Frjáls verslun - 01.03.1995, Side 60
FOLK
HERMANN OHÓSSON, AUGLÝSINGASTOFU
Hermann Ottósson hefur aflað sér ménntunar og reynslu á mörgum sviðum og segir að
sá grunnur nýtist vel í markaðsstörfum hjá fyrirtæki sínu.
„Auglýsingagstofa
Reykjavíkur er ungt og
dýnamískt fyrirtæki í stöð-
ugri sókn. Við erum fyrst og
fremst þjónustufyrirtæki og
leggjum okkur fram um að
skilja markaðinn og uppfylla
þarfir viðskiptavina okkar.
Við höfum sérhæft okkur í
gerð markaðs- og kynning-
argagna fyrir útflutningsfyr-
irtæki sem vilja koma vöru
sinni á framfæri á erlendum
markaði,“ segir Hermann
Ottósson, framkvæmda-
stjóri Auglýsingastofu
Reykjavíkur.
Hermann er 39 ára og
lauk stúdentsprófi frá Kenn-
araháskóla Islands 1975.
Hann var kennari í fjögur ár í
Mosfellsbæ og á Kirkjubæj-
arklaustri, en hóf nám við
Félagsvísindadeild H.í.
TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR
1979 og lauk prófi þaðan
1983. Síðan fór hann til Ár-
ósa í Danmörku, í fram-
haldsnám í félagsvísindum,
og lauk embættisprófi 1986
og MBA prófi við verslunar-
háskóla Arósa árið eftir. Að
því loknu settist Hermann í
London City Business
School og nam alþjóðavið-
skipti.
„Ég kom heim 1988 og
réði mig til Utflutningsráðs
sem markaðsathugunar-
stjóri,“ segir Hermann.
„1991 tók ég að mér verk-
efni fyrir Fagráð bleikju-
framleiðenda við að koma
íslenskri bleikju á markað
erlendis. Sú vinna stóð í þrjú
ár og um áramót 1994 stofn-
aði ég Auglýsingastofu
Reykjavíkur ásamt tveimur
öðrum.“
MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
ANDLIT ÍSLANDS Á
INTERNETINU
Hermann segir að bak-
grunnur sinn, blanda af fé-
lagsvísindum og viðskipta-
námi ásamt þekkingu og
reynslu af starfsemi útflutn-
ingsfyrirtækja hafi nýst sér
vel og veiti sér ómetanlega
innsýn í markaðs- og kynn-
ingarstörf á erlendum vett-
vangi.
„Við veitum sérþjónustu
fyrir útflutningsaðila og í
október 1994 stofnuðum við
nýja deild — Nýmiðlunar-
deild, og höfum verið í farar-
broddi á Intemetinu með
markvissa kynningu á ís-
landi og íslenskum fyrir-
tækjum. Það má segja að ís-
landsgáttin okkar (The Ice-
landic Connection) sé andlit
REYKJAVIKUR
Islands á Internetinu og er
hún vel kynnt meðal not-
enda netsins erlendis.
Hægt er að panta vörur og
þjónustu frá Islandi en nú
eru 22 fyrirtæki og stofnanir
vistaðar á gáttinni, t.d. aðil-
ar í ferðaþjónustu og er tals-
vert um að fólk panti sér
ferðir til íslands á þennan
hátt.
Við vinnum einnig að aug-
lýsingagerð fyrir nokkra
trausta viðskiptavini og höf-
um sérhæft okkur í hönnun
sýningarsvæða og bása á
erlendum vörusýningum.
Við sjáum t.d. um heildar-
útlit á íslenska svæðinu á
sjávarútvegssýningunni í
Brussel.“
UÓSMYNDAR Á
GAMLA ROLEIFLEX
Eiginkona Hermanns er
Jóhanna Guttormsdóttir
Þormar, yfirgarðyrkjufræð-
ingur í Grasgarðinum í
Reykjavík. Þau eiga 18 og 11
ára syni og 7 ára dóttur.
„Ég er áhugamaður um
ljósmyndun og tek bæði
myndir fyrir sjálfan mig og
stofuna á eldgamla Roleiflex
myndavél sem ég fékk á
fomsölu í Þýskalandi," segir
Hermann þegar hann er
spurður um frítímann. „Ég
fékk eiginlega nóg af utan-
landsferðum í mínu fyrra
starfi, bjó nánast í ferða-
tösku í sex ár. Útivera fylgir
ljósmyndaáhuganum og ég
hef gaman af stangaveiði,
helst á urriðasvæðinu í Laxá
í Laxárdal. Ég fer daglega í
sund að loknum vinnudegi
en nota frítímann annars til
að vera með fjölskyldunni,
vinum og kunningjum. Ég
hef gaman af bóklestri, les
allt sem ég næ í,“ sagði Her-
mann að lokum.
60