Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ragnar fékk grænt
ljós á HM/B1
Annar sigur
Ísfirðinga/B2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FÖSTUDÖGUM
Morgun-
blaðinu í dag
fylgir
blað frá
Heilsuhúsinu.
REYKKAFARAR björguðu í gær manni sem hafði
lokast inni í vélsmiðju við Kársnesbraut í Kópavogi
vegna elds og reyks. Maðurinn var í sambandi við
Neyðarlínuna allan tímann og gat starfsmaður
hennar leiðbeint reykköfurunum til hans.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi fjölmennt
lið frá öllum þremur stöðvum liðsins. Slökkvistarf
gekk greiðlega en talsverðar skemmdir urðu á vél-
smiðjunni af völdum sóts og reyks. Þá varð spreng-
ing við útidyr sem braut rúður og þrýsti út hurðum.
Nokkur reykur barst einnig á efri hæð hússins.
Heldur óþægileg tilfinning
Hjálmar Benediktsson, sem lokaðist inni í vél-
smiðjunni, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að
sér heilsaðist nokkuð vel. Hann fékk þó brunasár á
hönd og væga reykeitrun og var fluttur á Landspít-
ala – háskólasjúkrahús í Fossvogi en var útskrif-
aður þaðan í gærkvöldi.
Hjálmar var að gera við bensíntank á bifreið þeg-
ar óhappið varð. Hann hafði þurft að losa tankinn af
bílnum og tæmdi af honum bensínið í brúsa. Að lok-
inni viðgerð hugðist hann dæla bensíninu aftur á.
Þá hljóp neisti í bensínið og eldur komst í fullan
bensínbrúsann. „Ég tek brúsann og fer fram að
dyrum. En þá gat ég ekki opnað þær. Þær stóðu á
sér og ég komst ekki út,“ segir Hjálmar. Þegar
hann setti brúsann frá sér skvettist upp úr honum
svo úr varð mikill eldur. „Ég fór þá inn á kaffistof-
una, lokaði að mér og hringdi á Neyðarlínuna.“
Í sambandi við Neyðarlínu
allan tímann
Starfsmaður Neyðarlínunnar sagði honum að
leggjast á gólfið og Hjálmar fór úr peysunni og setti
hana fyrir vit sér. „Rafmagnið fór fljótlega af og ég
sá ekkert. Þetta var heldur óþægileg tilfinning,“
segir Hjálmar. Nokkur reykur barst inn á kaffistof-
una og hann segir mikinn styrk hafa verið að því að
vera í sambandi við Neyðarlínuna allan tímann.
Hjálmar tilkynnti eldinn kl. 15.02 og um 12 mín-
útum síðar komu reykkafarar að honum. Þeir settu
á hann reykköfunartæki og leiddu hann út úr hús-
inu. Slökkvistarfi var lokið um kl. 15.30.
Guðmundur Sigurpálsson, eigandi vélsmiðjunnar
og eini starfsmaður, sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær að tjónið væri umtalsvert en hann hyggst
kanna það betur í dag. Mikið sót er á veggjum og
líkur til þess að einhverjar skemmdir hafi orðið af
völdum vatns. Innanstokksmunir og vélbúnaður í
smiðjunni var ekki tryggður.
Reykkafarar björguðu manni úr eldsvoða í Kópavogi
Neisti hljóp í bensínbrúsa
Morgunblaðið/Þorkell
Mikið sót og reykur er á veggjum og vélbún-
aði vélsmiðjunnar enda reykur mikill þegar
slökkvilið kom að.
STJÓRN Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar hf. samþykkti í gær að auglýsa ís-
rækjutogarann Hólmanes SU til
sölu án aflaheimilda. Skipinu var lagt
í nóvember og áhöfn þess sagt upp
störfum í lok nóvember sl.
Að sögn Elfars Aðalsteinssonar,
forstjóra fyrirtækisins, er skipið
auglýst nú til sölu sem liður í hag-
ræðingu innan fyrirtækisins og til
samhæfingar veiða og vinnslugetu.
