Frjáls verslun - 01.09.1998, Page 26
er. Ég var ráðinn til þessa fyrirtækis til að
stunda viðskipti."
Á AÐ SAMEINA KAUPFÉLÖG?
Hvernig tóku menn því þegar þú lýstir
þeirri skoðun þinni að affarasælt gæti ver-
ið að sameina nokkur kaupfélög?
„Þetta er hlutur sem menn hafa rætt sín
á milli í fullri alvöru og eru engin sérstök
nýmæli. Það eina sem ég gerði var að ræða
það opinskátt í víðlesnu blaði. Ég kynntist
því i starfi mínu í bankanum að kaupfélög-
in vinna að sama markmiði en oft er óþarfa
núningur milli þeirra.
Gott dæmi um þetta er þegar Hagkaup
opnaði verslun á Akureyri á sínum tíma.
KEA brást við samkeppninni með því að
opna KEA-Nettó. Sú samkeppni beindist
auðvitað í leiðinni gegn allri verslun á
Norðurlandi. Menn koma úr Þingeyjar-
sýslum og Skagafirði og lengra að til að
versla á Akureyri. Þannig eru kaupfélögin
komin í hörkusamkeppni sín á milli.
Ég er sannfærður um að það er hag-
kvæmt fyrir kaupfélögin á þessu svæði að
sameinast. Landafræði skiptir reyndar litlu
máli í þessu máli. Yegalengdir skipta orðið
engu máli. Það er jafnlangt frá Akureyri til
Reykjavíkur eins og frá Reykjavík til Akur-
eyrar. Þetta er meira að segja Oskar Magn-
ússon búinn að sjá.
Hvað varðar viðbrögðin þá kom mér
satt að segja nokkuð á óvart hve margir
túlkuðu þetta sem útþenslustefnu KEA en
sáu ekki að þetta eru bara viðskipti."
Nú hefur samvinnuhreyfingin á Islandi
látíð mjög undan síga hin seinni ár. Sam-
bandið heyrir sögunni til, kaupfélögum
fækkar og svo framvegis. Hver hefur orðið
þróun samvinnuhreyfingarinnar í ná-
grannalöndum okkar?
,Á Norðurlöndum eru menn að skoða
leiðir til að laga samvinnufélög að nútíma
verslunarrekstri og gera þau einfaldari
og ákvarðanatöku hraðari sem getur
skipt öllu máli í samkeppni. I Skotlandi
hefur saga og ferill samvinnuhreyfingar-
innar verið mjög lík því sem er hér á
landi.“
Er tími kaupfélaganna þá liðinn?
„I mínum huga eru þetta tveir hlutir.
Þetta er bara bisness og hann verður að
ganga. Það er í sjálfu sér einfalt. Ef það er
okkar niðurstaða að við verðum að breyta
eignarhaldi á kaupfélögunum og rekstar-
formi þeirra til þess að það gerist þá verð-
ur að gera það. Ef hægt er að láta þessi við-
skipti vaxa og dafna án þess þá þarf ekki að
breyta neinu í eignarhaldi." S9
Guðbrandur Sigurðsson stjórnar Útgerðarfélagi Akureyringa.
TEL AÐ VIÐ SEUM A RETTRILEIÐ!
/
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri UA, hefur breytt stefnu þessa aldna
flaggskips í átt til bættrar afkomu. Hagnaður fyrstu sex mánuðina var
192 milljónir!
uðbrandur Sigurðsson tók við
stjórntaumunum hjá Utgerðarfé-
lagi Akureyringa fyrir rúmum
tveimur árum. Hann hefur náð að breyta
stefnu þessa aldna flaggskips þannig að
það siglir í átt til bættrar afkomu og hagn-
aður fyrstu sex mánuða ársins er betri en
sést hefur áður. En Guðbrandur vill fá
betra leiði og telur að hagnaður geti orðið
enn meiri.
BESTA STJÓRNUNIN AÐ TREYSTA FÓLKI
Það er mín lífsskoðun að besta stjórnunaraðferðin sé að treysta fólki til þess að gera
það sem það er ráðið til þess að gera. Opið og gagnsætt kerfi þar sem upplýsinga-
fiæði er mikið styrkir fólk í því að allir séu að vinna að sameiginlegu markmiði.
26