Frjáls verslun - 01.01.1996, Page 45
HELSTU ÁHERSLUR:
1. Verið samkvæm sjálfum ykkur.
2. Setjið ykkur og öðrum starfsmönnum
skýr markmið.
3. Hafið skýra stefnu um framgang
starfsmanna í starfi.
4. Standið að fullu að baki starfsmanni í
starfi hans.
5. Komið á oþnum samskiþtum milli
stjórnenda og starfsmanna.
6. Gefið öðrum gott fordæmi í
vinnubrögðum.
7. Leiðbeinið öðrum en aðeins efþið vitið
betur.
8. Skiþtið ykkur ekki af nema þið leggið
eitthvað afmörkum.
9. Reynið ekki að vita allt um allt og alla í
stóru fyrirtæki.
10. Komið á léttleika og hafið skoþskynið í
lagi.
myndafræði um viðfangsefnið. Ólíkt
fyrri bókum í þessari ritröð er ekki
hægt að grípa niður í bókina hvar sem
er og nota sem uppflettirit. Hér er
meira lýst samfelldri þróun þar sem
hver kaflinn kemur í eðlilegu fram-
haldi af þeim fyrri.
Bókin er reynslusaga höfundar og
kostur þess er að hann segir frá raun-
verulegum atburðum, því sem kom
upp og hvemig það var leyst, hvort
sem það gekk vel eða ekki. Hér eru
ekki á ferðinni „ef-þetta- gerðist"-
setningar til að lýsa vandamálum og
„þá-á-að-gera-þetta“-lausnir !
í sumum tilfellum er höfundur að
tala út frá of persónulegum dæmisög-
um til þess að lesandinn geti með
góðu móti sett sig í spor aðstæðna.
Það er allt í lagi að miðla af eigin
reynslu en það má ekki segja of marg-
ar dæmisögur úr lokuðu fyrirtæki,
enda voru þær sögur, sem voru af
frægum íþróttaköppum eða við-
skiptajöfrum, mun greinarbetri en
hinar.
Bókin er í 10 köflum sem fjalla um
starf framkvæmdastjóra og hvaða
atriði það eru, sem hann þarf að hafa í
huga, þegar hann sinnir sínum dag-
legu störfum. Það má auðveldlega
finna að mörgum ráðum höfundar en
hann er ekki að reyna að sannfæra
lesandann um að hans ráð séu þau
einu réttu heldur aðeins að miðla af
reynslu sinni og hvað hafi gagnast
UMFJOLLUN
Það er óhætt að segja að bókin
sé skrifuð á daglegu máli og er
greinilegt að höfundur notar þá
aðferð að „spjalla" um hvert við-
fangsefni og er næsta víst að
vanur blaðamaður hefur haft
það hlutverk að færa spjallið í
letur. Titill bókarinnar gefur
það einnig til kynna að hér séu
á ferðinni hugleiðingar og
„komment“ McCormacks
um viðfangsefnið. Bókin
missir alls ekki gildi sitt
vegna þessa en hefur fyrir
bragðið engar skírskotanir í
aðrar bækur eða önnur
fræðirit, líkt og verið hefði
ef höfundur sæti við
skriftir með heimildir sér
til aðstoðar. Vísindaleg
verður bókin því aldrei
talin og með þeim for-
merkjum skal bókin
lesin.
Aðvörunarorð þessa efnis eru
í formála þar sem höfundurinn varar
lesandann við því að hann sé ekki við-
skiptalegt-„guru“, sem setji fram há-
stemmdar kenningar sem leysi allan
vanda! Þannig að þeir, sem búast við
kennisetningum í anda stjórnunar-
bóka samtímans, ættu að hætta að
Rókin
unj
s0órj
K'Ptalegra
lesa strax. Höfundur ætlast ekki til
annars en að bókin sé tekin eins og
hún er; einföld lesning um flesta
þætti, sem snerta daglegt starf
stjómandans, settar fram á einfaldan
hátt.
honum best á 35 ára ferli sem stjórn-
anda.
45