Frjáls verslun - 01.09.1999, Qupperneq 63
ENDURSKOÐUN
semi fyrirtækja sem stunda sambærilegan rekstur og búa við
sömu efnahagslegu skilyrði, eins og eftirfarandi tafla sýnir:
(Tölur í ECU) Hagnaður Hrein eign Arðsemi
Belgía ............ 135 726 18,6%
Þýskaland.......... 133 649 20,5%
Spánn ............. 131 722 18,1%
Frakkland.......... 149 710 21,0%
Ítalía ............ 174 751 23,2%
Holland............ 140 704 19,9%
Bretland .......... 192 712 27,0%
En í hveiju liggur þessi munur? Svarið er einkum að finna í
efnisreglum sem gilda um mælingar á einstökum eigna- og
skuldaliðum. Eitt atriði t.d., sem hefur áhrif í Bretlandi, er það að
bresk fýrirtæki hafa mátt færa keypta viðskiptavild fram hjá
rekstrarreikningi til lækkunar á eigin fé (þá reglu felldu Bretar að
vísu úr gildi á síðasta ári). Með þeim
hætti losnar fyrirtækið við afskriftir af
viðskiptavild sem það hefur kejipt. Þá
hafa sumar þjóðir ekki sett ótvíræðar
reglur um færslu eftirlaunaskuldbind-
inga sem þýðir að kostnaður vegna
þeirra er ekki færður fyrr en við greiðslu
hjá sumum þjóðum en þegar til kostnað-
arins er stofnað hjá öðrum.
Færsla tekjuskatts Dæmi í þessa veru
gætu verið miklu fleiri en hér skal aðeins
tveimur bætt við. Sumar þjóðir hafa sett
reglu um að færa skuli tekjuskatt þegar
til hans er stofnað fremur en við greiðslu
eða álagningu. Það þýðir að færa verður
svonefhdar frestaðar skattskuldbinding-
ar, sem geta verið verulegar fjárhæðir,
hafi fyrirtæki kosið að beita öðrum regl-
um við afkomu- og efnahagsmælingar
sínar en kveðið er á um í skattalögum.
Hugmyndin á bak við þessar frestuðu
skattskuldbindingar er sú að láta bók-
færðan tekjuskatt elta það afkomuhug-
tak sem notað er við gerð
reikningsskila en það þarf
ekki að vera hið sama og
skattalög tilgreina. I
skattalegu tilliti er raunar
líklegt að fyrirtæki kjósi að
lágmarka skattstofna sína
innan ramma laganna, en
reglur skattalaganna geta
verið á skjön við fyrirmæli
ársreikningalaga um að
reikningsskil skuli gefa
glögga mynd af rekstri og
efhahag. Afleiðingin er sú
að skattskuld myndast, þ.e.
reiknuð skattskuld sem getur orðið greiðsluskyld síðar.
Dæmið um Daimler-Benz Hitt dæmið lýtur að færslu ótiltekins
kostnaðar til skuldar þegar þannig stendur á að afkoma er mjög
góð. Hér ráða ferð grimm varfærnissjónarmið og „skuldin" er síð-
an leyst upp þegar illa árar. Þessi háttur hefur tíðkast með þýsku-
mælandi þjóðum en blátt bann er lagt við slíkum færslum í reikn-
ingsskilum engilsaxneskra þjóða. Því er þetta nefnt að athygli
vakti fyrir nokkrum árum þegar þýska fyrirtækið Daimler-Benz
fór inn á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum. Til þess að fá að
selja hlutabréf á markaði þar í landi þurfti fyrirtækið að umbreyta
reikningsskilum sínum frá þýskum venjum til bandarískra reglna.
Niðurstaðan vakti að vonum talsverða athygli í fjármálaheiminum
því bókfærður hagnaður fyrirtækisins á árinu 1993 var í þýska
reikningnum 615 milljónir marka en breyttist í 1.839 milljóna
marka tap samkvæmt bandarískum reglum. Þó að lögmætar skýr-
ingar hafi að nokkru leyti verið á þessum mikla mun þá fór það að
mestu forgörðum í umræðunni en kröfur urðu háværar um meiri
samræmingu í reikningsskilagerð í heiminum.
Á árinu 1973 var stofnsett alþjóðleg nefnd (IASC) til þess að
vinna að samræmingu reikningsskila í
heiminum. Hún fór varlega af stað og
fyrstu reglur nefndarinnar báru þess
merki að málamiðlun hefði fengist með
því að leyfa margar aðferðir til frásagnar
sömu atburðum. Nú hefur það hins veg-
ar gerst að nefndin hefur gefið út staðla
sem eru mun ítarlegri en áður og þar er
ekki um kosti að ræða. Raunar hefur
nefndin sett sér það markmið að aðeins
ein regla skuli gilda en þegar ekki hefur
náðst samkomulag um eina reglu eru
tvær tilgreindar og önnur vegur þyngra
en hin.
Verður allsráðandi Eftir Daimler-Benz
uppákomuna og fleiri svipuð dæmi, t.d.
Norsk Hydro, hefur vegur alþjóðlegu
nefhdarinnar aukist verulega og nú blas-
ir við að nefndin verði allsráðandi innan
fárra ára á þessu sviði. Alþjóðlega nefnd-
in fékk það erindi frá samtökum verð-
bréfaþinga (IOSCO) að gefa út reglur
sem gætu gilt á öllum verðbréfaþingum.
Nefndin hefur sinnt því verk-
efni með því bæta mörgum
nýjum stöðlum við, sem
samtökum verðbréfaþinga
þótti á skorta, og nú liggur
fyrir erindi frá alþjóðlegu
nefhdinni hjá þessum sam-
tökum um að þau gefi út yf-
irlýsingu þess efnis að fyrir-
tæki geti samið reiknings-
skil eftir reglum alþjóðlegu
nefndarinnar og þurfi ekki
að sæta því að semja mörg
reikningsskil með öllum
þeim kostnaði sem af því hlýst.
Vænta má svars frá samtökum verðbréfaþinga innan skamms og
verði það jákvætt má búast við enn frekari afrekum frá þessari al-
þjóðlegu nefnd. Það eru þó einhveijar blikur á lofti um skipan
Leynd yfir rekstri fyrirtækja?
Hjá sumum þjóðum hvílir mikil leynd yfir
rekstri fyrirtækja, t.d. þýskumælandi þjóð-
um, jafnvel þótt þau séu í eigu almenn-
ings, en markmiðið hjá öðrum er að
reikningsskil séu gegnsæ (e. transparent),
eins og nú um stundir er vinsælt að segja.
Þeir sem lengst eru komnir í þeim efnum
eru Bretar og Bandaríkjamenn.
Dæmið um Daimler-Benz
Niðurstaðan vakti að vonum talsverða at-
hygli í fjármálaheiminum, því bókfærður
hagnaður Daimler-Benz á árinu 1993 var í
þýska reikningnum 615 milljónir marka en
breyttist í 1.839 milljóna marka tap sam-
kvæmt bandarískum reglum.
63