Frjáls verslun - 01.09.1998, Qupperneq 19
NÆRMYND
Gunnar sþilar fótbolta á sunnudagsmorgnum með félagi sem kallar sig Sunday United. Hér
eru sveittir félagar samankomnir á mynd. Efri röð frá vinstri: Páll Gunnlaugsson, Helgi Jó-
hannsson, Þórður Sverrisson, Stefán Olafsson, Gylfi Arnason og Gunnar Steinn Pálsson. Neðri
röð frá vinstri: Sigtryggur Sigtryggsson, Ingi Valur Jóhannsson, Guðmundur Magnússon, Har-
aldur Sigurðsson og Bergur Dan Gunnarsson.
hann oft að berjast hart fyrir stefnu sinni
og halda aftur af baráttumönnum í hópn-
um sem gjarnan vildu ganga í slaginn. Þeg-
ar spurt er urn stjórnmálaskoðanir Gunn-
ars segja þeir sem þekkja hann vel að hann
hafi alist upp við vinstri sinnaðar skoðanir
og hafi ekki gleymt þeim grundvallarhug-
sjónum sem þar liggja að baki. Hann hafi
hinsvegar áttað sig á því að slíkar hugsjón-
ir eru ekki heppilegar í fyrirtækjarekstri
sem hefur orðið til þess að margir segja að
hann sé kapítalisti í dulargervi. Síðast er
vitað af Gunnari í beinni þátttöku í starfi
stjórnmálaflokks innan Alþýðubandalags-
ins í Kópavogi á miðjum áttunda áratugn-
um.
GLAÐVÆRÐ OG GAGNRÝNI
Gunnar er sagður mjög líflegur og glað-
lyndur í samskiptum við samstarfsfólk sitt
og hann á mjög gott með að láta fólk vinna
af áhuga og metnaði. Maður sem þekkir
hann vel segir að enginn standi honum á
sporði í mannlegum samskiptum og hann
hafi einhveija þá útgeislun að það sé aldrei
dauf stund ef hann sé á annað borð við-
staddur. Sá sami segir að einn dýrmætastí
hæfileiki Gunnars sé nátengdur þessu,
nefnilega sá að geta sagt mönnum tíl synd-
anna og gagnrýnt þá án þess að þeir móðg-
ist. Hann kann að ávíta í skjóli glaðværðar.
Þeir sem þekkja hann hrósa honum einnig
Láttu okkur um að skipuleggja
og halda fyrir þig ráðstefnuna
Við höfum varia gert annað síðustu tíu árin
í erli og hraða nútímans þar sem tíminn er
dýrmætur er æ meiri þörfú að leggja áherslu á
skipulagningu og góðan undirbúning verkefna.
Það á ekki síst við um fundi og ráðstefnur þar sem
árangur veltur á undirbúningi og markvissum
vinnubrögðum.
Við hjá Ráðstefnum og fundum veitum sérhæfða
þjónustu við skipulagningu og framkvæmd hvers
kyns funda og ráðstefna, smárra jafnt sem stórra.
Við leggjum metnað okkar í fagmannleg vinnubrögð
og lipra og skjóta þjónustu. A undanfömum tíu árum
höfum við séð um að halda fjölmörg þing m.a.
læknaþing og fundi fyrirýmis erlend stórfyrirtæki
svo sem IBM, Ford, Wella og tjölda lyfjafyrirtækja.
Ráðstefnur ogfundir ehf
Iceland Incentives Ine
Hamraborg 1-3 • 1200 Kópavogur • Sími 554 1400 • Fax 554 1472 • Netfang: incentiv@itn.is
19