Frjáls verslun - 01.09.1998, Síða 16
TIL HANS ER LEITAÐ ÚR ÖLLUM ÁTTUM!
Hann er núna með herferð fyrir
útgerðarmenn. Hann var
ímyndarfræðingur Ólafs Ragnars
Grímssonar í forsetakosningunum
og R-listans sl. vor. Hann vinnur fyrir
Kára Stefánsson sem og Eimskip og
Sjóvá-Almennar. Hann var maðurinn á
bak við málfarsátak Mjólkursamsölunnar,
íslenska er okkar mál. Og sagt er að á
bak við slagorðið „Mjólk er góð” hafi
legið um 230 stunda vinna vinnuhóps
hans.
TEXTI: Páll Ásgeir Ásgeirsson
MYNDIR: Geir Ólafsson
vörutegundir og varla þarf að rekja árang-
urinn. Ólafur Ragnar er vinsæll forseti, R-
listinn gjörsigraði í Reykjavík og sumum er
farið að þykja vænt um útvegsmenn. Að
sjálfsögðu drekka allir mjólk.
KÓPAVOGUR OG STJÁNIBLÁI
Gunnar Steinn Pálsson er fæddur í
Kópavogi á aðventunni 1954, nánar tiltekið
11. desember. Það þýðir að hann er í merki
Bogmannsins. Himnarýnar fullyrða að
Bogmaðurinn sé sannleikselskandi lífs-
kúnstner og sælkeri með víðan sjóndeild-
arhring sem hafi tilhneigingu til að segja
sannleikann
ann heitir Gunnar Steinn Pálsson,
er tæpra 44 ára og þykir óumdeilt
einn slyngasti ímyndarfræðingur
landsins. Afrekaskrá hans er löng og þær
eru orðnar margar vörutegundirnar sem
hann hefur sannfært þjóðina um að hún
ætti að taka fram yfir aðrar. Gunnar Steinn
hefur starfað í auglýsingagerð og ráðgjöf
við markaðsmál allt frá árinu 1979 eða í um
20 ár. Meðal þess sem hann hefur selt okk-
ur er mjólk og mjólkurvörur með vígorðið
„Mjólk er góð” í fylkingarbijósti.
Gunnar Steinn átti einnig hugmyndina
að íslenskuábendingum á mjólkurfernum
og raunar viðtækum stuðningi Mjólkur-
samsölunnar við íslenskt mál. Gunnar var
ráðgjafi og auglýsingastjóri fyrir forseta-
framboð Ólafs Ragnars Grímssonar síðast
þegar forseti var valinn. Gunnar var ráð-
gjafi R-listans í Reykjavík fyrir síðustu
kosningar til borgarstjórnar. Síðasta stór-
verkefiiið sem Gunnar hefur tekið að sér
er að kynna og halda fram málstað Land-
sambands íslenskra útvegsmanna. Flestir
hafa áreiðanlega tekið eftir opnuauglýsing-
um í Morgunblaðinu að undanförnu þar
sem landsmenn eru minntir á þá um-
hyggju og alúð sem íslenskir útvegsmenn
bera til auðlindarinnar í hafinu. Þeir bjóða
landsmenn velkomna um borð í skip sín og
minna á það í leiðinni að með hlutabréfa-
kaupum geti allir landsmenn eignast auð-
lindina. Þessi herferð hefur verið tæp tvö
ár í undirbúningi og vinnslu. Þannig má
segja að Gunnar Steinn hafi hin síðari ár
talsvert fengist við að selja landsmönnum
hugmyndir frekar en
óumbeðinn. Þarna fari tilvalinn leiðsögu-
maður sem mætti temja sér meiri virðingu
fyrir mannasiðum.
Afmælisdagur Gunnars er merkilegur
fyrir ýmissa hluta sakir. Þennan dag árið
1930 flugust verkamenn og lögreglumenn
á í Garnastöð SÍS þegar tímakaup verka-
kvenna var lækkað. Þessi atburður er kall-
aður Garnaslagurinn og er meðal merkis-
atburða íslenskrar verkalýðsbaráttu. Þenn-
an sama dag árið 1975 flaugst síðan ís-
lenska Landhelgisgæslan á við breska
dráttarbáta í mynni Seyðisfjarðar og var
skipst á föstum skotum. Þetta voru lalin al-
varlegustu átök þess þorskastríðs og fund-
ar krafist í fastaráði NATO um yfirgang og
valdníðslu Breta.
Gunnar deilir afmælisdegi sínum með
sjóhetjunni Stjána bláa, eða Kristjáni
Sveinssyni, og rithöfundunum Auði Har-
alds og Fríðu Á Sigurðardóttur. Gunnar
Steinn er næstelstur íjögurra systkina.
Foreldrar hans eru Páll Bjarnason prent-
ari, f. 1926, og Sólveig Jónsdóttir, f. 1930.
Föðurætt Gunnars er úr Reykjavík og af
Reykjanesi en móðurættin er ofan úr Mos-
fellsveit, frá Úlfarsá og Víðinesi, og austan
frá Kröggólfsstöðum í Ölfusi. Gunnar ólst
upp í Kópavogi, við Digranesveginn, á
sjötta og sjöunda áratugnum þegar Kópa-
vogur var að breytast úr strjálu hverfi sum-
arbústaða og þurrabúða í sjálfstætt bæjar-
félag sem í dag verður ekki greint frá út-
hverfum Reykjavíkur. Systkinin urðu fjög-
ur. Elst er Jóna, f. 1951, áfangastjóri við
Menntaskólann í Kópavogi, þá Gunnar,
svo Þórunn tölvunarfræðingur, f. 1960, og
loks Páll Ari verkamaður, f. 1963, en hann
Gunnar Steinn Pálsson er
En kunnust er líklegast
lést fyrr á þessu ári. Faðir Gunnars er
prentari. Hann var m.a. framkvæmdastjóri
fyrstu offsetprentsmiðju landsins, Litho-
prents, en söðlaði um og hefur síðustu ára-
tugina rekið litla prentsmiðju í bílskúrnum
á Digranesvegi. Þar fékk Gunnar Steinn að
hjálpa til á gömlum handrokki og prentaði
16