Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMKVÆMT upplýsingum frá
skrifstofu skólans var mæting
nemenda mjög góð og fjarvistir
eðlilegar. Enginn hefur skráð sig
úr skóla.
Þorvarður Elíasson skólastjóri
hélt þegar í byrjun dags fund með
kennurum og nemendum skólans
þar sem skólastarfið var rætt og
stálinu stappað í nemendur. Þar
kom fram að stefnt er að útskrift
stúdentsefna Verzlunarskólans
verði óbreytt, þ.e. 20. maí, og
verður allt kapp lagt á að það tak-
mark náist.
Guðrún Egilson hefur kennt við
Verzlunarskólann í 14 ár og
kvaðst mjög ánægð að vera komin
aftur til starfa eftir verkfall og
sagði nemendur jafnt sem kennara
með bros á vör.
„Við komum galvösk til baka
eftir góða hvíld og munum halda
áfram af fullum krafti þar sem frá
var horfið. Sumir bekkir fengu
kennslu í einstaka greinum vegna
stundakennslu – aðrir ekki svo þar
er ákveðið ójafnvægi sem verður
að jafna. Við misstum ekki svo
mikið úr í yfirferð námsefnis þar
sem aðeins töpuðust rúmar tvær
kennsluvikur svo ég tel ekkert því
til fyrirstöðu að þetta vinnist
upp,“ sagði Guðrún. Spurð um ný-
undirritaðan samning sagðist Guð-
rún vera mjög ánægð með hann
og taldi samninginn skila mun
betri grunnlaunum sem aftur skil-
uðu auknum lífeyrisréttindum.
„Þótt það eigi eftir að hnýta
nokkra lausa enda sýnist mér sam-
kennarar mínir almennt jákvæðir
og ánægðir með samninginn.
Þetta verður einnig aukið aðdrátt-
arafl fyrir ungt fólk að snúa sér
að kennslu, mér hefur hingað til
fundist það aðalvandamálið hvað
nýliðun er lítil í starfinu og vildi
gjarnan fá fleiri góða unga kenn-
ara til starfa.“
„Við erum heldur fáorð um
samninginn þangað til félagar
okkar eru búnir að semja og eru
lausir úr verkfalli,“ sagði Árni
Hermannsson sögukennari spurð-
ur um kjarasamninginn. Árni taldi
nemendur vel í stakk búna til að
takast á við námið að nýju, allir
mættir og stemmning almennt
góð. „Það er líklega minni hætta á
að nemendur hverfi frá námi úr
bekkjaskóla eins og Verzl-
unarskólanum heldur en úr fjöl-
brautaskólum. Þetta stafar af því
að jólapróf hér eru aðeins stöðu-
mat en ekki lokaáfangi svo það er
minna að tapa.“
Árni sagðist að öllum líkindum
fara hraðar yfir námsefni vorann-
arinnar á næstu vikum en gert
hefði verið ráð fyrir en slíkt færi
reyndar eftir því hvort mennta-
málaráðuneytið sendi frá sér op-
inber tilmæli um hvernig haust-
önninni skuli lokið. „Ég sé fyrir
mér að við vinnum af fullum krafti
og höldum góðum takti. Nem-
endur mega að vísu eiga von á
aukinni pressu og vinnu, það segir
sig sjálft, en mér sýnist þeir alveg
tilbúnir til þess.“ Spurður hvaða
áhrif samningurinn hefði á starf
framhaldsskólakennara sagði
Árni: „Við bindum miklar vonir
við að þetta verði boðlegt starf en
ekki afgangsstarf eins og það hef-
ur verið allt og lengi.“
Guðný Ragnarsdóttir, Ragnhild-
ur Ágústsdóttir og Sæunn Viggós-
dóttir eru nemendur í sjötta bekk
skólans og stefna á útskrift í vor.
Þær stöllur sögðust fegnar að
vera komnar aftur í skólann og
þær hlakkaði til að takast á við
námsefnið. Spurðar hvort þær ótt-
uðust meira álag vegna hraðari
yfirferðar námsefnis svöruðu þær
neitandi en viðurkenndu að það
væri slæmt að lenda í verkfalli
einmitt á stúdentsvetrinum.
„Hefði þetta gerst í fyrra hefð-
um við litið á verkfall sem kær-
komið frí og líklega ekki þótt
þetta neitt stórmál, en nú er meiri
alvara í náminu enda stutt í út-
skrift,“ sagði Ragnhildur og Sæ-
unn bætti við: „Nú eru nemendur
vel hvíldir og því betur undirbúnir
að takast á við verkefnin sem
framundan eru.“ Þremenningarnir
sögðu áhrifa verkfallsins líklega
ekki gæta eins mikið hjá nem-
endum Verzlunarskólans og öðr-
um þar sem verkfallið hefði aðeins
staðið í um þrjár vikur, og þeir lít-
ið misst úr kennslu, stóra spurn-
ingin væri hvort og þá hvenær
miðsvetrarpróf yrðu tekin. „Það
hefði verið gott að taka jólaprófin
því þá rifjar maður upp námsefnið
auk þess að sjá hvar maður stend-
ur í náminu og hvort harðar þarf
að leggja að sér,“ sagði Sæunn.
