Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 20
ÚR VERINU
20 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
44. starfsár
Social Foxtrot - það nýjasta
Þú verður fær um að dansa við 90% af öllum lögum sem leikin eru á
venjulegum dansleik eftir 10 tíma
Línudans
Auðveldir og skemmtilegir. Bók fylgir
með lýsingu á dönsunum
10 tíma námskeið Gömlu dansarnir
10 tíma námskeið
og þú lærir ótrúlega mikið.
Break
Ásgeir, margfaldur Íslandsmeistari, og
Gummi kenna.10 tíma námskeið.
Upprifjunartímar
Einn tími á sunnudögum.
Einn dans tekinn fyrir í hvert skipti.
10 tíma námskeið.
Salsa
Dansinnsem fer sigurför um
heiminn.
10 tíma námskeið
Erla og Juan Melgar
Freestyle
Erla Haraldsdóttir kennir
10 tíma námsskeið..
Dans ársins
La Luna
Samkvæmisdansar - barnadansar
Áratuga reynsla okkar og þekking tryggir þér bestu fáanlegu kennslu.
14 vikna námskeið fyrir fullorðna
14 vikna námskeið fyrir börn.
Dansleikur í lokin.
Keppnisdansar
Svanhildur Sigurðardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir
frábærir þjálfarar í keppnisdönsum.
14 vikna námskeið - Mæting 1x, 2x eða 3x í viku
Brúðarvalsinn
Kenndur í einkatíma.
Innritun fer fram í síma 551 3129
milli kl. 15 og 22 daglega til 8.janúar..
Geymið auglýsinguna
DANS - HOLL ANDLEG OG LÍKAMLEG ÍÞRÓTT FYRIR ALLA - LL LE LÍ LE Í TT F I LL
AFLAVERÐMÆTI skipa Þor-
móðs ramma-Sæbergs hf. var 2.757
milljónir króna á nýliðnu ári en
2.831 milljón 1999 og munar því 74
milljónum á milli ára. Bolfiskaflinn
dróst saman um 1.887 tonn en
rækjuaflinn jókst um 1.375 tonn.
Þrjú skip voru gerð út á bolfisk
bæði árin og var afli þeirra 13.737
tonn árið 2000 en 15.624 tonn árið
1999. Rækjuafli fimm skipa 1999
var 4.683 tonn 1999 en 6.058 tonn
2000.
Skip lengi í slipp
Ólafur H. Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Þormóðs ramma-
Sæbergs, segir að heldur hafi
veiðst minna af þorski á nýliðnu ári
en árið 1999 auk þess sem úthaldið
hafi verið minna á skipunum.
Frystitogararnir Kleifaberg og
Mánaberg hafi verið lengi í slipp
árið 2000 en rækjuskipin Sunna og
Stálvík hafi verið í breytingum
1999 og í þessu liggi munurinn.
Samt sem áður hafi afli og verð-
mæti verið undir áætlun árið 2000
og megi það rekja til erfiðleika í
veiðum seinni hluta ársins, en hann
áréttar að frystitogararnir hafi
verið í sínar fimm vikurnar hvor í
slipp, sem hafi gert gæfumuninn.
Hins vegar sé þetta eðlilegt, því
skip fari í slipp annað hvert ár, en
gert sé ráð fyrir að nýhafið ár
verði ágætt. „Flest bendir til þess;
kvótastaðan er sterk og afli í
rækju hefur verið að glæðast,“
segir Ólafur.
Þormóður rammi-Sæberg hf
"#
$"$
"##
"##
$%
"%
&#
&
%
$
$"$
"
"&$
%$
& %
%&
"
&%&
#
#
%#
&#
##
&&
$
&
'()* ) )+*, -.-! , -
Minni afli
og minna
verðmæti
FASTANEFND Evrópusambands-
ins um dýrafóður kemur saman í lok
janúar til að ræða endanlega skýrsl-
una um hámark díoxíns í fóðurteg-
undum, sem vísindanefnd ESB sendi
frá sér á nýliðnu ári, en engin mörk
eru til um innihald díoxíns í dýrafóðri.
Díoxín er þrávirkt eiturefni, sem
getur valdið ýmsum slæmum kvillum
meðal annars krabbameini. Það verð-
ur til við bruna við lágt hitastig, sér-
staklega þar sem klórefni koma við
sögu, svo sem pappírsgerð. Það
myndast við bruna á úrgangi og við
skógarelda svo dæmi séu tekin. Díox-
ínið myndast því fyrst og fremst við
mengun, einkum frá iðnaðarlöndum.
Eiturefnið berst út í andrúmsloftið en
endar loks í sjónum. Þaðan berst það í
fiska og fleiri sjávardýr, sest í fitu
þeirra og safnast upp. Mest er af efn-
inu í dýrum ofarlega í fæðukeðjunni,
feitum fiski og fiski sem bæði er feitur
og verður gamall, en dýrin geta ekki
losað sig við eitrið. Mun meiri díox-
ínmengun er á norðurhveli en suður-
hveli vegna meiri mengunar frá iðn-
aðarríkjunum og til dæmis finnst
mjög lítið af því í fiski og fiskimjöli og
lýsi frá Chile og Perú.
