Frjáls verslun - 01.09.1998, Side 66
STJÓRNUN
STATTU ÞÁ
Hefur kúnninn alltafrétt
fyrir sér?! Laga fyrirtœki
þjónustu sína aö eigin þörfum
fremur en þörfum viöskiþta-
vinanna? En umfram allt,
hvernig rœkta þau þjónustu-
lund starfsmanna sinna?
Svafa Grönfeldt lektor er aö
Ijúka viö afar athyglisveröa
doktorsritgerö um þjónustu-
vilja starfsmanna og
fyrirtœkja!
TEXTI: EVA MAGNÚSDÓTTIR
66
vafa Grönfeldt er fyrsta
konan sem gegnir lektors-
stöðu í Viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Islands. Hún er
þrátt fyrir ungan aldur orðin einn
helsti sérfræðingur landsins í
vinnumarkaðsfræði. Svafa vinnur
að doktorsverkefhi sínu um þjón-
ustuvilja starfsmanna hjá íslensk-
um fyrirtækjum. Blaðamanni
Fijálsrar verslunar lék forvitni á að
vita hverjar væru helstu niðurstöð-
ur rannsóknarinnar og hvort ís-
lensk fyrirtæki gætu haft gagn af
henni.
Svafa Grönfeldt hefur aldrei ver-
ið nein meðalmanneskja og hún
hefur trúlega aldrei setið auðum
höndum. Hún ólst upp í Borgarnesi
og var mikil íþróttakona á barna-
skólaárunum, keppti meðal annars í
spretthlaupum og langstökki. Hún
segist hafa ofvirknina og orkuna úr
íþróttunum. Svafa lauk BA prófi í
stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði
frá Háskóla Islands. Með skólanum
og eftir að hún útskrifaðist starfaði
hún á DV, samtals í átta ár, lengst af
sem markaðsstjóri. Þaðan lá leiðin
til Flórída þar sem hún lauk
mastersgráðu í starfsmanna- og við-
skiptafræðum. Svafa stundar nú
nám í London School of Economics
og lýkur þar doktorsnámi í vinnu-
markaðsfræði í vor. Hún vinnur að
ritgerðarsmíðinni í nánu samstarfi
við prófessor í London og flýgur
utan á þriggja mánaða frestí. Rann-
sóknin og öll gagnasöfnun fór fram
á íslandi.
Svafa hefur komið víða við á
stuttri ævi en hún er m.a. einn af
eigendum Gallups á Islandi. Hún
kom meðal annars af stað rann-
sóknum og þjónustu hjá Gallup og
ráðningarþjónustu í framhaldi af
því. Eiginmaður Svöfú heitír Stein-
þór Jónasson, grafískur hönnður,
og þau eiga saman soninn Viktor
Þór, fjögurra ára. Hún var spurð að
því hvort það væri ekki nóg að gera
í doktorsnáminu, lektorsstöðunni
og starfinu hjá Gallup auk þess að
vera móðir og eiginkona. Svafa
sagði að í raun og veru væri þetta of
mikið en þessu færi senn að ljúka
og við tækju vonandi rólegri tímar
eftír jólin.
„I rauninni fara kennslan og
rannsóknarvinnan vel saman því því
lektorsstaðan felur í sér fimmtíu
prósent kennslu og fimmtíu prósent
rannsóknir. Rannsóknarvinnuna
vinn ég í Gallup. Kennslan er það
skemmtílegasta sem ég hef fengist
við um æfina en ég byrjaði á henni í
fyrra. Eg ætlaði alls ekki að sækja
um en sá svo auglýsinguna og fann
að þetta var starfið mitt. Þarna var
öllu þjappað saman sem ég hafði
lært um ævina. Kennsla var á dag-
skrá hjá mér eftir tiu ár þegar ég
væri orðin eldri og virðulegri og
strákurinn minn stálpaðri. Eg stóðst
þó ekki mátíð og henti inn umsókn.
Á jólum verð ég búin að ganga frá
öllu í sambandi við ritgerðina og þá
hægist eitthvað um,” segir Svafa.
FRAMMISTAÐA METIN
Yfir í rannsóknina sjálfa, eða
doktorsverkefnið: Rannsóknin um
þjónustuvilja starfsmanna hjá fýrir-
tækjum er liður í röð margra ann-
arra rannsókna sem fara fram á
sama tíma víða um heim. Sambæri-
legar rannsóknir hafa þegar farið
fram í Bretlandi og í nokkrum Evr-
ópulöndum, auk Asíu. Niðurstöður
þeirra eru að mörgu leyti ólíkar eft-
ir heimshlutum en sömu þættír hafa
eigi að síður áhrif á þjónustuvilja
GULRÓT OFT VEIFAÐ EN SÍÐAN EKKIAFHENT!
„Ef þú veifar gulrót framan í starfsmann þarf hann aö trúa því aö leggi
hann mikið á sig fái hann gulrótina. í fyrirtækjum er gulrótinni oft veifað
en hún síðan ekki afhent.”
AFKASTAHVETJANDI LAUNAKERFI
„Reynslan af afkastahvetjandi launakerfum á íslandi hefur ekki verið
sérstaklega góð. Ástæðan er sú að til þess að launabónusar virki sem
skyldi þarf upphæðin að vera umtalsverð; minnst 16 til 17% af
grunnlaunum starfsmannsins.”