Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 25
STRÆTIN syngja,
heitir dagskrá um
Tómas Guðmundsson
borgarskáld og
Reykjavíkurljóðlist á
20. öld, í Borgarbóka-
safninu í Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15, á
morgun, laugardag, kl.
14.
Borgarbókasafnið
og Mál og menning
standa að dagskránni
sem er í tilefni af því
að á morgun eru
hundrað ár liðin frá
fæðingu Tómasar.
Eysteinn Þorvalds-
son flytur erindi um
Tómas og Reykjavíkurljóðlist á
20. öld, ljóðskáldin Didda, Sig-
urbjörg Þrastardótt-
ir, Einar Ólafsson og
Ósk Dagsdóttir lesa
og syngja Reykjavík-
urljóð, núverandi og
fyrrverandi borgar-
stjórar, þau Ingi-
björg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri,
Markús Örn Antons-
son útvarpsstjóri og
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra, lesa
eftirlætisljóð sín eftir
Tómas og Margrét
Eir Hjartardóttir
syngur gömul og ný
lög við ljóð Tómasar
við undirleik djass-
tríós skipað þeim Eðvarð Lárus-
syni, gítarleikara, Jóni Ingólfssyni,
bassaleikara og Jóni Björgvins-
syni, slagverksleikara.
Bréf Tómasar í nýrri bók
Einnig verður í safninu sýning
þar sem handritum og bókum
Tómasar og fleiri Reykjavíkur-
bókum verður stillt út svo og út-
prentuðum borgarljóðum og
hægt verður að hlusta á lestur
Tómasar af bandi. Sýningin
stendur í þrjár vikur.
Í tilefni af aldarafmæli Tóm-
asar gefur Mál og menning út
bókina Síðbúin kveðja, sem
geymir fjölbreytt efni, ljóð,
sendibréf, ritgerðir og tækifær-
isræður en fæst af því hefur áður
birst á prenti. Eiríkur Hreinn
Finnbogason valdi efnið og bjó
bókina til prentunar.
Aldarafmæli Tómasar Guðmundssonar
Dagskrá um borgarskáldið
Tómas
Guðmundsson
VONBRIGÐIN 10 er heiti sýningar
Sigríðar Bjargar Sigurðardóttur í í
nemendagalleríinu Gallerí nema
hvað á Skólavörðustíg. Sýningin
stendur til sunnudagsins 7. janúar
og er opin frá 14 til 17 alla dagana.
Vonbrigði í
nemenda-
galleríiLOGI Gunnarsson flytur laugardag-
inn 6. janúar kl. 14 fyrirlestur á veg-
um Heimspekistofnunar Háskóla Ís-
lands og ReykjavíkurAkademíunnar,
í húsakynnum akademíunnar á
Hringbraut 121. Fundarstjóri verður
Salvör Nordal.
Í fyrirlestrinum mun Logi fjalla al-
mennt um efni nýtúkominnar bókar
sinnar „Making Moral Sense“. Í þess-
ari bók er m.a. tekist á við spurningar
eins og „Er skynsamlegt að hegða sér
siðlega?“ „Getur skynsemin ein leyst
siðferðileg ágreiningsefni?“
Logi Gunnarsson stundaði nám í
heimspeki í Reykjavík (B.A., 1986),
Frankfurt am Main, München og
Pittsburgh (doktorspróf, 1995). Hann
er lektor í heimspeki við Humboldt-
háskólann í Berlín. Um þessar mund-
ir vinnur hann að rannsóknarverkefni
við Princeton-háskóla um sjálfsmeð-
vitund og rofinn persónuleika („mult-
iple personality“). Árið 2000 komu út
eftir Loga tvær bækur: „Wittgen-
steins Leiter: Betrachtungen zum
Tractatus“ (Philo Verlag, Berlín) og
„Making Moral Sense: Beyond Hab-
ermas and Gauthier“ (Cambridge
University Press).
Fyrirlestur í Reykjavíkur-
Akademíunni
Gullsmiðir
Okkar
landsfr
æga
LAGER
SALA!
......byr
jar í da
g
Verðdæmi Verð áður Verð nú
Úlpur 9.990 3.900
Skíðabuxur 12.900 4.900
Anokrakkar 7.990 3.900
Buxur 5.990 2.900
Hlaupaskór 7.990 4.990
Útivistarjakkar 11.990 4.900
Útivistarbuxur 6.500 3.900
30—70% afsláttur
Mikið úrval
L A U G A V E G I 2 3 • S Í M I 5 5 1 5 5 9 9