Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1999, Síða 19

Frjáls verslun - 01.09.1999, Síða 19
herra 261 þúsund á mánuði. Hins vegar fá Jafnframt fá þeir frítt kúsnæði og frían eins og staðarupþbætur og frítt húsnœði. þessi laun eitthvað til að sækjast eftir fýrir reynda stjórnmála- kappa? Dæmi hver fyrir sig. Þetta segir þó ekki alla söguna. Sendi- herrar fá að jafnaði um 460 þúsund króna skattfrjálsrar staðarupp- bætur á mánuði, þó mismunandi eftir löndum - og jafngildir það um 800 þús. kr. á mánuði ef tekjurnar væru skattskyldar. Þetta eru staðaruppbæturnar í hefðbundnu sendiráði í Evrópu. Þær munu þó vera eitthvað hærri í Kína og Rússlandi. Staðauppbætur eru í raun íjölskyldutekjur því þær lækka fái maki sendiherra vinnu í viðkomandi landi. Auk þess fá sendiherrar að jafnaði frá 50 til 150 þúsund krónur á mánuði í risnu til að mæta útgjöldum til veislna og móttaka. Gerð er krafa um að þeir skili mjög nákvæmum risnu- skýrslum. Bústaðir sendiherra eru reisuleg heimili og bera þeir sjálfir kostnað vegna þrifa á heimilunum sem og fyrir þjónustu- störf, en veislur eru oft haldnar á heimilum sendiherranna. Full- yrt er að allt að fjórðungur staðaruppbótanna geti farið í að greiða laun til þjónustufólks vegna þrifa og veislna. Matvæli og vínföng geta sendiherrar fengið á lægra verði en almennt gerist þar sem þeir eiga kost á, ásamt öðru sendiráðsfólki, að skipta við svonefnd- ar tollvöruverslanir. Ljóst er að risnan dugar í fæstum tilvikum fyr- ir veislum og móttökum þannig að sendiherrarnir ganga fyrir vik- ið á staðaruppbætur sínar, borga með sér, eins og það heitir. Þá fá sendiherrar bíla-, síma- og ferðakostnað greiddan að fullu, auk dag- peninga á ferðalögum inn- an síns lands sem og utan - eins og aðrir embættis- menn hjá ríkinu. Dagpen- ingar sendiherra innan þess lands sem hann hef- ur aðsetur í eru um 8.500 krónur að jafnaði og ferð- ist hann á milli landa nema þær um 20 þúsund krónum að jafnaði. Enn er áréttað að upphæðir kunni að vera eitthvað breytilegar eftir löndum. Laun sendi- Kjöp sendiíierra - að jafnaði Laun, um 260 þús. á mán. Skattfrjálsar staðaruppbætur, 460 þús. á mán. Risna tíl veisluhalda og móttaka um 50 til 150 þús.ámán. Frítt húsnæði. Frír bíll. bill er notaður sem sendiráðsbíll í leiðinni. Frír sími. Eiga kost á að panta vín og matvæli úr tollvöruverslunum. Úr pólitík í sendiherrastörf Fyrir utan þá Jón Baldvin, Þorstein og Svavar eru nokkur önnur dæmi um að stjórnmálatoringjar hafi orðið sendiherrar, eins og Kjartan Jóhannsson, Benedikt Gröndal, Einar Ágústsson, Albert Guðmundsson, Eiður Guðnason, Guðmundur í. Guð- mundsson og Gunnar Thoroddsen - sem raunar sneri aftur í hið pólitíska vafstur eftir störf sín sem sendiherra í Danmörku og varð forsætisráðherra. 19

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.