Frjáls verslun - 01.08.1995, Qupperneq 5
RITSTJORNARGREIN
STRIBSHANSKINN
DREGINN FRAM
Hérlendis hafa þekktir forstjórar um fjórfalt hærri tekjur
en almennir starfsmenn, samkvæmt tveimur nýlegum
könnunum Frjálsrar verslunar. Meðaltekjur forstjóra eru
um 588 þúsund á mánuði og meðaltekjur almennra starfs-
manna eru um 146 þúsund á mánuði. Þetta er talsvert minni
launamunur en í nágrannalöndunum þar sem meiri fram-
leiðni er en hér á landi.
Umræðan um mun á launum forstjóra og almennra starfs-
manna, sem og um mun á launum í einstökum starfsgrein-
um eða löndum, er sígilt efni í félagsfræðideildum háskóla
en ekki síst í kaffistofum vinnustaða. Starfsmenn sjálfir
miða sig ekki bara við forstjórann, heldur hver annan. Dug-
legir starfsmenn hafa ætíð verið óhressir með að samstarfs-
menn komist upp með að vinna minna en þeir en þiggi samt
sömu laun.
í raun er það markaðurinn sem ákveður mun á launum
eftir störfum. Fyrirtæki eru tilbúin að greiða hærri laun ef
um aukna verðmætasköpun er að ræða, eða bæta við starfs-
fólki ef viðbótartekjur af því eru meiri en viðbótarkostnað-
ur. Flóknara er það í sjálfu sér ekki.
Launamál hafa verið óvenju mikið í deiglunni hér á landi
að undanförnu. Fyrst kom gusan um launahækkun alþingis-
manna, síðan vangavelturnar um minni framleiðni, verð-
mætasköpun á mann, hérlendis miðað við nágrannalöndin
þrátt fyrir að þjóðartekjur á mann séu hér í hærri kantinum.
Upp á síðkastið hefur verkalýðshreyfingin svo dregið fram
stríðshanskann og krefst nýrra kjarasamninga þar sem hún
telur sig hafa fengið minna en aðrir, og skírskotar hún þá
sérstaklega til samninga ríkisins við ákveðna hópa.
En hvernig er hægt að auka framleiðni, hagvöxt og
hækka þar með launin á sama tíma og um það ríkir þjóðar-
sátt að samið sé á sömu nótum hjá öllum hópum í þjóðfélag-
inu? Og er yfirleitt hægt að hvetja til aukinna afkasta starfs-
manna á sama tíma og lögð er áhersla á að enginn fái meira
en annar? Er ekki verið að bjóða markaðsöflunum birginn?
Laun eru helsti hvatinn til dáða hjá flestum þótt annars
konar hvatning verði líka að koma til, eins og starfsánægja,
hrós, klapp á bakið og svo framvegis. Kastljósið hlýtur því
að beinast að afkastahvetjandi launakerfum. Enda kemur
það á daginn að þjóðir með meiri framleiðni en íslendingar
nota afkastahvetjandi kerfi í ríkara mæli. Hjá þeim er
einnig meiri samkeppnishugsun. En þar er launamunur
einnig meiri.
Það er sömuleiðis umhugsunarvert hve lítið afkasta-
hvetjandi launakerfi eru notuð hér á landi á meðal topp-
stjómenda. Slík kerfi hljóta að hvetja forstjóra til að bæta
hag fyrirtækja sinna, auka verðmætasköpun hjá starfs-
mönnum sem leiðir til þess að fleiri fái vinnu eða kemur í
veg fyrir að margir missi vinnu.
Enn og aftur koma menn þá að þeirri spurningu hversu
mikill munur eigi að vera á forstjórum og almennum starfs-
mönnum í launum. Hér á Iandi er lenska fyrir litlum mun.
Enda er hægt að taka undir að stjarnfræðileg laun svo-
nefndra ofurforstjóra erlendis em komin út í öfgar og vart
réttlætanleg. En er hægt að draga einhver mörk í þessum
efnum á frjálsum launamarkaði?
Enn einu sinni hefur stríðshanskinn verið dreginn fram
og vinnudeildur blasa við. Eftir stendur samt spurningin
hvort hægt sé að auka framleiðni í fyrirtækjum án þess að
auka launamun á milli fyrirtækja, milli starfsmanna inn-
byrðis í sömu fyrirtækjum og á milli starfsmanna almennt
og æðstu stjómenda?!
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál — 56. árgangur
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir —
LJÓSMYNDARAR: Hreinn Hreinsson, Gunnar Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið er gefið út í
samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Seljavegur 2,101 Reykjavík, sími 515-5500 —
RITSTJÓRN: Sími 515-5616. - AUGLÝSINGAR: Sími 515-5618 - STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson - AÐALRITSTJÓRI:
Steinar J. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-10. tbl. eða 521 kr. á blað
nerna bókin 100 stærstu er á 999 kr. — 10% lægra áskriftarverð, 2.984 kr. ef greitt er með greiðslukorti. LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. —
SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. - Edda prentstofa hf. - LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf. — Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
5