Frjáls verslun - 01.01.1996, Qupperneq 38
FORSÍÐUGREIN
myndunarviðræðurnar sá ég og
skynjaði að þetta yrði eitthvað dular-
fullt. Það yrði ekki einfalt að koma
krötunum út úr því fari sem þeir voru
búnir að koma sér í. Ég sá strax að
það myndi ekki ganga að fara með
þeim í stjóm til fjögurra ára og takast
á við erfið verkefni, eins og ríkis-
sjóðshalla og þess háttar. Þeir vom
með of mörg vandamál úr kosninga-
baráttunni í farteskinu til að hægt
væri að mynda með þeim stjóm sem
hefði aðeins eins þingmanns meiri-
hluta. Það hefði aldrei gengið.“
— Hver er meginmunurinn á Jóni
Baldvin og Halldóri Ásgrímssyni
sem stjómmálamönnum? Getur
þú lýst kostum þeirra og göllum?
„Þeir em báðir ágætir menn, hvor
með sínum hætti. Ég hef ekki þekkt
Halldór eins lengi og Jón í samstarfi.
Þeir eru mjög ólíkar manngerðir eins
og ég held raunar að allir sjái. Jón er
meira fljóthuga heldur en Halldór. Þú
veist kannski ekki nákvæmlega hvar
þú hefur hann. Ég átti samt mjög gott
samstarf við Jón á marga lund. Ég
varð stundum var við það hjá krötun-
um, og það gilti um Jón líka, að þeir
skynjuðu ekki alveg að mál gætu
verið að gerast þótt þau væru ekki
endilega í fjölmiðlunum. Jón hefur það
mjög á tilfinningunni að það sé ekkert
að gerast nema allir viti um það og
fylgist með því í fjölmiðlum. Það er
ekki klókt af stjómmálamanni. Hall-
dór er íbyggnari og raunsærri í stjórn-
málum. En báðir hafa sína kosti, því
get ég ekki neitað, og báðir eru þeir
ágætlega viðræðugóðir stjómmála-
menn. Sem persónur líkar mér vel við
þá báða.“
— Hvaða mun telur þú vera á er-
lendum stjórnmálamönnum og ís-
lenskum?
„Ég held að íslenskir stjórnmála-
menn séu í miklu meira návígi við
fólkið í landinu en gerist erlendis. Þar
eru stjómmálamenn orðnir meiri
„byrokratar“, kerfiskarlar. Flokks-
starf hér á landi er tvímælalaust virk-
ara, flokksmenn sem almennir kjós-
endur komast nær stjórnmálamönn-
unum. Ég held til dæmis að ég sé eini
forsætisráðherrann sem er í síma-
skránni og taki samtöl fram eftir
kvöldum við hvem sem hringir.
Bakgrunnur íslenskra stjórnmála-
manna er líka á margan hátt annar.
Erlendir stjómmálamenn hafa mjög
sjaldan unnið jafa mikið úti á mörk-
inni, úti í atvinnulífinu, og við. Hér-
lendis byrjum við öll að vinna á sumrin
með námi en það er fátítt erlendis.
Þeir byija gjaman ekki að vinna fyrr
en að námi loknu - og þá hjá flokkn-
um. Þar eru þeir á launum og hafa í
mörgum tilvikum ekki unnið annars
staðar þegar þeir setjast á þing. ís-
lenskir stjórnmálamenn hafa kynnst
atvinnulífinu meira af eigin raun.
— Víkjum aðeins að efnahagsráð-
herranum, Davíð Oddssyni. Hver
eru helstu afrek Sjálfstæðis-
flokksins fyrir atvinnureksturinn í
landinu eftir að þú tókst við for-
mennsku í flokknum?
„Ég held að meginárangurinn felist
í bættu hugarfari stjórnvalda og fólks
almennt til atvinnurekstrar. Það hef-
ur gerbreyst á síðastliðnum fimm ár-
um. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft
þau meginsjónarmið að það sé verk-
efni stjórnmálamanna að leggja
grunninn en ekki að skipta sér af ein-
stökum fyrirtækjum frá degi til dags.
