Frjáls verslun - 01.03.1995, Síða 59
ERLEND VEITINGAHUS
Pnrh'
AU PIED DE COCHON
opið allan sólarhringinn
í París, borginni glaðværu við
Signu, eru í það minnsta 10.000 veit-
ingastaðir. Allir, meira að segja hinir
kræsnustu sælkerar, ættu því að
fmna eitthvað við sitt hæfi. Margir
fróðir menn hafa velt fyrir sér hvað
það sé sem gerir París svo spennandi
og heillandi. Eru það leikhúsin, söfn-
in, veitingahúsin, kaffihúsin eða fólk-
ið? Sennilega er það allt þetta sem
gerir borgina svo einstaka. Líklegast
er það þó lífsmáti fólksins sem hefur
hvað mest að segja í þessum efnum.
Parísarþúamir hitta hver annan á
kaffihúsunum. Kaffihúsið er annað
heimili þeirra. Svo eru það veitinga-
húsin sem eru helstu menningar-
stofnanir borgarinnar. Þar hittist fólk
og heldur upp á afmæli sitt, leysir
vandamál sín, þar hafa verið myndað-
ar margar ríkisstjórnir og gerðir ótal
viðskiptasamningar. í stuttu máli má
segja að veitingahúsin í París gegni
margháttuðu hlutverki, þó að flestall-
ir fari þangað til að snæða góðan mat.
Þótt ekki séu allir veitingastaðir Par-
ísar fyrsta flokks eru þeir þó óvenju
margir sem eru góðir. Eins og áður
sagði ættu allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi, bæði
varðandi verð og mat.
Það skiptir engu máli
hvað klukkan er, það er
örugglega einhvers stað-
ar opið. Veitingahúsið
AU PIED DE COCHON
eða „Grísafóturinn“ er
t.d. opinn allan sólar-
hringinn. Þetta sérstaka
veitingahús er á þeim
stað þar sem gamli
kjötmarkaðurinn var. í
kringum hann voru
margir litlir veitingastað-
ir sem allir opnuðu
snemma á morgnanna
eða kl. 5. Næturhrafnar
Sigmar B.
Hauksson
skrifar reglulega
um þekkta
erlenda business-
veitingastaði í
Frjálsa verslun.
gjarnan þangað á morgnanna og fengu
sér vínglas og lauksúpu áður en þeir
fóru heim. Nú er búið að flytja kjötm-
arkaðinn út í úthverfi, en ennþá venja
nátthrafnar borgarinnar komur sínar
á þessar slóðir. AU PIED DE
COCHON er vandaður veitingastað-
ur, þjónustan er frábær og matseðill-
inn er haganlega samansettur. Eins
og gefur að skilja eru á honum klass-
ískir franskir réttir og þá aðallega
kjötréttir, t.d. mætti nefna ofnsteikt-
an grísafót fylltan með gæsalifur. En
fyrir þá sem ekki líst á grísafótinn
mætti benda á glóðarsteikta nauta-
steik með bearnaisesósu. Ekki má
gleyma lauksúpunni frægu sem varð
upprunalega til á þessum stað. Þá er
mikið og gott úrval af skelfiski á boð-
stólum; ostrur og humar og ýmislegt
annað gott. Verðlag á AU PIED DE
COCHON er í meðallagi og raunar
frekar hagstætt ef miðað er við gæði
þjónustu og matar. Allt þjónustufólkið
talar ágæta ensku. Fyrri hluta kvölds
er stór hluti gestanna erlendir ferða-
menn. Þegar líða tekur á kvöldið eru
flestir gestanna franskir. Upp úr mið-
nætti fyllist svo staðurinn af glaðværu
fólki sem er að koma úr leikhúsunum.
Þegar svo líða tekur á nóttina og það
er um það bil að fara að birta koma
þeir sem hafa verið að skemmta sér
og eru kannski ekki alveg tilbúnir að
fara heim. Á einu borði er bandarísk-
ur ferðamaður sem er nýkominn til
Parísar og er staðráðinn í því að missa
af engu. Það er svo sannarlega gaman
að eyða stund á AU PIED DE
COCHON hvenær sólarhringsins
sem það nú er. Matur og þjónusta er
með ágætum og mannlífið fjölskrúð-
ugt.
AU PIED DE COCHON
6 RUE COCUILLIERE
SÍMI 42 36 11 75.
Parísarborgar
fóru Veitingahúsið AU PIED DE COCHON eða „Grísafóturinn“ er opið allan sólarhringinn.
59