Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1998, Page 28

Frjáls verslun - 01.09.1998, Page 28
Það er mín lífsskoðun að besta stjórn- unaraðferðin sé að treysta fólki til þess að gera það sem það er ráðið til þess að gera. Opið og gagnsætt kerfi þar sem upplýsingaflæði er mikið styrkir fólk í þvi að allir séu að vinna að sameiginlegu markmiði.“ STJÓRNUN ■■■■ að við erum í þann veginn að gera ákveðnar breytingar á hóplaunakerfinu þar sem það hefur sýnt sig að það er ekki nógu einfalt. Við ætlum að breyta svolítið viðmiðunum sem eru notuð. Bitavinnslan byggir í raun á því að ein- falda vinnu kaupandans hvort sem hann FÆKKAÐI UM 50 MANNS Það bónuskerfi sem þið notið, er það hið eina sinnar tegundar í fiskiðnaðin- um? Já, það má segja það en okkar kerfi er mjög líkt því sem er notað á Dalvík en þeirra vinnsla er heldur einfaldari. Snyrt- ÖNGÞVEITI Á MARKAÐNUM Þaö má heita að þessi viðskipti liggi niðri og algert öngþveiti ríki á markaðnum. Við verðum að bíða og sjá. Það er eini leikurinn í stöðunni. Almennt hef ég talið að viðskipti á Kvótaþingi yrðu til þess að lækka verð á kvótanum. Hlutverk Verðlagsstofu er svo yfir- gripsmikið að það ætti að vera nægilegt aðhald til þess að útgerðir séu ekki að svíkja og pretta starfsmenn sína til sjós. ENN MA GERA BETUR Hvernig var staðan þegar Guðbrandur tók við rekstrinum? „Hún var ekki nægilega góð en þetta fýrirtæki hafði sterka eiginfjárstöðu og átti mikinn kvóta. Fyrirtækið stóð alls ekki tæpt en reksturinn gekk illa. Sem dæmi má nefna að þegar ég kom inn undir árs- lok árið 1996 var veltufé frá rekstri aðeins 35 milljónir allt árið. Það var mikið fall frá ár- inu á undan. Þannig var staðan í raun verri en talið var. Það þurfti einfaldlega að bretta upp ermarnar og vinna í málinu.“ Eitt af því sem var breytt í frystihúsi UA á Akureyri var launakerfið. Þar er nú í notkun hóplaunakerfi sem er nokkurs konar sambland af einstaklings- bónus og hóplaunakerfi. Unnið er á tæplega tveimur vöktum í frystihúsi UA eða því sem kallað er ein og kvart vakt. Fyrri vaktin er frá sjö á morgnana til klukkan þrjú og sú síðari frá þrjú til sjö. „Okkar markmið var að ná upp afköstunum og auka framleiðni auk þess að sérgreina betur þær af- urðir sem UA er að framleiða. Þetta hefur tekist með því að við erum nú með mun meiri afköst í karfa og þorski en áður þrátt fýrir færri starfsmenn. Við teljum þó að enn sé hægt að gera betur. Markmið okkar í landvinnslunni er í raun mjög skýrt og einfalt. Við þurfum að ná sömu eða betri arðsemi en af því að vinna fiskinn úti á sjó, búa til meiri virðisauka. Ef það er ekki hægt þá flytjum við vinnsluna út á sjó. Við höfum náð mjög góðu samstarfi við verkalýðsfélagið Einingu og má nefna er veitingamaður eða einhver sem er að elda heima hjá sér. Stærsta afurðin hjá okkur í ár eru hnakkastykki úr þorski til- búin til neytenda. Þetta er framleitt að kröfum einstakra stórra kaupenda þar sem við höfum Guðbrandur telur að enn megi bæta árangur i náð góðu samstarfi sem gefur okkur færi á að koma með okkar eigin hugmyndir um ýmsa útfærslu á vörunni. Þannig getum við sett okkar mark á vöruna og greint hana frá öðrum á markaðnum." ingin í vinnslunni er flöskuhálsinn og þess vegna er stöðugt leitað leiða til þess að bæta hana. Þau hópbónuskerfi sem búin voru til með tilkomu flæðilinanna íyrir um 10 árum hafa ekki skil- að þeim árangri sem vonast var til og því eru margir að feta sig til baka aftur. Það hefur mjög margt breyst í vinnsl- unni síðan hópbónusinn var tekinn upp og vélvæðing auk- ist mjög.“ Breytingarnar í vinnsl- unni höfðu það í för með sér að starfsmönnum fækkaði um tæplega 50 hér og þar í vinnslunni. Slík verkefni finnst mörgum stjórnend- um erfið en Guðbrandur segir það ekki eiga við Ut- gerðarfélagið. „Það var í raun engu verkafólki sagt upp. Það er hefð fyrir því að fólk komi og fari og við ein- faldlega réðum ekki í stað þeirra sem hættu. Hinsvegar var sagt upp nokkrum millistjórn- endum en það fór fram í fullri sátt þótt það væri erfitt." Mun starfsfólki halda áfram að fækka á næstu árum? „Eg tel lítinn vafa á því að starfsfólki í fisk- vinnslu eigi eftir að fækka á næstu árum með aukinni tækni, ef til viil um helming. Við erum í sam- keppni við láglaunasvæði í heiminum og ef við náum ekki upp framleiðni og af- köstum kemur það niður á samkeppnis- stöðu okkar á erlendu mörkuðunum.“ 28

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.