Frjáls verslun - 01.01.1996, Page 52
MAÐUR ÁRSINS
MER HEFUR VERIÐ K
„Með útnefningunni hefur mér verió kveðið kraftakvæði, “ sagði Össur Kristins
NÁLGUN ÖSSURAR Á FORMÚLUNNI
AÐ VELGENGNI
1. Haldgób grunnþekking á viðfangsefninu.
2. Víðtæk aðferða- og efnisþekking á því sviði sem
fengist er við.
3. Hæfileikaríkt samstarfsfólk.
4. Skemmtileg verkefni inn á milli, — þau bæta
starfsandann.
5. Markviss markaðsvinna. Frá söluvöru til
markaðshlutdeildar er langur vegur.
6. Stöðugar endurbætur á söluvörunni.
7. Þjónusta og meiri þjónusta við viðskiþtavini.
8. Vinna og aftur vinna — ásamt góðum skammti
af þrautseigju.
9. Anægt starfsfólk sem finnst gaman að því sem
það er að gera.
akkarræðan, sem Össur
Kristinsson, stoðtækjafræð-
ingur og aðaleigandi Össurar
hf., hélt er hann tók við útnefningu
Frjálsrar verslunar og Stöðvar 2 sem
maður ársins í viðskiptalífinu, vakti
mikla athygli. Össur vék bæði að
skáldum og formúlunni að velgengni.
Hann sagði að sú formúla væri auðvit-
að ekki til en kvaðst engu að síður
vilja reyna nálgun á formúlunni hvað
fyrirtækið Össur hf. snerti. Utnefn-
ingin fór fram við hátíðlega athöfn á
Hótel Sögu föstudaginn 29. desem-
ber sl.
í ræðu sinni byrjaði Össur á að
vitna í kvæði eftir Matthías Jochums-
son skáld og sagði:
„Það er upphaf þessa máls — þegi
nú allir runnar stáls: — Kristján skáld
vér kappa köllum, kominn í heiminn
norður á fjöllum.
Þessi upphafsvísa úr kraftakvæði
séra Matthíasar Jochumssonar til
skáldabróður hans, Kristjáns Jóns-
sonar, sem kallaður var Fjallaskáld,
kom mér í hug þegar Magnús
Hreggviðsson hringdi í mig og tjáði
mér tíðindi um útnefningu á manni
ársins 1995 í viðskiptum."
HVORKIER ÉG SKÁLD NÉ KAPPIMIKILL
„Ekki veit ég svo sem hvers vegna
þetta kom mér í hug. Hvorki er ég
skáld né kappi mikill. En rétt eins og í
gamla daga höfum við þörf fyrir að
finna okkur kappa úr hvunndagslífinu
og hefja þá á stall öðrum til örvunar og
eggjunar. í þetta sinn varð ég fyrir
valinu og verð að taka því með skáld-
legri ró þótt fátt sé mér þverara um
geð en opinber umfjöllun um mína
eigin persónu.
Þótt ég sé hér nú á stall settur má
ljóst vera að sá árangur í viðskiptum,
sem hér er verið að veita viðurkenn-
ingu fyrir, er ekkert eins manns verk.
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: BRAGI Þ.
Það er öllum fyrirtækjum, en þó ekki
síst ört vaxandi fyrirtækjum, lífs-
nauðsyn að hafa hæfum starfsmönn-
um á að skipa.
Óvenjumargt hæfileikafólk hefur
komið til starfa í fyrirtækjum okkar,
bæði innanlands og utan, og er það
vel. Annars hefði orðið lengri leið að
markmiðunum í vöruþróun og okkur
kannski fatast flugið í markaðssókn á
erlendum grundum."
TRYGGVIER SPJÓTSODDUR OKKAR EN
JAFNFRAMT SKJÖLDUR
„Mestur hluti framleiðsluvara okk-
ar er til útflutnings og helstu áherslur
JÓSEFSSON
okkar nú eru að byggja upp alþjóðlegt
dreifikerfi sem standist markaðsátök
á jafnt hefðbundnum svæðum sem
óhefðbundnum. Driffjöðurin og hug-
myndasmiðurinn að baki þessa átaks
er Tryggvi Sveinbjömsson, fram-
kvæmdastjóri Össurar, maður sem
löngu hefur sannað hæfni sína og er
enn að koma fólki á óvart.
Tryggvi er okkar spjótsoddur en
hann er jafnramt skjöldur okkar sem
vinnum við þróunina og þurfum
stundum ró og næði. Ég vil nota tæki-
færið til þess að þakka honum sam-
starfið hingað til. Einnig vil ég nota
tækifærið til að þakka öllu starfsfólki
okkar — og svo auðvitað eiginkonu
52