Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 22
ERLENT
22 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MAÐUR búinn skotvopnum,
sem hafði hótað að sprengja í
loft upp ríkissjónvarpsmiðstöð-
ina í Lissabon í Portúgal í gær,
gaf sig fram við lögreglu eftir
átta klukkustunda umsátur.
Hann hafði ráðist inn í stöðina
með konu sína og tvær dætur
meðferðis. Sagði hann hótanir
sínar vera vegna fréttar sem
stöðin hafði sent út um fyrir-
tæki hans og orðið þess
valdandi að það varð gjald-
þrota. Í útvarpsviðtali fyrr í
gær hafði maðurinn hótað að
ráða sjálfum sér bana.
Pólverjar
vilja rannsókn
PÓLVERJAR kröfðust þess í
gær að fram færi „alþjóðleg
rannsókn“ á fregnum þess efnis
að Rússar hefðu flutt kjarna-
vopn til Kaliningrad við
Eystrasalt. Rússar hafa þar
flotastöð og neita því að kjarna-
vopn hafi verið flutt þangað og
segjast standa við þau heit sín
að halda Eystrasaltinu kjarn-
orkuvopnalausu svæði. Pólverj-
ar segja að ekki sé víst hvort
taka megi fullyrðingar Rússa
trúanlegar vegna þess að þeir
hafi áður bannað eftirlit á Kal-
iningrad-svæðinu.
Pakistanar
vongóðir
ÞJÓÐARÖRYGGISRÁÐ Pak-
istans ræddi í gær möguleikana
á viðræðum við Indverja vegna
deilna ríkjanna um Kasmírhér-
að og kváðust Pakistanarnir
bjartsýnir á upphaf friðarum-
leitana. Sendinefnd frá aðskiln-
aðarsinnum í indverska hluta
héraðsins er væntanleg til Is-
lamabad, höfuðborgar Pakist-
ans, um miðjan mánuðinn til
viðræðna við stjórnvöld. Lét
öryggisráðið í ljós bjartsýni í
gær um að heimsóknin yrði til
þess að viðræður um framtíð
héraðsins gætu hafist með þátt-
töku Indverja, Pakistana og
Kasmíra.
134 ára
Dagestani
ELSTI maður í heimi er 134
ára gamall íbúi í rússneska
sjálfstjórnarlýðveldinu Dagest-
an, sem á landamæri að
Tsjetsjníju, að því er þarlendir
embættismenn greindu frá í
gær. Maðurinn heitir Gayirk-
han Iriskhanov og er sagður vel
ern og stálminnugur. Hann eigi
níu börn, 40 barnabörn og 50
barnabarnabörn. Hann hafi
aldrei reykt og einungis drukk-
ið áfengi í hófi og uppáhalds
maturinn hans er kindakjöt. Að
sögn embættismanna býr Ir-
iskhanov „því miður við erfiðar
aðstæður, í lélegu húsnæði þar
sem ekki er einu sinni rennandi
vatn“. Stjórnvöld eru að íhuga
að gefa honum nýja íbúð.
Kramnik
með forystu
RÚSSINN Vladimír Kramnik
er með tveggja vinninga for-
skot í atskákeinvígi sínu við
Ungverjann Peter Leko er nú
stendur í Búdapest. Hefur
Karmnik þrjá vinninga en Leko
einn. Alls er einvígið 12 skákir.
STUTT
Byssu-
maður
gafst upp
LÆKNIRINN sem
gerði aðgerð á Jóhann-
esi Páli páfa II 1994
sagði í viðtali sem birt
var í gær að lyfin sem
páfi, sem er áttræður,
tæki vegna Park-
insonveiki hefðu áhrif
á andlitsvöðva hans og
göngulag.
Þetta er víðtækasta
og opinskáasta viðtal
sem nokkur lækna páf-
ans hefur veitt til
þessa. Læknirinn, Gi-
anfranco Fineschi, er
bæklunarsérfræð-
ingur, og sagði hann að
skjálftinn í annarri
hendi páfans væri
vegna Parkinsonveik-
innar.
Lyfin sem páfi tæki til að hafa
hemil á einkennum veikinnar hafi
áhrif á stjórn vöðva og minnki and-
litshreyfingar, auk þess að valda því
að hann haltri þegar hann gengur.
