Morgunblaðið - 05.01.2001, Side 16
LANDIÐ
16 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VERSLUNIN HÆTTIR
SÍÐUSTU DAGARNIR
80% AFSLÁTTUR
OPIÐ
FÖSTUDAG 9-18.30
LAUGARDAG 10-18
SUNNUDAG 10-183
ALLT AÐ
NÓATÚNI 17 S: 511 4747
Fagradal - Ný heimarafstöð var tekin í notkuní Kerl-
ingadal í Mýrdal um áramótin. Að sögn Karls Pálma-
sonar bónda er áætlað að ná 8 kílóvöttum út úr þessari
virkjun sem er í bæjarlæknum rétt hjá bænum. Þetta
er svokölluð skrúfutúrbína smíðuð að Árteigi í Þing-
eyjarsýslu en þar hafa verið smíðaðar túrbínur um
áratuga skeið. Þessi gerð af túrbínu hentar vel fyrir
mikið vatn en lítið fall.
Karl segist strax vera farinn að athuga með stærri
virkjun. Hilmar Haraldsson, túrbínusmiður í Reykja-
vík, hefur skoðað aðstæður og telur raunhæfan kost að
virkja annan læk lengra frá bænum sem gæti gefið allt
að 150 kílóvött af rafmagni, en áður en Karl fer út í þá
virkjun sem myndi kosta mjög mikið, sagðist hann
verða að vera kominn með samning við RARIK um
sölu á umframrafmagni inn á almenningsveiturnar.
Heimaraf-
stöð tekin
í notkun
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Karl Pálmason og Hilmar Haraldsson við stærri lækinn.
Karl Pálmason
hleypir vatni á nýju
skrúfutúrbínuna.
Selfossi - Magnús Ólafsson, for-
stjóri Osta- og smjörsölunnar, af-
henti nýlega fulltrúum svæðis-
stjórna björgunarsveita í Árnes- og
Rangárvallasýslum eina milljón
króna að gjöf. Karl Björnsson, yf-
irmaður almannavarna í Árborg og
nágrenni, tók við gjöfinni og af-
henti hana síðan fulltrúa svæðis-
stjórna björgunarsveitanna í Ár-
nes- og Rangárvallasýslum.
Jón Sigurðsson tók við gjöfinni
fyrir hönd svæðisstjórna í Árnes-
sýslu og Jón Hermannsson fyrir
hönd Rangæinga.
Stjórn Osta- og smjörsölunnar
samþykkti á stjórnarfundi í júní að
styrkja björgunarsveitir í Árnes-
og Rangárvallasýslum um eina
milljón króna. Í fréttatilkynningu
um þessa samþykkt segir: „Stjórn-
in telur að sveitirnar hafi staðið sig
afar vel í hjálparstarfinu eftir jarð-
skjálftana og styrkurinn er hugs-
aður til frekari uppbyggingar
björgunarsveitanna. Suðurland er
blómlegt landbúnaðarhérað og
tengsl Osta- og smjörsölunnar við
fjórðunginn eru mikil, ekki síst í
gegnum Mjólkurbú Flóamanna.“
Björgunarsveitir stóðu
undir væntingum
„Skipulag og framkvæmd björg-
unarstarfs, m.a. í tengslum við
jarðskjálfta, mæðir mjög á svæð-
isstjórnum björgunarsveitanna. Í
sumar sönnuðu þær svo um munar
getu sína og að þær standa undir
þeim væntingum sem gerðar eru til
þeirra.
Það er almannavörnum í héraði
mikilvægt að björgunarsveitir á
viðkomandi stöðum séu vel búnar
og það geta þær einungis ef al-
menningur og fyrirtæki sýna þeim
velvild m.a. með styrkveitingum.
Það góða fordæmi sem Osta- og
smjörsalan sýnir með þessari gjöf
gæti því orðið öðrum hvatning til
góðra verka á þessu sviði,“ sagði
Karl Björnsson, bæjarstjóri og for-
maður almannavarnanefndar Ár-
borgar og nágrennis.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gjöfin afhent björgunarsveitarmönnum. Frá vinstri: Birgir Guðmundsson, framkvæmdastjóri MBF og stjórn-
armaður í Osta- og smjörsölunni, Sigurbjörn Bjarnason, Hveragerði, Ámundi Kristjánsson, Minna Núpi í
Hreppum, Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar, Kristján Einarsson, Selfossi, Jón Hermannsson,
Hvolsvelli, Einar Jónsson, Ásbrún í Landeyjum, Einar Brynjólfsson, Götu í Holtum, Friðrik Sigurjónsson, Vega-
tungu í Tungum, Karl Björnsson, bæjarstjóri Árborgar, og Jón Sigurðsson, Eyrarbakka.
Afhenti björgunarsveit-
um eina milljón króna
Stykkishólmi - Það eru
eflaust ekki margir
hér á landi sem kann-
ast við spilið pídró.
Hér áður fyrr var það
mikið spilað í Helga-
fellssveit og var mjög
vinsælt. Þá var ekki
komið saman á bæjum
á milli hátíða öðru vísi
en spilað var pídró. Nú
hefur slíkum heim-
sóknum fækkað og
pídró-spilamennskan
nærri gleymd.
Um jólin ákvað ung-
ur Hólmari, Lárus
Hannesson, að gera til-
raun til að endurvekja
pídró og kanna áhuga
og kunnáttu á spilinu.
Hann fékk kvenfélags-
konur í Helgafellssveit til liðs við
sig og auglýst var pídró-spilakvöld
að félagsheimilinu að Skildi í
Helgafellssveit. Þar mættu um 50
manns og var það betri mæting en
reiknað var með.
Lárus var mjög ánægður með
kvöldið og kom fólk víða að til að
spila. Hann sagðist ekki vita um að
pídró væri spilað annars staðar á
landinu. Þegar Lárus var spurður
um hvaðan pídró væri upprunnið
sagði hann að maður að nafni Hall-
dór Sigurðsson frá Svelgsá hafi
komið með það frá Ameríku. Hall-
dór fór til Vesturheims frá Svelgsá
í Helgafellssveit fyrir aldamótin
ásamt bróður sínum Sigurði. Hann
kom svo í heimsókn að Svelgsá árið
1921, en þar bjó Guðbrandur bróðir
hans. Hann fór að kenna fólkinu í
sveitinni spil sem kallaðist pídró.
Ekki leið á löngu þar til spilið var
orðin ein helsta skemmtun í sam-
kvæmislífi Helgfellinga. Það kom
Lárusi á óvart hvað margir kunnu
spilið og höfðu spilað það hér áður
fyrr. Hann sagðist hafa orðið var
við mikinn áhuga og vonaðist til að
framhald yrði á pídró-spila-
mennsku.
Það var vel mætt á pídró-spilakvöldið á Skildi.
Þarna eru að spila saman Hinrik á Helgafelli,
96 ára, Hermann Guðmundsson, Hannes
Gunnarsson og Högni Bæringsson.
Pídró spilað í
Helgafellssveit
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason