Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 50
HESTAR
50 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
JÓN Baldur Lorange, sem jafn-
framt er verkefnisstjóri World-
Fengs, segir að nýja kerfið verði
aðgengilegt hrossaræktendum á
Netinu á þessu ári og gæti þetta því
verið í síðasta sinn sem prentuð
gögn til útfyllingar verða send til
þeirra. Sá möguleiki verður hins
vegar áfram fyrir hendi fyrir þá
sem ekki nota Netið. Nú er í gögn-
unum í fyrsta sinn merkt við þau
hross sem staðist hafa gæðavottun
á ætternisfærslu, svokallaða A-
vottun. Þar með er hrossaræktin
fyrsta búgreinin sem tekið hefur
gæðaskýrsluhald í gagnið.
Nauðsynlegt að skila
inn stóðhestaskýrslu
Jón Baldur segir að nú séu um
1.000 hross komin með A-vottun
eða gæðavottun. Það geta hross
sem fædd eru eftir 1999 fengið hafi
verið skilað inn stóðhestaskýrslu
sem umsjónarmanni stóðhests er
falið að fylla út. Þar koma fram
upplýsingar um allar hryssur sem
voru hjá hestinum umrætt tímabil,
hvort þær voru ómskoðaðar og nið-
urstöður úr þeirri skoðun. Einnig
þarf að skila inn fang- og folalda-
skýrslu sem þátttakendur í skýrslu-
haldinu fá nú hálfútfylltar. Þar
koma nú fram upplýsingar um
hvaða stóðhesti hryssan var hjá
samkvæmt innsendri stóðhesta-
skýrslu. Síðan þarf hrossaræktand-
inn að fylla út hvort hryssa hafi
kastað og þá hvors kyns folaldið er
og einstaklingsnúmer þess. Þá þarf
einnig að skila inn vottorði um að
folaldið hafi verið einstaklings-
merkt, örmerkt eða frostmerkt, á
meðan það gekk enn undir hryss-
unni. Hross sem fædd eru fyrir
1999, eða áður en þetta kerfi var
tekið upp, geta aðeins fengið A-
vottun ef ætternið er sannað með
DNA-greiningu.
Fyrir utan að nú koma fang- og
folaldaskýrslur hálfútfylltar er
ýmsar aðrar breytingar að finna í
gögnunum. Í búskýrslu þar sem all-
ar upplýsingar um einstakt hross er
að finna koma nú fram fangupplýs-
ingar, sem sagt hvort hryssu hafi
verið haldið undir stóðhest eða ekki
og eins ef hún hefur verið geld. Á
afdrifaskýrslu er hægt að merkja
við hvort hross hafi farist, verið
fargað eða ef hestar hafa verið gelt-
ir.
Þá hefur svokölluðum 40 númer-
um verið breytt. Þau númer fengu
hross sem ekki var vitað hvenær
voru fædd. Nú eru þau merkt ZZ.
Mikilvægt að hrossaræktendur
sendi inn leiðréttingar
Nokkuð er um að hrossarækt-
endur hafa orðið varir við að hross
þeirra séu skráð á rangan uppruna-
stað. Jón Baldur segir að þessar
villur hafi komið inn þegar verið var
að færa gögn á milli kerfa. Stöðugt
er reynt að leiðrétta rangar upplýs-
ingar og hvetur hann fólk til að láta
vita ef einhverjar villur finnast í
gögnunum. Hægt er að gera það
með því að fylla inn í athugasemda-
dálkinn á afdrifaskýrslunni sem
fylgir skýrsluhaldsgögnunum eða
hafa samband við Bændasamtökin.
Það sé mjög mikilvægt að fá upp-
lýsingar um þetta og leiðrétta svo
WorldFengur verði sem réttastur.
Eins sé um allar aðrar villur, t.d.
hvort hross sé selt, hafi verið fellt
eða hestar geltir.
Jón Baldur segir að það séu hins-
vegar álitamál sem komi upp þegar
WorldFengur verður kominn í
gagnið og öll skráning fer fram raf-
rænt hjá hrossaræktendunum sjálf-
um. Spurning er til dæmis hvort
þeir eigi að geta breytt skráðum
uppruna hrossa sinna. Hann segir
að fyrst um sinn verði hægt að
grunnskrá hross með rafrænum
hætti en allar skráningar verða síð-
an yfirfarnar af sérstökum skrá-
setjurum.
