Frjáls verslun - 01.01.1996, Síða 65
Skoda Felicia er álitlegur bíll
fyrir fjölskyldur, sölumenn
eða til flutninga.
Skoda er nýr bíll frá grunni
eftir að Volltswagen eignaðist
meirihluta í verksmiðjunum.
„Nú getum við boðið Skoda Felicia sem virðisaukabíl.
Skoda Felicia er nýr bíll frá grunni eftir að Volkswagen
eignaðist meirihluta í fýrirtækinu. Felicia hefur fengið
mjög góða dóma og komið vel út úr árekstursprófunum.
Þrátt fyrir aukin gæði er bíllinn enn seldur á góðu verði.
Því er Skoda Felicia mjög álitlegur bíll fyrir fyrirtæki sem
minni vaskbíll fyrir sölumenn eða til flutninga. Gæðin eru
fyllilega sambærileg við asíska og aðra evrópska bíla.
Menn eru mikið að hagræða í rekstri og þar er Skoda
kostur sem við hvetjum stjórnendur fyrirtækja til að velta
alvarlega fyrir sér. Við teljum að ekki sé liægt að gera
hagstæðari kaup sé tekið tillit til gæða og hins lága verðs.
A næstunni munum við kynna sendibíla- og pallbílsútgáfu
þessa bíls. Síðar í vor kemur Felicia Plus sem er
upphækkuð sendibílaútfærsla með meira rými,“ segir
Sigurður Kr. Björnsson, markaðsstjóri Jöfurs hf. Hann
segir að Skoda sé mikið keyptur af verktökum og iðnaðar-
mönnum og sem sendlabíll í stærri fyrirtæki. Verð Skoda
Felicia er frá 681.000 kr. án vsk en skutbíllinn, Felicia
Combi, kostar frá 777.000 kr. án vsk.
Dodge Ram er núna einn vinsælasti pallbíllinn. Hann er fáanlegur
með einni frægustu og þrautreyndustu dísilvél sem völ er á.
Dodge Ram
er pallbillinn
„Dodge Ram pickup er einn vinsælasti pallbíllinn í dag.
Þetta er bíll fyrir þá sem þurfa sterkan vinnuþjark sem
hefur líka þann lúxus sem kröfuharðir kaupendur vilja
ekki vera án. Hægt er að framleiða Dodge Ram eftir þörf-
um hvers og eins og fá bílinn sem grindarbíl og með tvö-
föld hjól að aftan en þannig útbúnir henta þeir sérlega vel.
Dodge Ram er til dæmis hentugur fyrir fiskflutninga, en
við höfum selt nokkrum í þeirri atvinnugrein bílinn. Hann
er fáanlegur með íjórhjóladrifi. Líkt og með Boxerinn er
hann fáanlegur í mörgum útfærslum. Til dæmis með
sturtu, eða sem gámaflutningabíll eða með vinnupöllum.
Hann er fáanlegur með 8 cyl 318 eða 360 vél og eða V10 8
lítra 300 hestafla bensínvél. Þá fæst bíllinn með einni fræg-
ustu og þrautreyndustu dísilvél sem völ er á, 5.9 lítra
Cummins með forþjöppu (turbo) og millikæli (intercool-
er). Þegar reynir á kraft og afl er ljóst að þessi bíll er sá
rétti. Bíllinn getur verið með rými fyrir 3 eða 6 mann-
eskjur í stýrishúsi fyrir framan pall,“ segir Sigurður.
Staðalbúnaður í Dodge Ram bifreiðum er m.a. ABS-
bremsur að aftan, líknarbelgur, vökvastýri og útvarp.
Einfaldasta útfærsla kostar 2.215.000 með vsk.
Fjórhjóladrifinn kostar Dodge Ram frá 2.550.000 með
vaski og fjórhjóladrifinn dísilbíll er á verði frá 2.995.000
með vaski. Öllum bílum fylgir 7 ára ábyrgð á verk-
smiðjuryðvörn.
Jöfur fagnar 50 árum
Jöfur hf. í Kópavogi stendur á merkum tímamótum. Nú
eru liðin 50 ár frá stofnun fyrirtækisins. Það var árið 1946
að stofnað var fyrirtæki um innflutning á fyrstu Skoda
bifreiðunum til landsins. Árið 1976 var nafninu breytt í
Jöfur hf. og nú hefur fyrirtækið umboð fyrir Skoda,
Peugeot og Chrysler bifreiðar. Þá flytur Jöfur einnig inn
hjólbarða fyrir bíla og önnur farartæki og má nefna merki
eins og Cooper, Firestone, Barum og Colway.
jöruR
Nýbýlavegi 4. Sími: 554 2600