Frjáls verslun - 01.01.1996, Blaðsíða 39
lækkaði um 20 til 30% á sama tíma og
þorskveiðar hrundu niður nánast um
helming.
Við þær aðstæður segja nú flestir
að leyfilegt sé að hafa halla á ríkissjóði
og jafnvel megi auka skatta á sama
tíma. Við forðuðumst skattaaukningu
og ég fullyrði að hefði stjórn Stein-
gríms setið áfram árið 1991 hefðu
skattar verið stórauknir. Steingrímur
Hermannsson boðaði það hreinlega í
kosningunum, menn hafa kannski
gleymt því. Okkur tókst að stöðva
vöxt á ríkisútgjöldum og koma í veg
fyrir mikla fjölgun ríkisstarfsmanna.
Það er góður árangur. En við náðum
ekki þeim markmiðum, sem við höfð-
um sett okkur, vegna þess að þau
voru sett við aðrar aðstæður en síðar
urðu.
Núna lögðum við til í upphafi þessa
stjórnarferils að ljúka fjárlögunum
með fjögurra milljarða halla. Okkur
tókst það þrátt fyrir að þurfa að slaka
óvænt út einum milljarði króna til við-
bótar vegna kjarasamninga."
— Þú telur árangur ríkisstjórna
þinna í ríkisfjármálum góðan, ekki
síst í ljósi aðstæðna. Hvaða orð
hefðir þú notað um árangurinn ef
fjárlög hefðu orðið hallalaus?
„Kraftaverk. Það hefði verið
kraftaverk við þær aðstæður sem
komu upp. Við erum reyndar núna í
fremstu röð ríkisstjóma hvað snertir
rekstur ríkissjóðs. Það eru ekki
margar ríkisstjórnir innan OECD sem
geta borið sig saman við okkur hvað
það varðar. Og sé hallinn reiknaður
sem hlutfall af þjóðarframleiðslu er
betri staða hér en annars staðar.“
— Sérðu fyrir þér að það verði ein-
hvern tímann hallalaus fjárlög? Að
slíkt verði nokkru sinni eitthvað
annað en fróm ósk og hástemmt
markmið á pappír?
,Já, ég held að það eigi að nást.
Næsti áfangi verður að vísu mjög erf-
iður. Hætt er við að hann snerti störf
og það er mjög sársaukafullt. Það er
búið að ganga eins langt í aðhaldi og
hagræðingu og hægt er án þess að
segja upp ríkisstarfsmönnum. “
— Sumir hafa hreyft þeim hug-
myndum að setja eigi lög sem
banni Alþingi að afgreiða halla-
laus fjárlög. Ertu sammála því?
„Ég held að slíkt sé vonlaust. Hvað
á að gera ef fjárlög nást ekki hallalaus?
Á að setja Alþingi í steininn? Um þing-
ið og lagasetningar má segja það sama
og um hótanir, það á aldrei að hóta
neinu sem ekki er hægt að standa við.
Þá er verr farið af stað en heima set-
ið. Lög á ekki að setja nema hægt sé
að standa við þau, fylgja þeim eftir.
Annars eru þau gagnslaus."
VINNUSPARNAÐUR
A TOLVUTÆKU FORMI
Þjóðskrá og fyrirtœkjaskrá er kostur sem fjöhnörg stórjyrirtœki,
félagasamtök og stofnanir nýta sér til uppflettingar og samkeyrslu.
A Itverju ári skipta þúsimdir
fyijnlœkja og tugþúsundir
landsmaiuui unt heiimlisfang.
Méð því að hafa þjóðskni
ng fxrirtœkjaskrá í tölvukerfi
gjr * :' «&' ' **■ rfjpfefc
fyrirtœkja eru til taks
nýjustu upplýsihgur um
öll jyrirtæki og einstakliuga á landinu.
Leitið frekari upplýsinga.
39