Frjáls verslun - 01.08.1995, Side 53
ÚTSÖLUR í NEW YORK
Miðað við almennt verðlag í Banda-
ríkjunum hefur verð á fatnaði lækkað
um 10% á sl. 3 árum. Sala á fyrri hluta
þessa árs var 60 milljarðar dollara,
sem er 2% aukning miðað við sama
tíma í fyrra. Þrátt fyrir að tekjur ein-
staklinga hafi aukist og efnahagslægð
sé að baki, þá hefur sala í fatnaði verið
með minna móti. Sala í kvenfatnaði á
útsölu jókst að vísu á fyrri hluta ársins
um 51,5%, en lækkandi verð telur
Robert Buchanan, smásölusérffæð-
ingur hjá NatWest Securities, vera
vegna of margra verslana og of fárra
dollara til fatakaupa. Meðan smásalar
reikna með aukinni sölu ’96, þá bíða
viðskiptavinir eftir verðlækkun á út-
sölunum framundan.
Viðskiptavinir bíða eftir verðlækkunum á fatnaði í New York, og þrýsta
þannig á að seljendur fylgi því eftir.
HINN 37 ÁRA
Andreas Renschler forstjóri þykir
snjall, hugmyndaríkur og óhefð-
bundinn við stjórnun hjá Mercedes
Benz.
Hinn 37 ára gamli Andreas Ren-
schler ólst upp á bóndabæ fyrir utan
Stuttgart í Þýskalandi, en er nú for-
stjóri verksmiðju Mercedes Benz í
Bandaríkjunum, þeirrar fyrstu af
stærri gerðinni hjá fyrirtækinu, sem
reist er utan Þýskalands. í verksmiðj-
unni verður fyrsta bilategund fyrir-
tækisins framleidd, sem sérstaklega
RENSCHLER
verður beint að erlendum markaði.
Renschler þótti óvenjulegur valkost-
ur í forstjórastólinn þar sem hann
hafði ekki tekið Mercedes-menning-
una í blóðið, auk þess sem hann var í
yngra lagi. Hann þykir snjall stjórn-
andi og hugmyndaríkur, en hefur litla
reynslu í rekstri og hefur aldrei fylgt
nýrri söluvöru úr hlaði. A móti notar
hann óhefðbundnar aðferðir við
stjómun og lætur stífar venjur
Mercedes ekki aftra sér í þeim efn-
um, þ.á.m. leggur hann sig fram við
að ná góðu sambandi við undirmenn
sína á öllum stigum. Til að fylgja eftir
árangri Japana í að ffamleiða fyrir
bandaríska markaðinn, hefur hann
látið gera ítarlega markaðskönnun
áður en hönnun og framleiðsla hefst,
en fyrr á tímum kannaði Mercedes
ekki skoðanir neytenda fyrr en eftir
að hönnun var lokið.
RÚSKINNSSKÓR í TÍSKU
Fyrirtækið Wolverine World Wide
Inc. þykir nú góður kostur í fjármála-
heiminum á Wall Street, eftir að sala í
Hush Puppies-Iínu þeirra í skófram-
leiðslu tók skyndilega kipp eftir ára-
tugalanga fjarveru. Rúskinnskór
þeirra eru aftur komnir í tísku, ekki
síst eftir að Tom Hanks var í pari af
gömlu gerðinni í myndinni „Forrest
Gump“, og nú eru litimir m.a. græn-
Endurskipulagning í rekstri og vin-
sældir rúskinnsskóframleiðslu er
lykill að velgegni fyrir Bloom, for-
stjóra Wolverine.
ir, bleikir og fjólubláir. Sala fyrirtæk-
isins hefur aukist úr 5 milljónum doll-
ara ’92 í 18 milljónir dollara á sl. ári.
„Þú getur verið góður í því sem þú ert
að gera, en heppni hjálpar til“, segir
forstjóri fyrirtækisins Geoffrey B.
Bloom.
53