þegar talið berst að Mókolli
og fara að segja álfasögur. í hrein-
skilni sagt þá átti ég ekki von á svona
mikilli álfatrú, þótt ég hafi vitað innst
inni að hún væri almenn hér á landi.“
Boltinn heldur áfram að rúlla og
Edvard segir að nú sé hann farinn að
stíga á bremsuna hvað varðar út-
breiðslu Mókolls, „en ýmilsegt er enn
ósagt. Eins og til dæmis að Kópa-
vogsbær heldur upp á 40 ára afmæli
sitt á árinu og 13. maí, meðan á
HM’95 stendur, verður mikil hátíð
þar sem Mókollur verður í aðalhlut-
verki. Efnt verður til mikillar skrúð-
göngu og brennu þar sem álfar dansa
og ekki færri en eitt hundrað Mókoll-
ar dansa þar fyrir Kópavogsbúa og
gesti þeirra, innlenda sem erlenda.”
Það er því ljóst að Mókollur, sem til
SAGANABAK
VIÐ HERFERÐINA
varð þegar aðstandendur Möguleik-
hússins hittust til að semja leikrit urn
umferðina fyrir yngstu áhorfendurna,
er orðinn að vingjarnlegu tákni fyrir
land og þjóð fyrir milligöngu Lands-
bankans. Og hver veit nema pabbar
og mömmur þessa lands eigi í fram-
tíðinni eftir að kyssa Mókoll góða
nótt, því saumastofan Ceres hefur
þegar leitað eftir leyfi til að sauma
Mókolls-náttföt.
Já, hugmynd skaut upp kollinum,
inenn komu henni í framkvæmd og
hver veit nema ævintýrið sé rétt að
byrja!
51