Til þessa hefur ekki verið talið að
innihald díoxíns í fiski eða fiskafurð-
um eins og mjöli og lýsi hafi verið yfir
þeim mörkum að það skaði mannfólk-
ið. Viðmiðanir Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar WHO um „þolanlegt“
innihald í matvælum er 1 til 4 píkag-
römm á hvert kíló líkamsþunga dag-
lega. Píkagramm er afar smá mæli-
eining eða einn milljónmilljónasti úr
grammi. Fyrir nokkrum mánuðum
kom upp umræða um að setja hámark
díoxíns innan ESB í fiskimjöli og lýsi,
sem notað er í dýrafóður. Lægstu
mörk, sem rætt var um voru 2.000
píkagrömm í kílói, en það hefði leitt til
þess að notkun þessara afurða frá Ís-
landi hefði verið bönnuð. Talið er, að
sé miðað við 10.000 píkagrömm í
hverju kílói af lýsi og 6.000 í hverju
kílói af mjöli, verði í lagi með þessar
afurðir héðan. EFTA-ríkin eru með
áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og til-
lögurétt í fóðurnefndinni og er Ólafur
Guðmundsson, starfsmaður aðfanga-
eftirlitsins, fulltrúi Íslands. Hann seg-
ir að á fundinum í lok mánaðarins
verði ekki tekin ákvörðun í málinu en
þá liggi væntanlega fyrir tillögur
framkvæmdastjórnar ESB um hvaða
mörk hún vilji setja á leyfilegt díox-
ímagn í ýmsum fóðurtegundum og
þar á meðal mjöli og lýsi. Nefndin
tekur afstöðu til tillagna fram-
kvæmdastjórnarinnar sem síðan gef-
ur út tilskipun í málinu.
Hámark díoxíns í mjöli og lýsi
Skýrslan rædd
í lok janúar
NOKKRIR bátar voru á síldarmið-
unum um 35 mílur vestsuðvestur af
Öndverðarnesi í gær og höfðu menn
þegar fengið ágætis síld en bátarnir
hafa ekki verið úti síðan fyrir jól.
Jóna Eðvalds SF fór frá Höfn í
Hornafirði aðfaranótt miðvikudags,
kom á miðin út af Snæfellsnesi árla
morguns í gær og fékk 150 tonn í
fyrsta kasti. „Það er ágætis síld
hérna en hún virðist ekki vera eins
góð aðeins sunnar,“ sagði Ingólfur
Ásgrímsson skipstjóri og taldi sjö
eða átta báta vera á miðunum. „Það
er norðaustan kaldafýla í honum,
fimm til sex gömul vindstig, en
sléttur sjór.“
Sunnuberg NS fór frá Vopnafirði
í gær og var einskipa í suðurkant-
inum á Héraðsflóanum. „Bátarnir
voru á þessu veiðisvæði fyrir jólin
en enn er ekkert að sjá enda
bræla,“ sagði Magnús Þorvaldsson
skipstjóri.
Fyrir áramót hafði verið landað
rúmlega 76 þúsund tonnum af síld
og höfðu um 23 þúsund tonn farið í
frystingu, um fimm þúsund tonn í
salt og um 48 þúsund tonn í
bræðslu en um 42.600 tonn eru eftir
af kvótanum.
Antares á loðnuna
Verið var að gera nokkur skip
tilbúin til loðnuveiða út af Aust-
fjörðum síðdegis en veður hefur
seinkað brottför þeirra. Þar á meðal
voru Hólmaborg SU og Guðrún
Þorkelsdóttir SU á Eskifirði, Júpi-
ter ÞH á Þórshöfn og Björg Jóns-
dóttir ÞH á Húsavík.
Antares VE lagði af stað frá
Vestmannaeyjum síðdegis og sagði
Grímur Jón Grímsson skipstjóri að
ekki væri eftir neinu að bíða en
hugsanlega gæti veðrið sett strik í
reikninginn fyrir austan. „Við leit-
um að henni í kantinum út af Aust-
fjörðum og svo norður með,“ sagði
Grímur. „Þetta er samt ekki mjög
gæfulegt. Rannsóknaskipin fundu
enga loðnu þarna fyrir hátíðarnar
en það finnst heldur ekkert nema
maður gái að því.“
Morgunblaðið/Sigurgeir
Skipverjar á Antares VE frá Vestmannaeyjum tóku loðnunótina um borð í gær og gerðu klárt fyrir vertíðina.
Nokkrir bátar komnir
á síldarmiðin
Síldveiðar byrjaðar aftur vestur af Snæfellsnesi