Þótt flokkurinn hafi haft þetta sjónar-
mið þá hefur hann hins vegar tekið
þátt í hinni aðferðinni í stórum stíl -
allt of stórum stíl - í gegnum árin.
Margir þingmenn flokksins töldu hana
jafnvel orðna hina hefðbundnu leið.
Það olli því talsverðum pirringi hjá
mörgum af mínum mönnum þegar ég
fór að breyta þessu; neitaði að stjóm-
arráðið væri með puttana ofan í ein-
stökum fyrirtækjum og bjargaði þeim
frá degi til dags í stað þess að skapa
traust andrúmsloft, skapa traust
rekstrarumhverfi fyrir atvinnulífið í
heild. Breytingin hefur tekist. Fyrri
stjómun viðgengst ekki lengur - það
er ekki verið að skipta sér af einstök-
um fyrirtækjum frá degi til dags.
Þessi stjómun einkenndi því miður
mjög stjórnarhætti míns ágæta for-
vera í starfi, Steingríms Hermanns-
sonar. Hún skaðaði bæði samkeppn-
isstöðuna og ól á tortryggni. í sumum
sjávarútvegsfyrirtækjum var það
orðin viðtekin trú manna að það skipti
ekki lengur máli hversu illa þeir rækju
fyrirtæki sín, Stóri bróðir, ríkið,
kæmi og bjargaði þeim. Það kostaði
erfiðar og sársaukafullar ákvarðanir
að breyta þessu. En það hefur verið
þess virði. Núna búa fyrirtækin við
jafnrétti.
Viðskiptaumhverfið hefur á þess-
um fimm árum breyst í þá veru að þú
getur speglað möguleika þína hér við
möguleika þína annars staðar. Skatta-
legt umhverfi fyrirtækja hefur batn-
að, sömuleiðis vaxtalegt þótt það hafi
því miður gengið svolítið til baka að
undanförnu. Ríkissjóður er að draga
til sín hendina í atvinnurekstri og láta
fleiri af fyrirtækjum sínum út á mark-
aðinn. Einkavæðingin hefur að vísu
gengið hægar en menn ætluðu sér.
En þar hefur miðað áfram og fleiri
skref verða stigin á þessu kjörtíma-
bili. Málið er að samkeppnisstaðan,
og allt andrúmsloft frá stjómvöldum í
garð fyrirtækja, hefur gjörbreyst.
Hugsunarhátturinn er annar og heil-
brigðari.
Það hefur skipt höfuðmáli fyrir
fyrirtækin, og allt starfsumhverfi
þeirra, að tekist hefur að tryggja al-
mennan vinnufrið í fimm ár. Þá er
verðbólgan með því lægsta sem
þekkist. Skattar á fyrirtæki eru orðn-
ir líkari því sem gerist í samkeppnis-
löndunum. Þegar samið er um stór-
iðju þarf ekki lengur að semja um
breyttar skattareglur, erlend fyrir-
tæki vilja laga sig að þeim skattaregl-
um sem hér eru. Sömuleiðis erum við
að skrúfa niður allar vísitölubindingar.
Verðskyn almennings hefur stórbatn-
að. Atvinnuleysi óx því miður fyrir
nokkrum árum þegar þorskveiðar
hrundu niður um helming en nú hefur
atvinnuleysi minnkað þrátt fyrir að
þorskveiðar hafi ekki aukist. Þetta
hefur skilað sér og fyrirtækin eru al-
mennt að ná sér á strik.“
— Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks lagði upp með það
sem eitt helsta markmiðið að reka
hallalaus fjárlög. Það tókst ekki.
Núverandi ríkisstjórn boðar sömu-
leiðis hallalaus fjárlög á kjörtíma-
bilinu. Kallar þú árangurinn í rík-
isfjármálunum góðan?
„Ég tel að ríkisstjómimar hafi náð
almennt mjög góðum árangri í efna-
hagsmálum og líka rfldsfjármálum.
Þegar stjórnarsáttmáli fyrri stjórnar
var saminn var verð á íslenskum sjáv-
arafurðum í ákveðinni hæð og veiði-
stofninn í tiltekinni stærð. Hvort
tveggia fór niður á sama tíma. Verðið
38