Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 1
3. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 5. JANÚAR 2001
EHUD Barak, forsætisráðherra
Ísrael, og Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, lögðu í gær báðir
áherslu á mikilvægi friðarsamkomu-
lags á milli Ísraela og Palestínu-
manna. Þeir ítrekuðu þó einnig báð-
ir fyrirvara sína á sáttatillögum Bill
Clintons, forseta Bandaríkjanna, og
samningamanna hans.
Barak fullvissaði þannig yfirrabb-
ína Ísrael í gær að hann myndi aldr-
ei fallast á að láta Palestínumönnum
eftir stjórn Musterishæðarinnar.
Utanríkisráðherrar arabaríkjanna
lýstu og yfir stuðningi sínum við þá
kröfu Arafats að palestínskir flótta-
menn eigi rétt á að snúa aftur til
heimila sinna í Ísrael.
Gilead Sher, aðalsamningamaður
Ísraela, kom til Washington í gær til
viðræðna við samninganefnd Banda-
ríkjanna um viðræður þeirra við
Arafat sem féllst í fyrradag á til-
lögur Clintons, með fyrirvörum þó.
Ísraelskir embættismenn sögðust í
gær gera ráð fyrir að friðarviðræður
hefjist brátt á ný. Utanríkisráðherra
Ísrael, Shlomo Ben-Ami, sagði í gær
að Ísraelar myndu einungis hefja
viðræður á ný dragi úr árásum Pal-
estínumanna á Ísraela. Heldur ró-
legra var á átakasvæðum í gær en
verið hefur undanfarið.
Stefnt er að þríhliða viðræðum í
Kaíró í Egyptalandi á sunnudag þar
sem rætt verður hvernig draga megi
úr ofbeldinu. Fulltrúar Palestínu-
manna og Ísraela munu þá talast við
fyrir milligöngu Bandaríkjanna og
er hermt að yfirmaður CIA, George
Tenet, muni stýra þeim viðræðum.
Má búast við árekstrum
við arabaríkin
Ehud Barak, forsætisráðherra
Ísrael, sagði í ræðu í gær að Ísraelar
gætu lent í víðtækum árekstrum við
arabalöndin náist ekki friðarsam-
komulag við Palestínumenn. Barak
sagði einnig að Ísraelar ættu á
hættu að einangrast á alþjóðavett-
vangi náist ekki sættir.
„Við eigum ekki að búast við
kraftaverki,“ sagði hann um vænt-
anlegar viðræður samningamanna í
Washington og líkti þeim við göngu-
ferð um jarðsprengjusvæðið.
Yasser Arafat lýsti því yfir í gær
að hann vonaðist til þess að friðar-
samningar næðust við Ísrael áður
en embættistíð Bills Clintons
Bandaríkjaforseta rennur sitt skeið
á enda þann 20. janúar. Hann
fundaði með utanríkisráðherrum
arabaríkjanna í Kaíró í gær. Þeir
lýstu yfir stuðningi sínum við sjón-
armið hans.
Enn ber mikið á milli Ísraela og
Palestínumanna. Báðir aðilar hafa
lýst yfir efasemdum með umdeilan-
legri hliðar sáttatillögu Clintons, yf-
irráð yfir Musterishæð og rétt araba
til að snúa aftur úr flóttamannabúð-
um.
Samkvæmt tillögum Clintons
munu Palestínumenn hljóta yfirráð
yfir Musterishæð en þeir í stað þess
gefa rétt flóttamanna, sem eru um 4
milljónir, til að snúa aftur, upp á
bátinn. Palestínumenn myndu einn-
ig hljóta yfirráð yfir 95% af Vest-
urbakkanum og Gaza-svæðinu.
Arafat og Barak ítreka fyrirvara
Ísrael gæti ein-
angrast ef ekki
nást sættir
AP
Tveir Palestínumenn ganga hjá Grátmúrnum, helgasta stað gyðinga, við vesturhlið Musterishæðarinnar. Í bak-
grunni má sjá Al Aqsa-moskuna, þriðja helgasta stað múslima. Barak fullvissaði ísraelska rabbína í gær, um að
hann myndi ekki láta Palestínumönnum stjórn Musterishæðar eftir.
Jerúsalem. AFP, AP.
RANNSÓKNIR sem gerðar
voru á 20 grískum hermönnum
og fréttamönnum er störfuðu í
Kosovo gefa ekki til kynna að
þeir hafi orðið fyrir heilsutjóni
af völdum úranleifa, að sögn
blaðsins Ta Nea í gær. Serb-
neskur hershöfðingi fullyrti í
gær að fimm héruð í Serbíu
væru menguð geislavirkni en
herþotur Atlantshafsbanda-
lagsins notuðu tugþúsundir af
úranhúðuðum sprengjum gegn
Serbum í Bosníu og í
Kosovo-stríðinu.
