Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1998, Qupperneq 20

Frjáls verslun - 01.09.1998, Qupperneq 20
fyrir hreinskiptni í samskiptum og það hve óragur hann sé að halda skoðunum sínum íram. Helstu, og jafnframt elstu, samstarfs- menn Gunnars og hugmyndasmiðir í GSP almannatengslum eru tveir. Annar er Þor- valdur Sverrisson en íyrir þá sem hafa áhuga á ættfræði er hann sonur Guðrúnar Helgadóttur rithöfundar og Sverris Hólmarssonar. Hinn er Anton Helgi Jóns- son, ljóðskáld og hugsuður, en fyrir ætt- fróða þá er hann hálfbróðir Finnboga Jóns- sonar, forstjóra Síldarvinnslunnar. Ekki má gleyma Einari Karli Haralds- syni sem er mikill samstarfsmaður hans og vinur þótt hann reki sitt eigið fyrirtæki, Innform. Hann og Gunnar hafa unnið sam- an síðan á Þjóðviljanum í gamla daga. MJÓLKOG PÓLITÍK Það er sagt að Gunnar sé vandfysinn á verkefni og taki ekki allt sem býðst. Hann vill helst vinna að almannatengslum fyrir fyrirtæki sem skilgreina almannatengsl sem forgangsverkefni sem tryggir það að hann vinni náið með þeim sem ráða. Hann tekur síður að sér verkefni sem fela í sér ráðagerðir með undirtyllum sem síðan aldrei ná að verða að veruleika. Hann vill hvísla í eyra þeirra sem eiga síðasta orðið. Orðsporið sem fer af Gunnari sem ráð- gjafa og „gúrú“ í auglýsingamennsku hef- ur orðið tíl þess að til GSP leita mjög mörg fyrirtæki sem eru í flókinni stöðu gagn- vart almenningi og er annt um ímynd sína. Stundum er ráðgjafastarfið þess eðlis að almenningur sér það alls ekki heldur sér aðeins það sem hann á að sjá og þá vinnur Gunnar Steinn ráðgjafarstörf „baksviðs“ eins og kostur er. Að undanförnu hefur þó fjölgað ört þeim viðskiptavinum sem telj- ast tíl venjulegra, en vandfysinna, auglýs- ingastofukúnna. Meðal fastra viðskipta- vina GSP-almannatengsla má nefna Ræsi, Samvinnuferðir-Landsýn, Mjólkursamsöl- una, Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins, Kaupþing, SPRON, Landsamband ís- lenskra útvegsmanna og Islenska erfða- greiningu. Að auki tengist GSP alls kyns skammtímaverkefnum. Ur pólitíkinni má nefna R-listann síðastliðið vor og nú síðast hefur frést að Gunnar Steinn hyggist að- stoða nafna sinn og nágranna í Kópavogi, Gunnar I. Birgisson, í prófkjörsslag sjálf- stæðismanna í Reykjaneskjördæmi og hjálpa Siglfirðingum að fá jarðgöng heim í hérað. KONAN OG BÖRNIN Gunnar er kvæntur Lilju Magnúsdóttur ÁRANGURINN Þannig má segja að Gunnar Steinn hafi hin síðari ár talsvert fengist við að selja landsmönnum hugmyndir frekar en vöru- tegundir og varla þarf að rekja árangur- inn. Ólafur Ragnar er vinsæll forseti, R- listinn gjörsigraði í Reykjavík og mörgum er farið að þykja vænt um útvegsmenn. Að sjálfsögðu drekka allir mjólk. húsmóður sem er f. 1. apríl 1956. Lilja er dóttír Bergþóru Þorbergsdóttur og Magn- úsar Helga Kristjánssonar skrifstofu- manns en Magnús er ættaður frá Isafirði og úr Bolungarvík. Systir Magnúsar, Halla, sem nú er látín, var gift Jónatan Ein- arssyni í Bolungarvík. Gunnar og Iilja búa við Reynigrund í Kópavogi ásamt þremur sonum sínum. Þeir eru: Gylfi Steinn, f. 1974, Magnús Páll, f. 1980 og Bergur Dan, f. 1986. Þau eiga jafnframt nokkra hesta og íslenskan hund og á sumrin stunda þau út- reiðar og letilíf í litlum sumarbústað í Krísuvík þar sem hestamenn úr Hafnar- firði og víðar hafa aðstöðu fyrir hesta sína. Krísuvik er í örskotsfæri frá borginni og á góðviðrisdögum heldur