Rækjuvinnsla fyrirtækisins hefur
verið lokuð undanfarnar vikur vegna
hráefnisskorts og segir Elfar ekki
ljóst hvenær rækjuvinnsla hefst á
Eskifirði á ný. Hann segir fyrirtækið
eiga tvö skip sem geti aflað vinnsl-
unni hráefnis hefjist vinnsla þar að
nýju, Votaberg SU og Guðrúnu Þor-
kelsdóttur SU. „En eins og ástandið
er í dag sjáum við ekki fram á að við
opnum rækjuvinnsluna á næstu dög-
um eða vikum. Við getum vonandi
hafið loðnufrystingu innan tíðar og
þar nýtist starfsfólkið að hluta til.“
Hólmanes
sett á sölu
EIGENDASKIPTI verða á
næstunni á jörðinni Stóra-
Kroppi í Reykholtsdal í Borg-
arfirði. Núverandi eigendur
hafa samþykkt tilboð Kristínar
Hjörleifsdóttur, læknis í Sví-
þjóð, í eignina.
Jón Kjartansson, sem nú
starfar sem aðstoðarbanka-
stjóri verðbréfabanka í Sviss,
byggði upp búskap á Stóra-
Kroppi. Hann mótmælti áform-
um Vegagerðarinnar um að
leggja nýjan veg um land hans,
skammt frá bænum, og lauk
deilunum með því að ákveðið
var að leggja veginn á svipuð-
um slóðum og áður. Jón brá
hins vegar búi og í fyrra seldi
hann jörðina. Eigendur hennar
hafa verið að undirbúa skipu-
lagningu frístundabyggðar en
hafa nú samþykkt tilboð Krist-
ínar Hjörleifsdóttur í jörðina.
Kristín hefur búið lengi í Sví-
þjóð og starfar þar sem læknir.
Eftir er að leita tilskilinna
leyfa fyrir sölu jarðarinnar,
meðal annars hjá hreppsnefnd
Borgarfjarðarsveitar, sem hef-
ur forkaupsrétt.
Læknir
kaupir
Stóra-Kropp
GYLFI Ingvarsson, aðaltrúnaðar-
maður í álveri ISAL í Straumsvík,
segir að meðal þess sem tekist er á
um í samningaviðræðum við ISAL sé
lengd samnings. Starfsmenn séu hik-
andi við að gera samning til mjög
langs tíma þar sem þeir njóti ekki
launaskriðs sem sama hætti og
margir aðrir launamenn.
Gylfi sagði að síðasti samningur,
sem gekk úr gildi 30. nóvember, hefði
gilt í þrjú ár. Á þeim tíma hefði verið
mikil þensla á vinnumarkaðinum og
verulegt launaskrið. Starfsmenn
ISAL hefðu ekki notið þess þar sem
þeir væru á fastlaunasamningi og
vildu þess vegna síður gera samning
til langs tíma. Langtímasamningur
þyrfti að innihalda tryggingar eða
möguleika á að opna samninginn, en
Samtök atvinnulífsins hefðu til þessa
verið treg til að koma til móts við
óskir starfsmanna hvað þetta varðar.
Gylfi sagði að í viðræðunum hefði
verið farið yfir það launaskrið sem
verið hefur á markaðinum og starfs-
menn ISAL hafa ekki notið. Hann
sagðist telja að þótt ISAL hefði að
nokkru leyti komið til móts við
starfsmenn hvað þetta varðar þyrfti
meira að koma til. Gylfi sagði að
starfsmannavelta í álverinu væri
komin upp í 30% sem væri alveg nýtt
fyrir stjórnendum fyrirtækisins og
skýrðist af óánægju með launin. Fyr-
irtækinu hefði einnig gengið mjög
illa að fá iðnaðarmenn til starfa.
Fundur verður í kjaradeilunni í
dag.
Þokast í samkomu-
lagsátt hjá ISAL
Tekist á um
samnings-
tímann
Mjög kalt hefur verið í veðri síðustu daga. Þessi stóru grýlukerti vöktu að vonum athygli þessara hafnfirsku pilta.
