Frjáls verslun - 01.10.1999, Page 50
Þeir koma ad bókinni „I mörg horn að líta“. Frá vinstri er Svavar Benediktsson, nemandi við Samvinnuháskólannn að Bifröst, og Karl Frið-
riksson, framkvœmdastjóri Iðntœknistofnunar. Bókinni fylgja geisladiskur með efni bókarinnar og dagatal til næstu tveggja ára.
Lykilatriði í stjórnun
Bókin „I mörg horn að líta“Jjallar um lykilatriöi í stjórnun. Hún er eins konar
handbók atvinnulíjsins og er bæói ætluö stjórnendum og starjsmönnum!
nðntæknistofnun og Framar ehf. gefa út bókina „í mörg
horn að líta“ sem fjallar um lykilatriði í stjórnun og
stuðlar að því að stjórnendum og starfsmönnum fyrir-
tækja verði gert auðveldara að uppfylla þær kröfur sem til
þeirra eru gerðar. Bók með sama nafni var gefin út árið 1989 af
Iðntæknistofnun og Islandsbanka. Sú bók naut mikilla vinsælda
og reyndist notadrjúg fólki í atvinnulífinu jafnt sem nemendum
í viðskiptafræðum. En margt hefur breyst á þeim tíu árum síð-
an bókin kom út og því þótti Svavari Benediktssyni og Jóni Sig-
urðssyni, nemendum í Samvinnuháskólanum að Bifröst, tíma-
bært að gefa út svipaða bók sem tæki á
þeim verkefnum sem mæta stjórnendum
og starfsmönnum þeirra í amstri dagsins
í dag. Þeir gerðu ítarlega viðskiptaáætlun
fyrir útgáfu bókarinnar og höfðu samband við
forráðamenn Iðntæknistofnunar sem tóku
svo vel í hugmyndina að ákveðið var að hefja
samstarf um útgáfuna.
Bókin á erindi til allra Ritnefnd hóf störf
í mars en ritsjóri verksins er Karl Friðriks-
son, framkvæmdastjóri Iðntæknistofnunar.
Svavar Benediktsson hefur verið tengilið-
ur höfúnda og annast verkstjórn fram-
kvæmdarinnar. Hann segir mjög mikla
þörf á bók sem þessari.
„Síbreytilegt atvinnulíf og ör tækniþró-
un hafa gert það að verkum að nauðsyn var
VIÐTAL: Halla Bára Gestsdóttir
MYNDIR: Geir Ólafsson
50