Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 21
SÍFRERI sem heldur um
nokkra hæstu fjallstindana í
Evrópu er að bráðna og skapar
það hættu á að skíðastaðir og
Alpaþorp drukkni í aurskriðum
og grjóthruni, að því er fram
kom á ráðstefnu fyrr í vikunni.
Formaður hóps vísindamanna
er hafa fylgst með bráðnun sí-
frera í Ölpunum fyrir hönd Evr-
ópusambandsins og svissneskra
yfirvalda sagði að hitastig í sviss-
nesku Ölpunum hefði hækkað
um hálfa til eina gráðu á und-
anförnum fimmtán árum.
Dr. Charles Harris, við Card-
iff-háskóla í Bretlandi, sagði á
ráðstefnu Konunglega landa-
fræðifélagsins og Bresku land-
fræðingastofnunarinnar í Ply-
mouth í Bretlandi að hættan er
skapaðist vegna bráðnandi sí-
frera ætti við allt suður í Sierra
Nevada á Spáni, þar sem sífreri
hefur fundist í hæstu tindum.
Dr. Harris og samstarfsfólk
hans hefur komið upp eftirlits-
kerfi í borholum í fjallgörðum í
Noregi, Svíþjóð, Svalbarða og
Pýreneafjöllum, auk Alpanna og
á Spáni, til þess að mæla hvernig
sífreranum reiði af í þeirri hlýn-
un sem spáð er að verði á jörð-
inni á næstu 50 árum.
Í ljósi mælinga í 100 metra
djúpum borholum skammt frá
Murren og Zermatt í Sviss hafa
vísindamennirnir reiknað út að
hitastigið í klöppum og mold í
Ölpunum hafi hækkað um eina til
tvær gráður á undanfarinni öld.
Breytingarnar á sífreranum
eru því jafnar hopun jökla í
heiminum undanfarin hundrað
ár. Dr. Harris segir: „Ef hitinn
þarna er einungis mínus tvær
eða þrjár gráður þarf ekki mikla
hlýnun til að fara yfir frost-
mark.“
Efsti metrinn í jarðvegnum
þiðnar jafnan á sumrin, sagði
hann, en ef sífrerinn byrjar að
þiðna gefur jörðin meira eftir og
þá gæti skapast hætta á aur-
skriðum er gætu haft skelfilegar
afleiðingar í bröttum hlíðum
Alpadala.
Dr. Harris sagði ennfremur að
líklegustu afleiðingar minnkandi
sífrera væru aukið landbrot í
brekkum. „Maður mun ekki sjá
heilu fjöllin hrynja, þetta verður
staðbundið.“ Mest verði hættan
á aurskriðum og grjóthruni af
völdum minnkandi sífrera í mán-
uðunum ágúst, september og
október.
Sífreri er í yfir 2.500 metra
hæð í Ölpunum og yfir 3.000
metrum í Pýreneafjöllum. Norð-
ur á Svalbarða nær hann niður
að sjávarmáli.
Sífrerinn þok-
ar í Ölpunum
The Daily Telegraph.
LÖG sem banna hundaát voru sam-
þykkt á Taívanþingi á þriðjudag.
Kveða þau á um bann við því að kjöt
og feldir af gæludýrum eins og
hundum og köttum verði nýtt „í
efnahagslegum tilgangi“. Hver sá
sem brýtur lögin á yfir höfði sér allt
að 10.000 Taívandollara sekt, and-
virði um 26.000 króna.
Að sögn eins þingmannsins, sem
greiddi lögunum atkvæði sitt, eru
þau áfangi í því að færa Taívan inn
í „siðmenntaðri tíma“.
„Ég hef haft mikið dálæti á hund-
um allt frá barnæsku,“ sagði Wang
Hsin-nan, þingmaður núverandi
stjórnarflokks Taívans, DPP, en
hann átti frumkvæði að löggjöfinni.
Að hans mati væri hundaát skilj-
anlegt svo lengi sem þjóðin væri fá-
tæk. En með hinni hröðu efna-
hagsþróun sem Taívanar hefðu
búið við í mörg ár bæri að stöðva
þessa hefð.
Hundakjöt mun enn vera fáan-
legt á matvælamörkuðum í öðrum
Asíulöndum, svo sem í Kína og Suð-
ur-Kóreu.
Þingið á Taívan
bannar hundaát
Taípei. AFP.