Morgunblaðið/RAX
ÍBÚAR við Dísarland í Bolungarvík
telja það góðan kost að hús þeirra
verði keypt af ofanflóðasjóði og nýr
varnargarður liggi að hluta yfir því
svæði sem húsin standa á. Vegna
nýrrar reglugerðar um snjóflóða-
varnir hefur stjórn ofanflóðasjóðs
hafnað að taka þátt í að reisa fyrir-
hugaðan varnargarð sem byggja átti
ofan við húsin. Þrátt fyrir garðinn átti
áfram að gera ráð fyrir að húsin yrðu
rýmd þegar snjóflóðahætta væri fyrir
hendi, en sex hús standa við Dísar-
land.
Sigríður L. Gestsdóttir býr ásamt
fjölskyldu sinni í Dísarlandi 8 og seg-
ist ánægð með að málið skuli vera
komið í þennan farveg. „Þetta er það
sem við vildum, við vorum ekki sátt
við þá leið sem var valin, að vera síðan
óörugg eftir sem áður. Þetta er mikill
léttir, það er ekki hægt að lýsa því fyr-
ir fólki sem ekki þekkir til, hvernig
þessar tilfinningar eru.“ Að sögn Sig-
ríðar hefur snjóflóð fallið inn í húsið,
en þar býr nú sex manna fjölskylda.
Hún segir það ótrúlegt álag á fjöl-
skylduna að þurfa sífellt að rýma hús-
ið á veturna og að sú leið sem búið var
að ákveða hafi ekki verið nein lausn
fyrir íbúana.
„Við höfum verið að tala saman
hérna í götunni og höfum ekki verið
sátt, en það hljóta allir að vera ánægð-
ir með þetta.“ Ragnheiður Benedikts-
dóttir leigir ásamt fjölskyldu sinni
húsið Dísarland 6 og segist telja að
íbúar við götuna séu mjög sáttir við
uppkaup enda sé lítið vit í að gera
varnargarð þegar fólk þarf engu síður
að rýma húsin ef eitthvað kemur upp
á.
Magnús Jóhannesson, formaður of-
anflóðanefndar, segir að ekki liggi
fyrir endanleg niðurstaða varðandi
snjóvarnargarð í Bolungarvík en þó
sé ljóst að ofanflóðasjóður taki ekki
þátt í kostnaði við þá leið sem búið var
að samþykkja. Að sögn Magnúsar eru
sérfræðingar nú að endurskoða leið
fimm sem felur í sér að varnargarð-
urinn verður færður neðar þannig að
rífa þarf húsin við Dísarland. Að
þeirri endurskoðun lokinni heyrir það
undir bæjarstjórn Bolungarvíkur að
ákveða hvaða leið verður farin, en of-
anflóðasjóður mun ekki taka þátt í
kostnaði við áður samþykktar fram-
kvæmdir óski bæjarstjórn Bolungar-
víkur að fara út í þær. Ólafur
Kristjánsson, bæjarstjóri Bolungar-
víkur, segir að búist sé við að
bæjarstjórn fái um miðja næstu viku
erindi þar sem farið verður yfir laga-
legan og faglegan þátt sem rökstyður
breytingar á framkvæmdum við varn-
argarðinn og ekki sé hægt að tjá sig
um málið fyrr en það liggur fyrir.
Hann segir þó að lögð verði áhersla á
að breytingar hafi ekki áhrif á tíma-
setningu framkvæmda.
„Ég hef lagt áherslu á að við fáum
lagalega og faglega umsögn um þetta
og þessi breyting hafi ekki áhrif á áð-
ur samþykktan framkvæmdahraða,
þ.e. að þessu ljúki á tveimur árum,
byrjað verði að bjóða þetta út í vor og
unnið í sumar og á næsta ári.“
Íbúar við Dísarland í Bolungarvík eru fegnir því að húsin verði keypt
Erfitt að þurfa
að rýma húsin