Frjáls verslun - 01.03.1995, Side 61
FOLK
ÓSKAR ÞÓRÐARSON, SKAGSTRENDINGIHF.
Óskar Þórðarson hefur unnið við útgerð og fiskvinnslu frá blautu bamsbeini, fyrst
heima á Akranesi og hjá Skagstrendingi síðan 1991.
„Rekstur Skagstrendings
hf. gekk ekki nógu vel árið
1994, þó að tapið verði mun
minna en árið á undan. Það
ár höfðu miklar afskriftir og
gengistap áhrif á afkomuna
en við afskrifuðum kvóta
fyrir tæplega 100 milljónir á
sl. ári. Fjármunamyndun í
rekstri félagsins hefur
lengst af verið góð en var þó
ekki viðunandi árið 1994.
Miklar þárfestingar í skipi
og kvóta, sérstaklega á ár-
unum 1990 til 1992, hafa
reynst félaginu þungur
baggi á tímum kvótaniður-
skurðar og aflasamdráttar.
Markmið okkar er að reka
fyrirtækið með hagnaði á
þessu ári,“ segir Óskar
Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Skagstrendings hf.
Óskar er 35 ára og varð
stúdent frá M.R. 1979.
Hann fór síðan í viðskipta-
fræði í H.í. og lauk prófi af
endurskoðunarsviði 1985.
„Ég hef unnið við útgerð
og fiskvinnslu frá blautu
barnsbeini en faðir minn,
Þórður Óskarsson, rak út-
gerð og fiskverkun á Akra-
nesi í fjölda ára. Ég vann
ýmis störf í fyrirtækjum
hans á meðan ég var í skóla
og eftir námið í Háskólan-
um. Þá tók ég við rekstri
fyrirtækis sem hét ísblik og
flutti út ferskan og saltaðan
fisk. 1983 stofnaði ég,
ásamt skólabróður mínum,
Bókhaldsþjónustuna s.f. á
Akranesi og vann þar í auka-
vinnu næstu árin.
1991 tók ég við bókhaldi
og fjármálastjóm hjá Skag-
strendingi hf. og um sl. ára-
mót varð ég framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins og sé
áfram um fjármálastjórnina.
Einnig var ráðinn útgerðar-
stjóri sem hefur yfirumsjón
TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR
með framleiðslumálum,"
segir Óskar.
GENGUTIL LIÐSVIÐ S.H.
Árið 1982 keypti Skag-
strendingur hf. fyrsta frysti-
togarann, Örvar, tillandsins
og má segja að það skip hafi
byggt fyrirtækið upp.
Reksturinn gekk mjög vel
og var ákveðið að smíða nýj-
an og glæsilegan frystitog-
ara sem fékk nafnið Arnar.
En þegar skipið var tilþúið, í
lok árs 1992, hafði átt sér
stað mikill niðurskurður á
þorskkvóta og tímarnir
orðnir erfiðari.
„Skagstrendingur hf.
veltir um milljarði á ári og
byggir nær eingöngu á sjó-
frystingu. Við eigum enn
gamla Amar, sem er ísfisk-
togari og veiddi í Smugunni í
fyrra, en nýi Arnar hefur
verið á blönduðum veiðum
og hefur gengið mjög vel.
Stöðugt er unnið að
gæðaátaki hjá okkur þar
sem við viljum auka verð-
mæti framleiðslunnar á
hvert kíló. Einnig er í bígerð
að vinna aflann meira, m.a. í
smærri pakkningar. Helstu
markaðir fyrir sjófrystar af-
urðir eru í Bretlandi, Asíu,
þ.e. Japan og Taiwan, og
Bandaríkjunum. Við höfum
séð sjálfir um afurðasöluna
en 1. janúar sl. gengum við
til samstarfs við Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna og
væntum góðs af því sam-
starfi, m.a. hvað varðar
vöruþróun," sagði Óskar.
HEIMAKÆR
FJÖLSKYLDUMAÐUR
Eiginkona Óskars er
Rósa Jónsdóttir og eiga þau
þrjá syni - 9 ára, 5 ára og 1
árs.
„Vinnutími minn er lang-
ur og hjá mér fer áhugamálið
saman við starfið. Að lokinni
vinnu verð ég yfirleitt
heimakær fjölskyldumað-
ur,“ segir Óskar um líf sitt
fyrir utan vinnuna. „Ég hef
áhuga á íþróttum, lék fót-
bolta á yngri árum og spilaði
bridds. Nú stunda ég lík-
amsrækt, einu sinni tO
tvisvar í viku, í æfingaað-
stöðu sem er hér í skólan-
um, fyrir utan þá ágætu æf-
ingu sem maður fær við
snjómokstur við heimili sitt,
en hér hefur verið sérlega
snjóþungt í vetur. Við höf-
um gaman af ferðalögum,
bæði utanlands og innan, og
skreppum oft suður þar sem
fjölskylda okkar beggja
býr,“ segir Óskar.
61