Frjáls verslun - 01.03.1995, Page 68
MARKAÐSMAL
Ert þú
með lánshæfa
hugmynd til eflingar
atvinnulífi ?
Við veitum
góðri hugmynd
brautargengi!
Við veitum fúslega nánari upplýsingar
um lán til atvinnuskapandi verkefna
í öllum greinum.
LANASJOÐUR
VESTUR -NORÐURLANDA
ENGJATEIG 3 • PÓSTHÓLF 5410 • 125 REYKJAVÍK
Sl'MI: 560 5400 • FAX: 588 2904
ingafélaga, „enda teljum við að þannig
auglýsingar nái ekki tilgangi sínum.“
Leópold Sveinsson segir að í upp-
hafi hugmyndavinnunar hjá AUK hafi
sú stefna verið tekin að koma með
lausn, sem gæfi sterklega til kynna að
um nýjung væri að ræða, „og við telj-
um að það hafi tekist. Við ákváðum að
láta myndmálið tala á táknrænan hátt
og hafa textaskilaboðin bæði bein-
skeytt og söluleg.
Hugmyndin er í eðli sínu afar ein-
föld, við notum tréð, uppistöðuna í
merki félagsins, og foreldrarnir eru
að flytja allt sitt verðmætasta; börnin,
heimilið, innbúið og bílinn undir
vemdarvæng trésins. Tréð er síðan
áfram notað í táknrænni merkingu til
að undirstrika verndina sem það
(Sjóvá-AImennar) veitir. Vemdin er
sýnd í þremur mismunandi auglýsing-
um. í þeirri fyrstu, sem sýnd er, er
vernd gegn utanaðkomandi hættum
sýnd með eldingu, sem slær niður í
tréð, óvænt áföll eru sýnd með fall-
hlífarstökkvaranum, sem kemur af
himnum ofan og lendir í trénu og síðan
eigum við eina auglýsingu eftir sem
sýnd verður síðar.
í sjónvarpsauglýsingunum ýkjum
við skilaboðin örlítið, stílfærum liti og
tákn til þess að undirstrika einfald-
leikann í Stofninum og að hér sé um
nýjung að ræða. Útlit sjónvarpsaug-
lýsingarinnar var síðan yfirfært á allt
efni sem við hönnuðum vegna þessa
verkefnis, dagblaðaauglýsingar,
tímaritaauglýsingar, veggspjöld, út-
sendiefni og útvarpsauglýsingar."
Fjölskyldutrygging Sjóvá-Al-
mennra er grunnurinn í Stofninum.
Til viðbótar þarf viðskiptavinurinn að
vera með að minnsta kosti tvær
grunntryggingar, svo sem Fast-
eignatryggingu, Sjúkra- og slysa-
tryggingu eða Líftryggingu. Þessar
tvær grunntryggingar veita 10% af-
slátt af Fjölskyldutryggingunni og
hluta grunntrygginga, auk þess sem
félagar í Stofninum fá 10% afslátt af
viðbótartryggingum. Ekki er gefinn
afsláttur af tryggingum einkabfla eða
líftryggingu en ef einstaklingar eru
með tvo eða fleiri bíla þá fá þeir 20%
afslátt á Fjölskyldutryggingunni.
Ólafur Jón Ingólfsson segir að ið-
gjaldalækkunin vegna afsláttanna
verði um 15 milljónir, „og að auki ger-
68