Viðtalið við Fineschi birtist í viku-
ritnu Oggi.
Vatíkanið hefur
aldrei opinberlega við-
urkennt að páfi þjáist
af Parkinsonveiki og
hefur aldrei neinn af
læknum hans fyrr
nefnt veikina í
tengslum við hann.
Grunur um að páfi
væri haldinn þessum
sjúkdómi, sem ræðst á
taugakerfið og breiðist
hægt út um líkamann,
vaknaði fyrst í byrjun
síðasta áratugar þegar
mikill skjálfti í vinstri
hönd páfa varð aug-
ljós.
Ennfremur virðist
páfi oft þjást af vöð-
vastífni í andliti og hægu, haltrandi
göngulagi, en hvort tveggja gæti
verið einkenni Parkinsons eða
skyldra sjúkdóma. Fineschi segir
aftur á móti að þetta stafi fremur af
lyfjunum en sjúkdómum. Ekki er vit-
að nákvæmlega hvaða lyf páfi tekur.
Parkinsonslyf
hafa áhrif á
göngulag páfa
AP
Þúsundir manna fögnuðu páfa á Péturstorginu þegar hann kom til messu í Páfagarði í gær.
Banal kvaðst hafa skráð hluta-
félögin í október 1999 og afsalað sér
hlutabréfum í þeim þegar hún hefði
hætt störfum fyrir lögmannsstofu
Serapios. Hún sagðist ekki vita hverj-
ir hefðu tekið við hlutabréfunum.
Saksóknararnir sögðu að hluta-
félögin væru „gervifyrirtæki“ sem
Estrada og samstarfsmenn hans
hefðu notað til að ávaxta mútufé og
hagnað af ólöglegu fjárhættuspili.
Serapio var skipaður ráðgjafi for-
setans hálfu ári áður en hlutafélögin
voru stofnuð. Hann var einnig fram-
kvæmdastjóri góðgerðastofnunar
sem saksóknarar segja að forsetinn
hafi einnig notað til að fela mútufé.
Vitnisburðinum vísað á bug
Verjendur Estrada sögðu að ekk-
ert væri hæft í þessum ásökunum og
vitnisburður Banal væri runninn
undan rifjum pólitískra andstæðinga
forsetans. Hún væri nú starfsmaður
lögmannsstofu undir stjórn eins af
hörðustu andstæðingum Estrada.
Estrada er sakaður um mútu-
þægni, fjárglæfra, trúnaðarbrest og
brot á stjórnarskránni. Ef tveir
þriðju af 22 þingmönnum öldunga-
deildarinnar finna hann sekan um
eitt eða fleiri ákæruatriðanna verður
hann sviptur embættinu.
AP
Joseph Estrada skoðar verslun sem sett var á fót með stuðningi ríkisins
til að selja ódýr matvæli í fátækrahverfi í Caloocan-borg.
Réttarhöldin yfir forseta Filippseyja
Bendlaður við
„gervifyrirtæki“
Manila. AP, AFP.
EITT af vitnum ákæruvaldsins í réttarhöldunum yfir Joseph Estrada, forseta
Filippseyja, sem hefur verið ákærður til embættismissis, kvaðst í gær hafa
aðstoðað við að stofna tvö hlutafélög sem saksóknarar segja að forsetinn hafi
notað til að fela mútufé. Maria Jasmine Banal, 27 ára starfskona lögmanna-
stofu í Manila, sagði að fyrrverandi lögmaður Estrada, Edward Serapio, hefði
falið henni að stofna hlutafélögin. Hún og fleiri starfsmenn lögmannsins hefðu
verið skráð sem eigendur hlutafélaganna.
Róm. Reuters.
Páfi gengur til sætis
er hann veitti píla-
grímum áheyrn í
Vatíkaninu í gær.
RÁÐAMENN Evrópusambandsins, ESB, íhuga
nú að efna til sjálfstæðrar rannsóknar á vegum
þess á notkun á svonefndu rýrðu úrani í sprengjur
er flugher Atlantshafsbandalagsins notaði á sínum
tíma í Bosníu og Kosovo. Óttast er að geislun frá
úraninu hafi valdið krabbameini í friðargæslulið-
um sem starfað hafa á svæðinu en sex ítalskir
gæsluliðar hafa látist út hvítblæði. Nokkur Evr-
ópuríki, þ. á m. Ítalía, Tyrkland, Belgía, Frakk-
land, Finnland, Tékkland og Portúgal hafa þegar
látið kanna heilsufar hermanna sinna en ekki hafa
fundist neinar sannanir fyrir því að óttinn sé á rök-
um reistur.
