Frjáls verslun - 01.09.1999, Qupperneq 18
FORSÍÐUGREIN
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum utanríkis-
ráðherra og formaður Alþýðuflokksins, varð
sendiherra Islands í Bandaríkjunum í byrjun
síðasta árs.
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður
Sjálfstœðisflokksins og sjávarútvegsráðherra,
varð sendiherra Islands í London sl. sumar.
lngimundur Sigjusson var í áraraðirforstjóri
Heklu. Hann dró sig úr hringiðu viðskiþta-
lífsins hér heima og varð sendiherra íslands í
Þýskalandi.
Kjör sendi
Hvers vegna ersvo mikil ásókn íþad ab veróa sendiherra? Laun þeirra eru rúm
þeir skattfrjálsar staðaruppbœtur sem nema um 460 þús. á mánudi aó jafnaði.
bíl, auk annarra hlunninda. Annað sendiráðsfólk hefur einnig skattfrjáls hlunnindi
□ rír þekktir stjórnmálaforingjar hafa á síðustu tveimur
árum hætt í stjórnmálum og orðið sendiherrar íslands er-
lendis. Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður
Alþýðuflokksins, varð sendiherra Islands í Bandaríkjunum, Þor-
steinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hætti
sem sjávarútvegsráðherra sl. vor og varð sendiherra Islands í
London. Svavar Gestsson, fyrrum þingmaður og formaður Al-
þýðubandalagsins, lét af þingmennsku og varð sendiherra í utan-
ríkisþjónustunni en var falið að gegna starfi aðalræðismanns Is-
lands í Winnipeg í Kanada sl. sumar. Nokkur önnur dæmi eru um
að stjórnmálaforingjar hafi orðið sendiherrar, eins og Kjartan Jó-
hannsson, Eiður Guðnason, Benedikt Gröndal,
Einar Agústsson, Guðmundur I. Guðmunds-
son, Albert Guðmundsson og Gunnar
Thoroddsen - sem raunar sneri aftur inn í póli-
tíkina eftir störf sín sem sendiherra í Dan-
mörku. En eru störf sendiherra jafn digrir bitar
og ýmis önnur störf sem stjórnmálaforingjum kann að bjóðast,
eða sem þeir láta koma sér í, eins og bankastjóra- eða forstjóra-
störf í ríkisfyrirtækjum? Þess má geta að 23 sendiherrar eru í ut-
anríkisþjónustunni og þar af eru 5 þeirra fyrrrverandi stjórnmála-
foringjar. Alls starfa 17 sendiherrar erlendis í ellefu sendiráðum.
Hinir sjö eru fastafulltrúar hjá hinum ýmsu fastanefndum Islands
ytra. Mikil ásókn í störf í utanríkisþjónustunni á erlendri grundu
skýrist að hluta til af ævintýraþrá og óskum eftir að starfa erlend-
is um tíma. Ljóst er að stjórnmálaforingjar eiga á margan hátt auð-
velt með að vera fulltrúar Islands erlendis - auk þess kann það að
henta þeim að hverfa til útlanda eftir erilsamt stjórnmálavafstur.
Laun sendiherra Laun sendiherra eru 261
þúsund krónur á mánuði - fyrir ótakmarkaða
vinnu. Grunnlaun sendiherra eru ákveðin af
Kjaranefnd og eru nánast þau sömu og laun
skrifstofustjóra I í Stjórnarráði íslands. Eru
TEXTI: Vigdis Stefánsdúttir
og Jón G. Hauksson
IMYNDIR: Geir Olalsson