Ræktendur geta notað
rafræna skráningu
næsta haust
En nú er verið að fínpússa
WorldFeng og sagði Jón Baldur að
að öllum líkindum verði kerfið sjálft
tilbúið í næsta mánuði. Skýrslu-
haldsnefnd alþjóðasamtaka eigenda
íslenskra hesta, FEIF, vinnur nú
ötullega að því að prófa það og fín-
stilla svo hægt verði að fara að taka
inn gögn erlendis frá, en fyrst um
sinn geta einungis sérstakir skrá-
setjarar frá aðildarlöndunum komið
gögnum inn í WorldFeng. Rafræn
skráning almennra hrossarækt-
enda verður svo líklega að veru-
leika næsta haust. Kerfið verður
síðan þróað áfram og reynt að nýta
alla möguleika.
Kati Ahola frá Finnlandi, sem nú
er formaður skýrsluhaldsnefndar
FEIF, hefur sent bréf til aðildar-
landanna þar sem gerð er grein fyr-
ir með hvaða hætti þurfi að skrá
hrossin svo hægt verði að flytja
gögnin inn í WorldFeng. Samþykkt
hefur verið að nota sama númera-
kerfi og hér er notað, þ.e. tvo bók-
stafi fyrir hvert land, fæðingarár og
tölustafina 1 eða 2 eftir kyni. Síðan
er spurning hvort notuð verði rað-
tala, en helst vill Jón Baldur að
hvert land skipti landinu upp í
svæði eins og gert er hér og búi til
númer yfir þau og síðan fái hver
ræktandi föst þriggja stafa númer.
Þetta þýðir að í sumum löndum
þarf að breyta þeim númerakerfum
sem fyrir eru og leggst það misjafn-
lega í nefndarmenn. Einnig vill
hann að hver ræktandi noti rækt-
andanafn í líkingu við bæjarnöfn
sem hross eru kennd við hér á landi.
Hann segir mikilvægt að byrja
rétt því ekkert hross verður skráð í
WorldFeng nema hægt sé að rekja
ættir þess til hrossa sem fædd eru
hér á landi. Ef vel tekst til mun
verða til gríðarmikill gagnagrunnur
eftir nokkur ár.
Norðmenn
komnir vel á veg
Norðmenn eru komnir vel á veg
með að skrá sín hross en sú vinna
miðar öll að því að auðvelda skrán-
ingu í WorldFeng. Vinnan er mis-
jafnlega á veg komin í öðrum aðild-
arlöndum.
Byrjað var að vinna við smíði
fyrstu útgáfu af WorldFeng í febrú-
ar á síðasta ári og þá var gert ráð
fyrir að henni yrði lokið á haust-
mánuðum. Það hefur ekki tekist
enda mikil vinna sem fólst í þessari
breytingu. Flytja þurfti gögn úr
gamla Feng yfir í WorldFeng, gera
nýja gagnagrunninn aðgengilegan
á Netinu þar sem aðeins þarf vef-
rápara og netaðgang til að fá fullan
aðgang að kerfinu. Þá þurfti að
byggja upp öfluga og örugga að-
gangsstýringu til að tryggja varan-
leika gagnagrunnsins og vista nýja
kerfið með öruggum hætti þar sem
afritun grunnsins yrði tryggð, en
það er vistað hjá Skýrr hf. Mögu-
leika á skráningu upplýsinga hér á
landi og erlendis þurfti að byggja
inn í kerfið til að gera gagnagrunn-
inn alþjóðlegan. Þetta á bæði við
um skrásetjara í hverju landi og
einstaka skýrsluhaldara. Ganga
þurfti frá samningum við FEIF um
samstarf um uppbyggingu á þess-
um sameiginlega alþjóðlega gagna-
grunni. Taka þurfti mið af sam-
þykktu gæðaskýrsluhaldi í
hrossarækt og byggja gæðavottun
inn í kerfið.
Jón Baldur segir að þessum
markmiðum hafi verið náð en það
hafi tekið lengri tíma en búist var
við í upphafi.