„Það var nú samt bara einn sem
rétti upp hönd á fundinum í morg-
un þegar skólastjóri spurði hvort
við vildum taka jólapróf,“ sagði
Ragnhildur og bætti við að sá
hefði líklega ekki unnið neinar
vinsældakosningar meðal nem-
enda hefði handaupprétting hans
haft úrslitaáhrif. „Það væri nú
bara tímaeyðsla að taka jólapróf
með hefðbundnum hætti þ.e. eitt
próf á dag. Við getum alveg eins
tekið skyndipróf í tímum og haldið
áfram í öðrum fögum samkvæmt
stundaskrá,“ sagði Guðný.
Kennarar og nemendur Verzlunarskóla Íslands komnir aftur til starfa
Verkfall breytir
engu um útskrift
nemenda
Morgunblaðið/Golli
Mikil gleði ríkti meðal nemenda yfir að hittast aftur á „fyrsta degi eftir verkfall“.
Árni Hermannsson sögukennari
var fámáll um samninga en
sagði nemendur tilbúna að
mæta auknum kröfum kennara. Guðrún Egilson kvaðst ánægð með kjarasamning kennara.
Guðný Ragnarsdóttir, Ragnhildur Ágústsdóttir og Sæunn Viggósdóttir
stefna á útskrift á vordögum.
Skólastarf hófst að nýju í Verzlunarskóla Íslands
í gær og virtust nemendur jafnt sem kennarar
ánægðir með að verkfalli væri lokið og daglegt
líf komið í sinn rétta farveg.
ÞORVARÐUR Elíasson, skóla-
stjóri Verzlunarskóla Íslands, telur
ekki að fjárhagsstaða skólans muni
veikjast vegna nýgerðs kjarasamn-
ings skólans við kennara og gerir
ráð fyrir að tekjur muni hækka til
jafns við hækkun á útgjaldahlið
vegna samningsins en endanleg nið-
urstaða liggi þó ekki fyrir fyrr en
ljóst verður um hvað samið verður í
samningum ríkisins og framhalds-
skólakennara.
Ekki er fyrirhugað að staðið verði
undir launahækkunum vegna samn-
inganna með hækkun skólagjalda,
að sögn hans.
Samningur ríkisins og KÍ
hefur áhrif á tekjur VÍ
Verzlunarskóli Íslands er sjálfs-
eignarstofnun en fær fast rekstrar-
framlag úr ríkissjóði á hverju ári.
„Samningurinn sem slíkur hefur
engin áhrif á teknahliðina en sá
samningur sem ríkið gerir við sína
kennara hefur áhrif á teknahlið
okkar skóla, þar sem við fáum greitt
samkvæmt reiknilíkani með sama
hætti og allir aðrir framhaldsskólar.
Ég á ekki von á að þessi samningur
sem við gerðum raski í neinu því
jafnvægi sem þar er,“ segir Þor-
varður.
Hann kvaðst ekki geta á þessari
stundu greint frá hver heildar-
hækkun yrði á útgjöldum skólans
vegna kjarasamninganna.
Raðað í nýtt launaflokkakerfi
1. ágúst næstkomandi
Þorvarður segir að samningarnir
hafi í för með sér miklar breytingar
á skólastarfinu. „Það hefur verið al-
varlegt vandamál í tvö ár að okkur
hefur gengið illa að auglýsa eftir
kennurum en ég vonast eftir að rót-
tækar breytingar verði nú á því.
Skólastarfið hefði ekkert getað
gengið svona áfram við þær kring-
umstæður að ekki væri hægt að
finna ný kennaraefni. Nú er hins
vegar hægt að lýsa því með miklu
einfaldari hætti hvað fólk hefur í
kaup. Þessir taxtar voru svo lágir að
það hvarflaði ekki að neinum ungum
manni að líta við kennslu. Ég held
að menn fái núna allt önnur skilaboð
með þessum kauptöxtum, þar sem
launin eru sýnileg,“ sagði hann.
Svo sem fram hefur komið hækka
grunnlaun kennara um rúm 50% frá
1. janúar, aðallega vegna tilfærslna
á milli yfirvinnu og dagvinnu og þar
sem greiðslur fyrir ýmsa þætti sem
greitt hefur verið sérstaklega fyrir,
s.s. bekkjaálag og umsjón, orlof,
prófa- og verkefnagreiðslur, færast
inn í grunnlaunin. Launin hækka að
öðru leyti um 3% frá sama tíma í
samræmi við hækkanir sem samið
hefur verið um á almenna vinnu-
markaðinum. Skv. upplýsingum
Morgunblaðsins hækka laun um 3%
1. janúar á næsta ári og um 2,75% 1.
janúar 2003. Loks hækkar launa-
tafla um 9% 1. desember 2003, en
samningurinn gildir til 30. apríl árið
2004.
Þá mun skv. upplýsingum blaðs-
ins vera gert ráð fyrir að kennarar
raðist í nýtt launaflokkakerfi 1.
ágúst næstkomandi í samræmi við
aldur, menntun og ábyrgð, sem á að
hafa í för með sér tæplega 9–10%
hækkun mánaðarlauna.
Skólastjóri Verzlunarskóla Íslands um nýgerðan kjarasamning við kennara
Launahækkunum
ekki mætt með
hækkun skólagjalda