Frjáls verslun - 01.09.1998, Qupperneq 37
FJARMAL
STÓRTÍÐINDIÁ ÍSLENSKA
SKULDABRÉFAMARKAÐNUM
En hvað með innlenda hlutabréfa-
markaðinn - þann sem stendur okkur
næstur?
Stórtíðindi eru að gerast á íslensk-
um skuidabréfamarkaði; vextir á lang-
tímaríkisskuldabréfum hafa lækkað
umtalsvert. I fyrsta skipti, nánast frá
því verðbréfamarkaðurinn tók til
starfa á íslandi, eru vextir á löngum
ríkisskuldabréfum að verða svipaðir
og þeir eru í nágrannalöndunum.
Bendir þetta ekki til þess að mark-
aðurinn sé að þroskast? Eða er rnikil
eftirspurn og lítið framboð að keyra
vextina niður? Sennilega er þetta
sambland af öllu þessu þrennu og
áhrifum erlendis frá.
ERLEND ÁHRIF ÆTTU AÐ VERA LÍTIL
Það eru nánast engir erlendir fyár-
festar á íslenska markaðnum. Þar af
leiðandi ættu áhrif frá erlendum
mörkuðum að vera hér takmarkaðri
en á öðrum mörkuðum. Vextir breyt-
ast væntalegan lítið næstu vikur, gætu
þó lækkað um 10-20 punkta til ára-
móta.
LAG TIL AÐ GREIÐA UPP
ÓHAGSTÆÐ LÁN
Stærri fyrirtæki ættu að sjá sér hag
í því nú að fara í skuldabréfaútboð og
greiða upp óhagstæðari lán. Minni
ijármagnskostnaður ætti að bæta hag
fyrirtækja, hvetja til meiri fjárfestinga
og aukinna umsvifa.
Afar rólegt hefur verið á íslenskum
hlutabréfamarkaði undanfarið. Það
hefur nánast verið logn á markaðnum,
nokkrar lækkanir en viðskiptin verið
svo lítil að efa má hvort lækkanirnar
séu marktækar.
ÉG SPÁI3% - 4% HÆKKUN Á VÍSITÖLU
VERÐBRÉFAÞINGS
Nokkur góð ijárfestingatækifæri
eru á markaðnum og ijárfestar ættu
að nýta sér það að tína upp litlu hlutina
á hagstæðu gengi á löngum tíma.
Margt smátt gerir jú eitt stórt. Eg spiá
því að hlutabréfavísitalan eigi eftir að
hækka um 3%-4% til áramóta.
Mikið framboð er nú á hlutabréfum
í Landsbankanum og búast má við því
sama þegar hlutabréf Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins, FBA, og Búnað-
LÆKKANIR SÁLRÆNS EÐLIS
Velta og hagnaður margra fyrirtækja
hefur ekkert breytst en samt
lækka hlutabréf þeirra umtalsvert.
Skýringarnar eru fyrst og fremst sál-
ræns eðlis og svokölluð bylgjuáhrif
frá öðrum mörkuðum.
STÓRTÍÐINDI Á
SKULDABRÉFAMARKAÐI
Stórtíðindi eru að gerast á íslensk-
um skuldabréfamarkaði. Vextir á
langtímaríkisskuldabréfum hafa
lækkað umtalsvert. í fyrsta skipti,
nánast frá því verðbréfamarkaðurinn
tók til starfa á íslandi, eru vextir á
löngurn ríkisskuldabréfum að verða
svipaðir og í nágrannalöndunum.
KAUPIÐ LITLA HLUTI Á HAGSTÆÐU
GENGI!
Nokkur góð fjárfestingatækifæri eru
á markaðnum og fjárfestar ættu að
nýta sér það að tína upp litlu hlut-
ina á hagstæðu gengi á löngum
tíma. Margt smátt gerir jú eitt
stórt. Ég spái því að hlutabréfavísi-
talan eigi eftir að hækka um
3% - 4% til áramóta.
BIRTIÐ 9 MÁNAÐA TÖLUR
Þetta leiðir hugann að grein Vals
Valssonar bankastjóra í sumar þar
sem hvatt er til þess að fyrirtæki
birti 9 mánaða tölur. Undir þetta
skal tekið og eru öll fyrirtæki hvött
til að gera svo. Ef nokkur þeirra
byrja á að birta 9 mánaða uppgjör
munu öll fyrirtækin á VÞÍ
taka það upp.
10 MÁNAÐA TÖLUR FLUGLEIÐA?
Flugleiðir komu á óvart með því að
birta 8 mánaða tölur, nú verður fyrir-
tækið að birta 10 mánaða tölur úr
rekstri, annað er ekki sanngjarnt.
arbankans hf. koma á markað. Stofn-
anaíjárfestar munu örugglega beina
sjónum sínum að þessum hlutabréf-
um.
SLÖK AFKOMA FLUGLEIÐA, ÍS OG SH
Afkoma fyrirtækja skráðra á VÞI
miðað við fyrstu 6 mánuði ársins var
afar misjöfn. Sum komu á óvart með
góðan hagnað - en miklum vonbrigð-
um olli afar slök útkoma Flugleiða, ÍS
og SH. Fróðlegt verður að sjá hvernig
þessum fyrirtækjum vegnar seinni
hluta ársins. Flugleiðir komu á óvart
með því að birta 8 mánaða tölur, nú
verður fyrirtækið að birta 10 mánaða
tölur úr rekstri, annað er ekki sann-
gjarnt.
BIRTIÐ 9 MÁNAÐA UPPGJÖR!
Þetta leiðir hugann að grein Vals
Valssonar bankastjóra í sumar þar
sem hvatt er til þess að fyrirtæki birti
9 mánaða tölur. Undir þetta skal tekið
og eru öll fyrirtæki hvött til að gera
svo. Ef nokkur þeirra byrja á að birta
9 mánaða uppgjör rnunu öll fyrirtækin
á VÞI taka það upp.
VÆGI FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA
AÐAUKAST
Vægi Ijármálafyrirtækja í hluta-
bréfavísitölunni mun aukast verulega
á næstunni og verða allt að 30% en
vægi sjávarútvegs lækkar úr 50% í
32%. Enda var sjávarútvegur verulega
„yfirviktaður“ á markaðnum. Þess er
beðið með spenningi að sjá skráningu
á Baugi og hvaða viðtökur fyrirtækið
hlýtur hjá almenningi. Þetta útboð er
einhverra hluta vegna of lengi á leið-
inni.
HVAR ERU ÁRVAKUR 0G ÍSLENSKA
ÚTVARPSFÉLAGIÐ?
Það hefur tilfinnanlega vantað stórt
verslunar- og þjónustufyrirtæki á
markaðinn, einnig vantar fjölmiðlaíyr-
irtæki og nokkur af stærstu iðnfyrir-
tækjum landsins. Hvar eru Arvakur
og Islenska útvarpsfélagið? Ætla þessi
fyrirtæki að láta öldina líða án þess að
fara á markaðinn?
ÍSLENSK ERFÐAGREINING
Viðskipti með hlutabréf í Islenskri
erfðagreiningu eru hafin í smáum stíl
og verður spennandi að fylgjast með
framvindu hjá því fyrirtæki. S5