Frjáls verslun - 01.01.1996, Side 64
Rúmgóður. Peugeot Boxer er rúmgóður sendibíll. Hann er fáanlegur í
tveimur lengdum og tveimur hæðum.
Rennilegur. Peugeot Boxer er rennilegur sendibíll.
Hann hefur injög öfluga dísilvél.
Peugeot Boxer:
Sendibíll ársins þegar
bann hom á marhab
„Þegar Peugeot Boxer var kynntur fyrst, síðla árs 1994,
var hann kjörinn sendibíll ársins í Evrópu það árið. Boxer
er fáanlegur sem heíðbundinn sendibíll, í þremur
stærðum, með eða án fjórhjóladrifs, og einnig sem
grindarbíll, vörubíll eða sem svokallaður minibus sem
hentar sérlega vel til fólksflutninga. Peugeot Boxer hefur
selst vel eftir að við kynntum hann. Hann varð fyrir valinu
í síðasta ríkisútboði og festi Póstur og sími kaup á
nokkrum bílum. Þá hefur Hitaveita Suðurnesja keypt
nokkra sem og sendibílstjórar og önnur fyrirtæki."
Boxer er fáanlegur í tveimur lengdum og tveimur
hæðum. Hver og einn getur því valið sinn bíl eftir þörfum.
Bíllinn er vel útbúinn. Það er hiti í framsætum og öku-
mannsumhverfið er hannað eins og í fólksbíl. Flutnings-
geta Boxer er frá 1,5 tonnum og flutningsrými getur verið
allt að 12 rúmmetrum.
„Peugeot Boxer er fáanlegur í tugum útfærslna, allt eftir
þörfum kaupandans. Hans stærsti kostur er lág hleðslu-
hæð. Hurðir opnast vel. Hugsað er um vinnuumhverfi bíl-
Peugeot 306:
Fyrir sölumenn
Við höfum selt þann minnsta, Peugeot 306, sem
sölumannsbíl í vaskútfærslu. Hann kemur vel út og það
er mjög hagkvæmt að reka hann. Hann er handhægur en
vel útbúinn; með samlæsingum, upphituðum sætum og
loftpúða í stýri. Innra rými er mjög gott miðað við stærð.“
stjórans, hvort sem er í akstri eða við hleðslu,“ segir
Sigurður.
„Boxer er allt í senn sendibíll, fólksbíll, grindarbíll,
vörubíll og vinnuflokkabíll. Hann hefur mjög öfluga dísil-
vél en Peugeot er einn stærsti framleiðandi dísilvéla í
heimi og stærstur í framleiðslu dísilvéla í fólksbíla. Aðrir
framleiðendur hafa sett Peugeot-vélina í sína bíla í stað
þess að eyða fé og tíma í eigin hönnun,“ segir Sigurður.
Dodge Rain er hinn öruggi og sterlíi amerísld sendibíll. Verksmiðj-
umar í Bandarílíjunum hafa ekld annað eftirspurn eftir bílnum.
Dodge Ram: Hinn sterki
ameríski sendibíll
„Dodge Ram Van er hinn öruggi og sterki ameríski
sendibíll enda eru Ram bílarnir þekktir fyrir styrk og
þægindi. Jöfur var lægstur í ríkisútboði nýverið en
fyrirhugað er að festa kaup á þessum bílum fyrir lögregl-
una. Hægt er að fá Dodge Ram Van með 8 cyl 318 eða 360
bensínvélinni. Einnig er hann fáanlegur sem 12 eða 15
manna fólksbíll. Hann er fáanlegur í þremur lengdum og
mörgum útfærslum. Sömu eiginleikar prýða hann og pall-
bílinn. Verksmiðjurnar í Bandaríkjunum hafa ekki annað
eftirspurn á heimamarkaði og því höfum við átt í
erfiðleikum með að anna eftirspurn hérlendis. Það sýnir
hvað bíllinn er vinsæll og vel kynntur í sínu heimalandi,“
segir Sigurður Kr. Björnsson, markaðsstjóri Jöfurs.