Frjáls verslun - 01.01.1996, Side 26
FYRIRTÆKI
ur ársins í viðskiptalífmu. Það var í
áttunda sinn á jafn mörgum árum sem
útnefnt var.
Fastir starfsmenn Frjálsrar versl-
unar eru aðeins tveir;
ritstjóri og auglýsing-
astjóri. Að vinnslu
blaðsins koma þó tals-
vert fleiri, eins og
ljósmyndarar, grein-
arhöfundar og starfs-
menn G. Ben. Eddu
prentstofu en þar hef-
ur blaðið verið prent-
að um árabil. Prent-
myndastofan annast
allar litgreiningar.
Auk þeirra koma
margir að dreifingu,
innheimtu og öðrum
störfum.
SJÖFN SIGURGEIRSDÓTTIR
Sjöfn Sigurgeirsdóttir auglýsinga-
stjóri hefur gegnt því starfi frá árinu
1981 eða í um fimmtán ár. Hún hefur
starfað með sjö ritstjórum á
þessu tímabili. Sjöfn hefur
unnið frábært starf fýrir
Frjálsa verslun og
byggt upp góð og
sterk tengsl við fjöl-
mörg fyrirtæki út
um allt land.
Bragi Þ. Jósefsson,
ljósmyndari hjá
Fróða, hefur verið
aðalljósmyndari
Frjálsrar verslunar
undanfarna mán-
uði. Hann mun
taka myndir fyrir
Frjálsa verslun
enn um sinn.
JÓNG. HAUKSSON
Jón G. Hauksson
ritstjóri tók við rit-
stjórn Frjálsrar verslunar hinn 1. maí
1992. Hann var áður blaðamaður á
DV í tíu ár og sinnti þar lengst af
skrifum um viðskipti og efnahagsmál.
Jón er viðskiptafræðingur frá Háskóla
íslands.
BRAGI P. JÓSEFSSON
Bragi Þ. Jósefs-
son, ljósmyndari hjá
Fróða, hefur verið
aðalljósmyndari
Fijálsrar verslunar
undanfarna mánuði.
Bragi mun taka
myndir fyrir Frjálsa
verslun um sinn.
Góðar myndir eru öllum tím-
aritum afar nauðsynlegar og
auðvitað stór þáttur í útliti þeirra.
ÞÓRHALLUR ÖRN GUÐJÓNSSON
Þórhallur Öm Guðjónsson, við-
skiptafræðingur og fyrrum sölu- og
markaðsstjóri Framtíðarsýnar, mun á
næstu mánuðum hafa umsjón með
sérstöku markaðsátaki fyrir Frjálsa
verslun en í því verður megináhersla
lögð á öflun áskrifta.
G.BEN. EDDA PRENTSTOFA HF.
G. Ben. prentstofa hf., nú G. Ben.
Edda prent-
stofa hf., hef-
ur um árabil
annast setn-
ingu, umbrot
og prentun
Fijálsrar
verslunar.
Fyrirtækið er
helsta sam-
starfsfyrir-
tæki blaðsins.
Sverrir
Hauksson er
prentsmiðju-
stjóri. Nánust
er samvinnan við Jón Orra
Guðmundsson verkstjóra, Páknu
Jónsdóttur setjara, Þorkel Sigurðs-
son, sem sér um umbrot Frjálsrar
verslunar, ogjónas Gunnarsson sem
vinnur gröf, línurit og forsíðu blaðs-
ins.
G. Ben. Edda prentstofa hf.
hefur um árabil prentað
Frjálsa verslun. Hér eru þeir
starfsmenn sem samvinnan er
nánust við.
TALNAKÖNNUN
Hvers konar fyrirtæki er Talnakönnun sem keypti Frjálsa verslun? Það er
fyrirtæki sem fengist hefur við ráðgjöf tölfræðirannsóknir og útgáfu
afn fyrirtækisins, Talnakönn-
un, bendir til þess að þar vinni
stærðfræðingar. Það kom því
starfsmönnum Frjálsrar verslunar
ekki á óvart, þegar þeir fluttu sig um
set í húsakynni fyrirtækisins um ára-
mótin, að þar ynnu þrír stærðfræð-
ingar, einn eðlisfræðingur og einn
viðskiptafræðingur.
Talnakönnun var stofnuð fyrir tæp-
lega 12 árum, um mitt ár 1984, af
Benedikt Jóhannessyni, doktor í
stærðfræði. Eins og gjarnan er með
lítil ævintýri í atvinnurekstri byijaði Benedikt Jóhannesson stofnaði
þetta ílitlu herbergi heima hjá honum. Talnakönnun árið 1984.
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON
Dæmið vatt fljótlega upp á sig og árið
1985 var fyrirtækið komið með skrif-
stofu að Lágmúla 5. Talnakönnun var
breytt í hlutafélag í árslok 1988.
Benedikt er stærsti hluthafmn en
meðal annarra hluthafa eru starfs-
menn og aðrir einstaklingar.
RÁÐGJÖF VAR UPPHAFIÐ
Ráðgjöf var fyrsti sproti fyrirtækis-
ins; upphafið. Þetta voru tölfræði-
rannsóknir af ýmsu tagi, t.d. fyrir há-
skólakennara og aðra fræðimenn. Og
enn eru ráðgjöf og tölfræðirannsóknir
26