Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1998, Page 59

Frjáls verslun - 01.09.1998, Page 59
KALANDI viöskiptaþjóð Islendinga afokkur! Páll Kr. Pálsson, formaður Þýsk-íslenska verslunarráðsins, telur höfuðverkefni ráðsins vera að auka fiölbreytni í útflutningi til Þýskalands og vekja áhuga þýskra fiárfesta á íslensku atvinnu- lífi. FV-mynd: Geir Olajsson. an. Það var einnig lærdómsríkt að búa í skugga Berlínarmúrsins. Eg fór oft austur yfir og lærði fljótlega að sósíal- ískt hagkerfi er ekki gott fyrir vænting- ar fólks, þarfir eða sköpunargáfu og kemur hvorki til móts við efiiislegar né andlegar þarfir einstaklinga, með svip- uðum hætti og markaðssamfélagið." Páll kom heim frá námi 1980 og þá flutti hann ásamt félögum sínum inn ákveðna þætti úr þýskri menningu þeg- ar þeir félagar stofnuðu Gauk á Stöng, krá sem nú er orðin gróið örnefni í skemmtanalífinu. „Við unnum tveir félagarnir um tíma, við afgreiðslu á stúdentaknæpu varð handgenginn þýskri menningu og mótaðist af lífsháttum þeirra. „Eg fór fyrst til Þýskalands sumarið 1971 og vann þá hjá Rodenstock gler- augnaverksmiðjunni í Miinchen. Við vorum þarna saman nokkrir félagar og ákváðum að fara aftur út að loknu stúd- entsprófi. Haustið eftir stúdentspróf hélt ég síðan til náms í hagverkfræði í Vestur Berlín. Þetta voru tímar mikilla umbrota í þýsku samfélagi í kjölfar stúdentaóeirða í lok áratugarins á und- sem hét Witwe Bolte, eða Ekkjan Bol- te. Þegar heim kom fannst okkur, nokkrum félögunum, tilvalið verkefni að setja upp áþekka knæpu hér. Við seldum fyrstir manna hið svokallaða bjórlíki sem var blanda af sterku áfengi og pilsner. Þetta vakti mikla athygli og var á endanum bannað með reglugerð. Við höfum löngu losað okkur úr þessum rekstri en ég er ekki frá því að þetta brölt hafi átt sinn þátt í að bjór- banninu var aflétt á íslandi." SD TEXTI: Páll Ásgeir Ásgeirsson Þýsk-íslenska verslunarráðið var stofnað í október 1995. Markmiöiö með starfsemi þess er aö örva viöskipti milli íslands og Þýskalands og aöstoða fyrirtæki viö aö kynna sér markaði og koma sér fyrir í nýju landi. í dag eru 109 fyrirtæki aðilar aö ráöinu og fer fjölgandi. Þýsk-íslenska verslunarráöiö veitir margháttaöa þjónustu og upplýsingar og má þar t.d. nefna: • Milligöngu um viöskiptasambönd. • Upplýsingar um einstök fyrirtæki. * • Kynningar á einstökum fyrirtækjum. • Kynningar á framleiöslu fyrirtækja. • Markaðsrannsóknir. • Aöstoö í deiiumáium. • Aöstoö viö virðisaukaskattsendurgreiðslu í Þýskalandi í tengslum viö viöskiptaferöir, ferö- ir á sýningar og fl. • Upplýsingar um toila í inn- og útflutningi. 59

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.