Frjáls verslun - 01.01.1996, Síða 31
GUNNAR ÖRN,
GEIR OG GUNNAR
Gunnar Örn Kristjánsson, framkvæmdastjóri SÍF, Sölusambands
íslenskra fiskframleiðenda, Geir Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri
Marels, og Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Hampiðjunnar,
geta glaðst yfir góðum væntingum fjárfesta til fyrirtækja þeirra.
Hlutabréf í félögunum meira en tvöfölduðust í verði. Hampiðjan og
Marel eru skráð á Verðbréfaþingi íslands en SÍF er á Opna tilboðsm-
arkaðnum. Avöxtun hlutabréfa í Hampiðjunni var 111%, í Marel 108%
og í SÍF um 130%. Sem dæmi má nefna að markaðsverðmæti Hamp-
iðjunnar var í byrjun síðasta árs um 585 milljónir en í árslok um 1.198
milljónir. Fyrirtækin þrjú eiga það sameiginlegt að vera gott dæmi um
útrás íslenskra fyrirtækja í sölu- og markaðsmálum og að hafa skilað
góðri afkomu.
Gunnar Örn Kristjánsson, SÍF, Geir Gunnlaugsson, Marel, og
Gunnar Svavarsson, Hampiðjunni. FV-mynd: Bragi.
HLUTABRÉFA-
MARKAÐURINN
Batnandi afkoma fyrirtækja, stóraukin trú
fólks á að góðæri væri fram undan í efnahagslíf-
inu, spár um aukinn hagvöxt, ákvörðun um að
stækka álverið í Straumsvík og væntingar um
að fleiri rísi á næstunni og síðast en ekki síst
almenn bjartsýni. Þetta og meira til varð til
þess að árið 1995 var metár í hlutabréfavið-
skiptum á íslandi. Og menn trúa enn á góðær-
ið; að feit ár séu fram undan og þau mögru að
baki. Sala hlutabréfa hefur verið óvenjulega
lífleg það sem af er ársinu.
Árið 1995 var metár í hlutabréfaviðskiptum á
íslandi. Heildarveltan var um 6,6 milljarðar
miðað við um 4,2 milljarða árið 1994. Hlutabréf
hækkuðu verulega í verði og endaði hlutabréfa-
vísitalan, þingvísitala Verðbréfaþings, með
meti, 1386 stigum. Það var 35,2% hækkun.
Metið í árslok varð elcki margra daga gamalt.
Hlutabréfavísitalan rauk upp á nýju ári og 6.
febrúar sl. rauf hún 1.500 stiga múrinn í fyrsta
skiptið. Endaði þann dag í 1.509 stigum.
Hækkun hlutabréfa
NAFN
MARKAÐSVERÐ
fyrirtækis (mkr.)
BREYTING í %
á gengi (ávöxtun)
Þormóður rammi
Hampiðjan
Marel
Lyfjaverslun ísl.
Síldarvinnslan
Sæplast
Skagstrendingur
Flugleiðir
Haraldur Böðv.
Eimskip
SR-mjöl
Jarðboranir
Útgerðarf. Ak
Grandi
Olíufélagið
Ehf. Alþýðub.
íslandsbanki
Olís
Skeijungur
Hraðfr. Eskifj. 815
SÍF 1.061
Tæknival 220
ísl, sjávarafurðir 1.724
Sjóvá-Aimennar 2.751 ■ 28
Pharmaco 639 ■ 25
Samein. verkt. 2.231 ■ 22
Tollvörugeymslan 162 |10
Samskip 765 í -6
Árnes 234 WM -51
31