Frjáls verslun - 01.01.1996, Síða 74
Af kjöti ber helst á
kjúklingum og
svínakjöti. Krydd-
ið er karninn í
thailenskri matar-
gerð.
THAIHUSIÐ HEFUR
ALGERA SÉRSTÖÐU
Qæland hefur nú í hart nær 20 ár
verið vinsælasta ferðamanna-
land Asíu. Æ fleiri íslendingar
eru farnir að venja komur sínar þang-
að, enda bjóðast nú orðið hagstæð
fargjöld til Tælands. Tæland er stór-
kostlegt ferðamannaland — öll þjón-
usta við ferðamenn er sérlega góð —
hreinar strendur og frábær hótel.
Tæland er gróið og gamalt menning-
arland sem auðvelt er að kynnast.
Homsteinn alls þjóðlífs og menningar
er Búddhismi, umburðarlynd en dul-
úðug trúarbrögð sem samofin eru lífi
fólksins. Hér á Vesturlöndum hefur
mikið verið gert úr skuggahliðum tai-
lensks ferðaiðnaðar. Vesturlanda-
búar hneykslast á vændi og öðru mis-
jöfnu sem ferðamennirnir sjá. Vændi,
fikniefnaneysla og glæpir eru ekki al-
gengari í Tælandi en í mörgum öðrum
ferðamannalöndum. Arkitektar
vændisins í Tælandi eru ekki ósjaldan
Vesturlandabúar — en það er nú önn-
ur saga.
Sigmar B.
Hauksson skrifar
reglulega um þekkta
erlenda bisness-
veitingastaði i
Frjálsa verslun.
Tæland er 513.000 ferkílómetrar
að stærð og íbúamir em rúmar 60
miljónir. Höfuðborgin Bangkok, sem
stundum er kölluð París Asíu, stend-
ur á bökkum Chao Phraya árinnar og
eru íbúarnir sex miljónir. Tæland er
konungsríki og heitir konungurinn,
sem nú ríkir því virðulega nafni, hans
konunglega hátign Bhumibol Adu-
lyads. Hann er ákaflega vinsæll og
dáður.
Tæland er fyrst og fremst landbún-
aðarland, enda skilyrði til akuryrkju
frábærlega góð. Um 80% þjóðarinnar
starfar því enn að landbúnaði. Hag-
vöxtur hefur stöðugt aukist. Fram-
leiðsluaukningin 1995 var 8,6%.
Mestur hefur vöxturinn verið í iðnaði
eða 12,3% 1995 og í landbúnaði hefur
framleiðsluaukningin verið 3%.
Aukning innan ferðageirans var
6,7%. Atvinnuleysið er eitt hið
lægsta í Asíu eða 3% árið 1994. Tæ-
lendingar búast við töluverðum sam-
drætti í landbúnaði þó svo að fram-
leiðslan muni stöðugt aukast fram til
aldamóta. Búist er við að mikil aukn-
ing muni verða í iðnaði á næstu ámm.
Tælensk matargerð er mjög sér-
stök. Hún er skyld bæði þeirri kín-
versku og indversku. Megin uppi-
staða matarins er grænmeti og fiskur
úr sjó og hinum fjölmörgu ám. Þá er
skelfiskur ákaflega vinsæll. Af kjöti
ber helst á kjúklingum og svínakjöti
en kjöt er þó frekar sparlega notað.
Það, sem er svo sérstakt í tælenskri
matargerð, er hvernig maturinn er
kryddaður. Notaðar em ýmiskonar
kryddblöndur og þá helst ýmsar teg-
undir af karrí, chílepipar og hvítlauk
og er þá fátt eitt talið. Einkennandi
bragð er súrt, sætt og milt pipar-
bragð. Tælenskur matur er mjög
hollur en helsti gallinn við hann er
hvað það tekur langan tíma að útbúa
suma réttina.
Stóra spumingin fyrir alla þá Vest-
urlandabúa sem heimsækja Asíu er
hvort þeir kynnist þjóðinni í Iandinu
þegar dvalist er á vestrænu lúxushót-
eli og horft á skrautsýningar sem ætl-
aðar eru erlendum ferðamönnum.
Þessari spumingu verður ekki svarað
hér, lesandi góður. Ég vil hinsvegar
nota tækifærið og benda þér á stað
sem hefur algjöra sérstöðu og þar
sem gefst gott tækifæri til að kynnast
hinu sanna Tælandi. Þessi staður
heitir Thai House og er rétt fyrir utan
Bangkok. Thai House er eiginlega
bændagisting eða bed and breakfast.
Húsið er í klassískum stíl, smíðað úr
tekki og stendur á árbakka. Það eru
hjón sem reka húsið og búa gestimir
með fjölskyldunni. Hjónin eru mjög
fróð um land sitt og þjóð og tala bæði
ljómandi ensku. Fyrir þá sem vilja er
boðið upp á einkakennslu í tailenskri
matargerð. Þá bjóða þau styttri ferðir
um nágrennið. Thai House er rétt
fyrir utan Bangkok, eins og áður
sagði, og fer maður þangað með báti
og tekur leiðin um það bil klukkutíma,
siglt er um síki og skurði. Herbergin
eru einföld en þægileg. Það, sem
mest er þó um vert, er að þarna gefst
fólki kostur á að kynnast Tælandi,
siðum og venjum, betur en á flestum
ef ekki öllum ferðamannastöðum.
Auk þess er ódýrt að dvelja á þessum
óvenjulega en heillandi stað, The
Thai House.
The Thai House
(Reservation office)
22 Pra — Athit Road.
Bangkok 10200.
Sími: 2800740 - 41.
Fax: 2800741.
74