Þúsund hross komin
með gæðavottun
Svona kemur hluti af upplýsingum um Orra frá Þúfu fyrir sjónir í WorldFeng sem stefnt er að að verði bæði
notendavænn og umhverfisvænn gagnagrunnur yfir öll íslensk hross hvar sem þau eru stödd í heiminum.
Gögn vegna skýrsluhalds í hrossarækt hafa verið að berast hrossaræktendum að undanförnu en þau eru í fyrsta
sinn prentuð út úr hinum nýja alþjóðlega gagnagrunni WorldFengur. Jón Baldur Lorange, forstöðumaður
tölvudeildar Bændasamtaka Íslands, sagði Ásdísi Haraldsdóttur frá helstu breytingunum í skýrsluhaldinu og
hvar vinna við WorldFeng væri á vegi stödd.
STARFSEMI Íslenska reiðskólans
á Ingólfshvoli hefst eftir helgina
eftir nokkurt hlé. Reynir Að-
alsteinsson skólastjóri segist
bjartsýnn og væntir góðs af starf-
semi skólans í vetur. Hann segir
að nú fari að hefjast ýmiss konar
námskeið og þegar hefur verið
samið við bæði grunnskólana á
Selfossi og Fjölbrautaskóla Suð-
urlands um stigskipt nám í hesta-
mennsku fyrir nemendur þeirra.
Óvíst er þó hvenær sú starfsemi
hefst vegna kennaraverkfallsins.
Reynir segir að áhersla hafi
verið lögð á gott framboð af
styttri afmörkuðum námskeiðum
við skólann og möguleika fyrir
hópa, fjölskyldur og félög á að
panta námskeið eftir eigin ósk-
um, en nú eigi eftir að koma í
ljós hver viðbrögðin verða. Hann
segir að umbylta þurfi mörgu á
sviði námskeiða og náms í hesta-
mennsku. Það hafi viljað loða við
hestamenn að þeir drífi sig á
námskeið og finnist þeir þá hafa
lokið því af. Hingað til hefur
vantað samfellu í nám og að stöð-
ugt sé hægt að bæta við sig.
Meðal námskeiða sem nú verð-
ur boðið upp á er leiðrétting-
arnámskeið. Þau eru fyrir þá sem
vilja auka hæfni hestsins eða láta
leiðrétta hann. Lögð er áhersla á
ábendingar og gangtegundir,
léttleika í taumsambandi, höf-
uðburð og að jafna misstyrk.
Fólk kemur þá með sinn hest og
sýnir Reyni hann. Þetta eru vik-
unámskeið þannig að eftir að
Reynir hefur séð hestinn vinnur
hann með hann fram að helgi
þegar eigandinn kemur og fær
einkatíma á hestinum. Reynir
segir að flestir eigendur hafi
einnig áhuga á að fylgjast með á
meðan hann vinnur með hestinn
og er þeim það að sjálfsögðu
heimilt. Hann segist vilja að þess
háttar námskeið verði nokkurs
konar akkeri í starfsemi skólans.
Hann hafi mikla reynslu af slík-
um námskeiðum sem hann hefur
haldið erlendis og segist sjá
geysilegan árangur af þeim.
Þeir sem vilja læra tamningar,
hestamennsku almennt eða fá
reiðkennslu geta gert það á
nokkurs konar verknámsbraut
undir leiðsögn kennara, hvort
sem þeir verða á staðnum eða
ekki. Reynir segir að þetta nám
sé í rauninni í biðstöðu á meðan
ekki hefur samist um að nem-
endur sem ljúka því útskrifist
sem félagar í Félagi tamninga-
manna. Hann segir að slíkt nám
verði ekki nógu eftirsóknarvert
fyrr en hægt verði að bjóða þeim
sem ljúka því upp á slíka við-
urkenningu. Hann hafi trú á að
það komi með tímanum.
Allar nánari upplýsingar um
starfsemi Íslenska hestaskólans
og námskeið sem í boði eru þar
er að finna á heimasíðu skólans,
www.hestaskolinn.is.
Áhersla á stutt afmörkuð nám-
skeið hjá Íslenska reiðskólanum
SLIM-LINE
dömubuxur frá
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050