Frjáls verslun - 01.09.1998, Page 47
PRILAR UPP VINNUPALLA
Páll segist halda sér í formi meö því aö príla upp vinnupalla á eftirlitsferðum sínum á
vettvangi þar sem ístak byggi. „Ég verö hér meðan ég hef fulla starfsorku og
mín er þörf.”
aðila sjá um allt verkið frá hönnun að fram-
kvæmd.“
Ef þú lítur yfir næsta ár, hver eru þá
stærstu verkefnin?
„Við erum í stóru verki á Sultartanga
en einnig erum við að reisa skrifstofubygg-
ingu fyrir Olís, íþróttahús fyrir KR og í
stóru verki í Keflavík. Það er ýmislegt á
döfinni en ég reikna ekki með að við höld-
um sömu veltu í ár og í fyrra.“
VIÐ ÞORSTEINN OG VERÐBÓLGAN
Hvaða þýðingu hefur efnahagslegur
stöðugleiki fyrir fyrirtæki eins og Istak?
„Við höfum auðvitað séð miklar breyt-
ingar á rekstrarumhverfinu síðan við hóf-
um starfsemi okkar. Hér áður fyrr þegar
verðbólgan geisaði óheft snerist allt um það
hjá fyrirtækjum að eiga fyrir laununum í
hverri viku. Það er ekkert hægt að bera
saman þær aðstæður sem áður voru við það
sem fyrirtækin búa við í dag. Þegar maður
er að segja yngra fólki frá gjaldeyrishöftum,
innflutningshöftum og gríðarlegri verð-
bólgu þá trúir það manni varia. Þetta voru
erfiðir tímar og þeir sem áttu óheftan að-
gang að almannafé högnuðust mikið.
Sumir héldu að verðbólgan væri af hinu
góða. Það var erfitt að lemja hana niður en
tókst að lokum. Það var í kringum 1980
sem menn fóru fyrst að tala um nauðsyn
þess að ráða niðurlögum hennar. Þegar ég
var formaður Vinnuveitendasambands Is-
lands og Þorsteinn Pálsson framkvæmda-
stjóri byrjuðum við baráttuna gegn verð-
bólgunni."
ÍSLAND 0G HEIMURINN
Gætu stjórnvöld gert eitthvað íleira til
þess að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja
eða sitjum við við sama borð og aðrar þjóð-
ir?
„Það sem er óeðlilegt, er hvernig það
opinbera tekur þátt í verktakastarfsemi. Is-
lenskir aðalverktakar eru ríkisfyrirtæki og
rikið á ekki að vera í verktakastarfsemi."
Nú er Island og Evrópa í framkvæmd
einn markaður hvað varðar útboð og til-
flutning á vinnuafli. Hefur það breytt ein-
hveiju í starfsemi ístaks?
„Við höfum ekki flutt inn vinnuafl og
nánast ekkert sótt á erlendan markað. Is-
lendingar eiga að leggja höfuðáherslu á út-
flutning á sviðum þar sem þeir hafa sér-
þekkingu og einhvern heimamarkað til að
byggja á, sérstaklega á sviði sjávarútvegs.
Við búum ekki yfir þeirri sérþekkingu í
verktakastarfsemi að við séum beinlínis
samkeppnisfærir á heimsmarkaði enda
markaðssetning þar geysilega dýr. Sam-
starfið við E.Pihl&Sön hefur gert okkur
kleift að kynnast ýmsum erlendum verk-
efnum þar sem ijöldi íslendinga starfar hjá
þeim um allan heim. Þarna hefur verið
geysilega gott samstarf á milli. Islenskir
verkfræðingar eru afskaplega duglegir og
áræðnir við erfiðar aðstæður. Samstarf
okkar við verktakafyrirlækið Skanska hef-
ur einnig verið geysilega gott og lærdóms-
ríkt.
Þegar rætt er um útflutning og tækifæri
í því sambandi get ég ekki látið hjá líða að
vara við þeim röddum sem hvetja til þess
að Utflutningsráð verði lagt niður eða
starfsemi þess dregin stórlega saman. Það
held ég að væru mikil mistök. Starf ráðs-
ins hefur einkennst af dugnaði og framsýni
og verið gríðarlega mikilvægt fyrir útflytj-
endur.“
PRESTSSONUR 0G VERKFRÆÐINGUR
Páll Siguijónsson forstjóri Istaks heitir
reyndar fullu nafni Hannes Páll Siguijóns-
son og er prestssonur úr Vestmannaeyjum
fæddur 1931, fimmti í röð sjö systkina.
Hann varð stúdent frá MR 1952 og lærði
verkfræði í Reykjavík og Kaupmannahöfh
og útskriíaðist frá Danmarks Tekniske
Hojskole 1959.
Hann er kvæntur Sigríði Gísladóttur og
þau eiga fjögur börn, þar af eru þijú, Þór-
unn, Gísli og Siguijón, verkfræðingar en
Páll segist engin áhrif hafa haft á það. Sú
elsta, Bjarndís, er viðskiptafræðingur.
Páll er á 67 aldursári en sýnist býsna
frísklegur og segist halda sér í formi með
þvi að príla í vinnupöllum á eftirlitsferðum
sínum á vettvangi þar sem Istak byggir.
„Ég verð hér meðan ég hef fulla starfs-
orku og mín er þörf.“ 03
AUKIN DREIFING VALDS
Með stækkun fyrirtækisins hefur ákvarðanatakan færst neöar i píramítann. Þetta
byggir á því aö viö erum með góða menn sem við treystum og hafa sýnt sig að vera
traustsins verðir.
Þeir eru heldur stœrri vörubílarnir í dag en
þeir sem voru notaðir þegar Páll var að
byrja.
Páll fer reglulega í eftirlitsferðir á verkstað og
fylgist með framkvœmdum.
Páll á tali við Sigfús Þormar verkstjóra
Istaks á Sultartanga.
47