íjölskyldan gjarn- an tíl í bústaðnum en skýst tíl vinnu eftír því sem á þarf að halda. EMBÆTTI0G ÝMIS STÖRF Gunnar hefur um langt skeið starfað að félagsmálum í hestamannafélaginu Sörla, einkum sem formaður Krísuvíkurnefndar félagsins, auk þess sem hann er gjarnan fenginn til að stýra fundum og mannfagn- aði þegar hestamenn gera sér glaðan dag. Gunnar hefur reyndar alltaf verið virkur í félagsmálastarfi. Hann var forseti mál- fundafélagsins Framtíðarinnar í Mennta- skólanum í Reykjavík og strax á skólaár- um tók hann öflugan þátt í félagsmálastörf- um hjá ungmennafélaginu Breiðabliki í Kópavogi. Hann sat m.a. í aðalstjórn félags- ins um átta ára skeið þegar hin glæsilega aðstaða félagsins í Smáranum í Kópavogi var byggð upp, var einn af forsprökkunum að stofnun samtakanna Líf í Fossvogsdal ÍMYNDIN Hann vill sýnast lítillátur en barnsleg gleöi hans yfir unnum afrekum og velgengni þeirri sem hann nýtur kemur í veg fyrir aö þaö takist. Hann er glaölegur í fasi en á bak við gleraugun leynist harður markaðsrefur. sem börðust gegn lagningu hraðbrautar um dalinn og var sömuleiðis virkur við stjórnun Sambands íslenskra auglýsinga- stofa á meðan hann var félagsmaður þar. Þá var hann og um skeið formaður Evr- ópudeildar alþjóðlegu auglýsingasamtak- anna 3AI, sem nú heita Worldwide Partners, og í kjölfar þess varð hann annar Evrópubúinn í yfir 60 ára sögu samtakanna sem kosinn var alþjóðlegur formaður þeirra fyrir nokkrum árum. Gunnar Steinn hefur nú tekið við af Hvíta húsinu sem full- trúi Islands I þeim samtökum og þykir það staðfesta það að hann hafi á nýjan leik sett stefnuna af fullum krafti á auglýsingastofu- rekstur. HESTAR 0G FÓTBOLTI Ásamt hestamennskunni er það þó ör- ugglega fótboltínn sem tekur mest af frí- tíma Gunnars Steins. Hann hefur lengi haft áhuga á íþróttum og tekið virkan þátt í starfsemi Breiðabliks í Kópavogi með því að sitja í ráðum og nefndum fyrir félagið og síðast en ekki síst með því að mæta alltaf á völlinn og hvetja sína menn. Hans menn eru að hluta tíl synir hans sem hafa æft og keppt í fótbolta með Breiðabliki en það er ekki síður hugsjón Gunnars að hans gamla félagi gangi vel. Gunnar tók þátt í að stofna knattspyrnufélagið Augnablik sem er nokkurs konar „old boys“ innan Breiða- bliks og átti margan stórleikinn þar. Gunn- ar rifjar reyndar gjarnan upp þá sögu að einungis einu sinni hafi verið skrifað í dag- blað um frammistöðu hans í knattspyrnu- leik og þá hafi það verið nefnt sérstaklega að hann hafi verið „eins og klettur í fram- línunni" en það er nokkuð sem framherjar vilja helst ekki fá á sig! Segja má að tómstundaiðkan Gunnars sé nokkuð fjölþætt. Hann hefúr nokkuð mörg áhugamál og reynir að sinna þeim eftir megni. Þrennt tekur mestan tíma hans. Eitt er fótbolti, annað hestamennska og þriðja bridge. Hestamennskuna stund- ar Gunnar með því að eiga hross og vera félagi í Sörla. Hann stundar hana af áhuga og fer stundum í hestaferðir með kunningj- um sínum. Helstí vinur hans og félagi í hestamennskunni er Valdimar Harðarson innanhússarkitekt auk félaga hans í Krísu- vík þar sem hann eyðir m.a. löngum tíma í grilltílraunir með Magnúsi Flygenring og fleiri Hafnfirðingum. Gunnar státar af óvenjulegu Islands- meti í hestamennsku en hann sigraði árið 1991 í tveggja daga þolreið tíl Þingvalla á smáhestinum Fabio á tíma sem enn hefur 20
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.