Frjáls verslun - 01.09.1998, Side 21
NÆRMYND
ekki verið bættur. Auk þess að bregða á
leik með sonum sínum rækir Gunnar fót-
boltann íyrst og fremst með knattspyrnu-
klúbbnum Sunday United sem leikur á
hveijum sunnudagsmorgni við Atthagafé-
lag Keflavíkur í Kaplakrika. Þessi heið hef-
ur haldist í 18 ár og þarna hafa mynd-
ast vinabönd sem eru mikil og
sterk. Meðal fastagesta á sunnu-
dögum í Kaplakrikanum má nefna
Valdimar Harðarson arkitekt,
kollega hans Pál Gunnlaugsson,
Helga Jóhannsson, forstjóra SL, og
Eystein Helgason, forstjóra Plast-
prent. Þarna koma einnig Þórður
Sverrisson hjá Eimskip, Gylfi Arna-
son, markaðsstjóri Opinna Kerfa,
Sigtryggur Sigtryggsson, fréttastjóri
á Morgunblaðinu, Olafur Jónsson,
upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborg-
ar, Stefán Olafsson prófessor, Guð-
mundur Magnússon flugstjóri, Hann-
es Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Securitas, Ingi Valur Jóhannesson í fé-
lagsmálaráðuneytinu og Haraldur Sig-
urðsson augnlæknir.
BRIDGE OG LAXVEIÐAR
Bridge spilar Gunnar yfir veturinn í
föstum hópi æskufélaga úr Kópavogin-
um og hefur sá félagsskapur starfað um
sex ára skeið. Þar eru auk Gunnars þeir
Hörður Sigurðarson, sem á og rekur út-
gáfúfyrirtækið Ritu, Sveinn Skúlason,
sölustjóri hjá Glaxo, og Gunnlaugur
Helgason símvirki. Gunnari er lýst svo
sem spilamanni að hann sé keppnismað-
ur mikill sem taki áhættu þegar hann get-
ur. Bridgehópurinn fer einu sinni á ári
saman i laxveiðar austur í Iðu í Biskups-
tungum en Gunnar tekur ekki sérlega
virkan þátt í veiðunum en stendur frekar
við eldavélina og grillið þegar aflinn kem-
ur í hús.
Gunnar hefur veitt einn lax á ævinni og
það gerðist sumarið eftir fermingu í ánni
við túnfótinn í Vesturhópshólum í Húna-
þingi þar sem hann var nokkur sumur í
sveit. Hann eignaðist veiðistöng fýrir ferm-
ingarpeningana og þrátt fyrir úrtölur
heimamanna lammaði hann sig niður að á
og veiddi sinn Maríufisk. Gunnar rennir
oft fyrir silung í Kleifarvatni með sonum
sínum en viðhorf hans til stangveiða er
frekar að skilgreina það sem fjölskyldu-
íþrótt en keppnisgrein.
Nánustu vinir Gunnars og sálufélagar
eru: Hörður Sigurðarson, Valdimar Harðar-
son og Eysteinn Helgason sem reynst hef-
ur honum hollur ráðgjafi í fýrirtækjarekstr-
inum á undanförnum árum. Rúnar Skarp-
héðinsson, sem verið hefur samstarfsmað-
ur Gunnars í yfir 20 ár, allt frá því Gunnar
réð hann til sín á auglýsingadeild Þjóðvilj-
ans, er einnig góður vinur
Gunnars Steins,
Sigurður Marinusson hestamaður á sömu-
leiðis trúnað hans og á síðustu árum hefur
náið samstarf hans við Einar Karl Haralds-
son lagt grunn að góðri vináttu.
INNAN 0G UTAN
Gunnar er maður í lágu meðallagi, frek-
ar þybbinn og þéttvaxinn. Hann er
brosmildur og rólegur í framkomu og hef-
ur oft gamanmál á hraðbergi og er talinn
mikill húmoristi. Hann klæðir sig frjálslega
og virkar mjög afslappaður. Hann hefur
sennilega verið ljóshærður en er nær alveg
sköllóttur og gengur með gleraugu. Þeir
sem þekkja Gunnar vel segja að glaðlegt
yfirbragðið hylji sérvitran einfara sem ekki
láti alltaf uppi hvað hann er að hugsa. Bæði
vinum og óvinum Gunnars ber saman um
að hann sé mikill „plottari" sem kallað er.
Hann vill sjá fýrir hvað muni gerast og
reyna að hafa áhrif á það. Þótt Gunnar hafi
ekki aflað sér neinnar menntunar umfram
stúdentspróf ber öllum saman um að hann
sé vel gefinn en sjái stundum eftir því að
hafa ekki lært meira.
Einkum nefna menn hæfileika hans til
að tileinka sér hluti, setja sig inn í mál á
skömmum tíma og gott minni. Þeg-
ar við þetta er bætt góðri íslensku-
kunnáttu og ágætu auga fyrir útlitd
og hönnun verður til slyngur mark-
aðsmaður.
Gunnar er sagður mikill fjöl-
skyldumaður og hann hefur gam-
an af því að umgangast börn.
Hann hefur sjálfur varðveitt í sér
barnið og á köflum er framkoma
hans dálítið bernsk. Hann sækir
oft í einveru og fer í langar
gönguferðir einn með hundin-
um Fána og honum líður vel
einum í löngum útreiðartúrum.
Gunnar er ekki bindindismað-
ur og hefúr gaman af því að
lyfta glasi með vinum sínum
þegar það á við. Þannig fer
hann stundum með spilafélög-
um sínum í billjarð með Und-
erberg í vasanum og þá er
lögð meiri áhersla á skemmt-
un en stigafjölda.
ÍMYNDIN
Þrátt fyrir að vera álitinn
fremstí „spin doctor“ í ís-
lenskum auglýsingaiðnaði
í dag vill Gunnar ekki
gangast upp í þeirri ímynd.
Þvert á móti segist hann fara einfaldar
leiðir í ráðgjöf sinni og forðast hvers kyns
baktjaldamakk og hundakúnstir sem
ekki tílheyra vönduðu og vel skipulögðu
kynningarstarfi. Hann gengst upp í því að
hafa einfaldan tónlistarsmekk, segist
helst hlusta á gamlar hefjur eins og Cliff
Richards og Abba og er enn að leita að
tíma tíl að lesa meira af gömlum meistur-
um á borð við Laxness og Þórberg. Enda
þótt hann geri lítíð úr hæfileikum sínum
þarf ekki að hlusta lengi á Gunnar Stein
tíl að skynja að þar fer skarpur náungi
sem er drifinn áfram af geysilegum metn-
aði og er allt annað en einfaldur. Hann vill
sýnast lítillátur en barnsleg gleði hans
yfir unnum afrekum og velgengni þeirri
sem hann nýtur kemur í veg fyrir að það
takist.
Þannig sýnir nærmyndin af Gunnari
Steini Pálssyni okkur mann sem getur sett
upp marga hatta en samt er það alltaf sami
maðurinn sem er undir hattínum. S9
lenskra útvegsmanna.
21