Margar Evrópuþjóðir hafa
lýst áhyggjum vegna hættunn-
ar á að leifar úransprengnanna
séu orsök blóðkrabbameins
sem greinst hefur í nokkrum
friðargæsluliðum á Balkan-
skaga og dregið suma til dauða.
Ekki hefur þó fengist staðfest-
ing á því með rannsóknum að
úranið eigi sök á sjúkdómnum.
Forsætisráðherra Ítalíu og
fleiri ráðamenn segjast van-
treysta yfirlýsingum NATO um
að leifar úr sprengjunum hafi
ekki valdið heilsutjóni. Banda-
ríkjamenn segjast hafa gert
mælingar á umræddum svæð-
um í Kosovo eftir að stríðinu
þar lauk 1999 og ekki fundið
nein merki um hættulega geisl-
un.
Sprengjuleifar
á Balkanskaga
Óttast
geisla-
virkni
Belgrad, Aþenu, Washington. AFP.
Evrópusambandið/22
JIRI Hodac, hinn umdeildi sjón-
varpsstjóri tékkneska ríkissjón-
varpsins, var fluttur á sjúkrahús í
gærmorgun eftir að um 100 þúsund
manns höfðu krafist afsagnar hans
á mótmælafundi í miðborg Prag í
fyrrakvöld.
Ástand Hodacs var sagt „alvar-
legt“ en ekki bárust fréttir af því
hvað amaði að Hodac en skýrt var
frá því að hann hefði gengist undir
rannsóknir á gjörgæsludeild Motol-
sjúkrahússins í Prag.
Fréttamenn á tékkneska rík-
issjónvarpinu hafa síðan 20. des-
ember staðið fyrir mótmælum gegn
ráðningu Hodac en þeir fullyrða að
tengsl hans við fyrrverandi for-
sætisráðherra landsins grafi undan
trúverðugleika fréttastofunnar.
Milos Zeman, forsætisráðherra
Tékklands, sem ávallt hefur varið
ráðningu Hodac, kvaðst í gær hafa
„þungar áhyggjur“ af málinu. Hann
viðurkenndi einnig að Hodac hefði
gert alvarleg mistök í starfi.
Menningarmálaráðherra Tékk-
lands, Pavel Dostal, tilkynnti í gær-
morgun að hann hygðist kæra Hod-
ac fyrir að hafa stöðvað útsendingu
þegar hann var í viðtali í ríkissjón-
varpinu. Síðdegis kvaðst hann þó
myndu bíða lögfræðiálits áður en
hann legði fram kæru.
AP
Starfsmaður tékkneska sjónvarpsins veifar til stuðningsmanna fyrir utan sjónvarpshúsið í gær.
Umdeildur sjónvarpsstjóri á sjúkrahús
Prag. AFP, AP.
Mestu mótmælin/35
LEIÐTOGAR lýðræðissinna í Júgó-
slavíu sögðu í gær að umbætur í
landinu myndu tefjast vegna þess að
endurtaka eigi atkvæðagreiðslu á
nokkrum kjörstöðum í Serbíu, eftir
að Hæstiréttur úrskurðaði að óregla
hefði verið á þingkosningunum er
fram fóru í landinu 23. desember.
Úrskurður réttarins var felldur
eftir að flokkur er tengist fyrrver-
andi forseta landsins, Slobodan Mi-
losevic, lagði fram kæru vegna
meintra svika. Verður kosið á ný í
umræddum kjördæmum nk. mið-
vikudag. Það þýðir að ný ríkisstjórn í
Serbíu verður að líkindum ekki
mynduð fyr en síðla í mánuðinum.
„Jafnvel viku töf er [of mikið]
vegna þess að hún mun fresta því að
nauðsynlegar endurbætur hefjist,“
sagði Zarko Korac, fulltrúi Flokka-
bandalags lýðræðissinna (DOS), en
bandalagið sigraði í kosningunum í
desember og hlaut 64% atkvæða.
Endurtalningin mun ekki hafa telj-
andi áhrif á þau úrslit.
Róttæki flokkurinn fór fram á
endurtekningu kosninganna á 19
kjörstöðum víðs vegar í Serbíu.
Fleiri kjörseðlar komu upp úr kjör-
kössunum eftir að kjörfundi lauk og
úrskurðaði rétturinn að þetta ógilti
sjálfkrafa atkvæðagreiðsluna þar.
Endurtekning at-
kvæðagreiðslu í Serbíu
Lýðræð-
issinnar
andvígir
Belgrad. AP.