Fulltrúar NATO segja að bandalagið muni ekki
láta fara fram könnun á hugsanlegum áhrifum úr-
ansins en veita Ítölum og fleiri þjóðum alla þá að-
stoð og upplýsingar sem hægt sé að láta í té.
Sprengjurnar umræddu eru húðaðar með rýrðu
úrani, sem er afar þungur málmur, eðlisþyngdin
nær tvöfalt meiri en í blýi. Mun þyngri tegund af
málminum er notuð í kjarnorkuvopn og sem elds-
neyti í orkuverum. Úranið eykur slagkraft
sprengjunnar og sprengjuoddarnir eiga þá auð-
veldara með að rjúfa brynvörn skriðdreka og ann-
arra öflugra farartækja og mannvirkja. Flugmenn
NATO beittu slíkum vopnum gegn her Bosníu-
Serba 1994-1995 og gegn her Serba í Kosovo-
stríðinu 1999. Að sögn talsmanna NATO skutu
bandarískar flugvélar alls um 10.000 sprengjum
með úranhleðslum á serbnesk skotmörk á Balk-
anskaga á þessum árum. Vopnum af þessu tagi var
einnig beitt gegn Írökum í Flóabardaga 1991.
Talsmennirnir bentu á að aldrei hefði hvílt nein
leynd yfir notkuninni.
Engin tengsl staðfest
Marco Minniti, aðstoðarvarnarmálaráðherra
Ítalíu, viðurkenndi í að rannsókn hefði ekki leitt í
ljós nein tengsl milli dauða hermannanna sex sem
fengu hvítblæði og rýrða úransins. Ekki væri
heldur neitt sem benti til að sömu orsakir væru að
baki sjúkdóms mannanna. Samt sem áður legði
hann til að NATO íhugaði að banna notkun úrans-
ins.
Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar
ESB, sagðist í gær deila áhyggjum ýmissa rík-
isstjórna vegna málsins. Sagði hann að banna ætti
notkun úransins ef minnsta vísbending fyndist um
að geislun frá sprengjuleifunum gæti síðar valdið
fólki tjóni. „En jafnvel þótt engin slík áhætta
reyndist vera fyrir hendi líkar mér ekki að notuð
sé svo sérkennileg og ógnvekjandi vopn,“ sagði
Prodi. Hann bætti því við að ekki væri nóg að fá að
vita allan sannleikann um ástand hermanna held-
ur einnig um heilsufar óbreyttra borgara á svæð-
inu. Hefðu fulltrúar ESB þegar haft samband við
stjórnvöld í Serbíu og Bosníu vegna hugsanlegra
heilbrigðisvandamála sem úranið hefði valdið.
Stjórnarandstæðingar á Ítalíu hafa gagnrýnt
stjórnina fyrir að hafa lagt fram herlið í Kosovo-
stríðinu. Segja þeir nú að þegar í stað beri að kalla
heim alla ítalska hermenn frá Balkanskaga.
Að kröfu Ítala verður málið rætt í yfirstjórn
NATO á laugardag og hafa þeir fengið stuðning
Frakka, Belga og Portúgala í þeim efnum. Tals-
maður franska varnarmálaráðuneytisins sagði að
fjórir franskir gæsluliðar, sem verið hefðu á Balk-
anskaga, væru nú á sjúkrahúsi og fengju með-
höndlun vegna hvítblæðis.
„Málið er orðið alvarlegt og áhyggjurnar eru
fyllilega eðlilegar,“ sagði Giuliano Amato, for-
sætisráðherra Ítalíu. Í liðinni viku ákváðu ítölsk
stjórnvöld að láta rannsaka veikindi 30 hermanna
er starfað hafa við friðargæsluna á Balkanskaga
undanfarin ár.
Rýrt úran í sprengjum NATO og hvítblæði meðal friðargæsluliða
ESB íhugar rannsókn
Brussel, Róm. AP, AFP, Reuters.