Morgunblaðið - 05.01.2001, Page 24
ERLENT
24 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Undirfataverslun,
Kringlunni , 1. hæð,
sími 553 7355.
Útsala
RÚMLEGA 4.000 hektarar af kjarr-
lendi og að minnsta kosti fimm
íbúðarhús hafa eyðilagst í óslökkv-
andi eldi í austurhluta San Diego-
sýslu í Kaliforníu frá því á miðviku-
dag. Eldurinn magnaðist í miklu
hvassviðri en búist var við í gær að
hægt yrði að slökkva hann í dag þar
sem spáð var logni. Hundruð
manna urðu að flýja heimili sín og
rýma þurfti fangelsi sýslunnar og
spilavíti á verndarsvæðum indíána.
Einn íbúa sýslunnar gefur hér hesti
sínum fóður eftir að hafa flúið
heimili sitt.
AP
Skógar-
eldur í
Kaliforníu
RÁÐAMENN í bandaríska seðlabankanum
gripu á miðvikudag til róttækra aðferða gegn
afturkippnum í efnahagsmálum, sem er þegar
orðinn að veruleika. Millibankavextir voru
lækkaðir um hálft prósent, úr 6,5% í 6%, en
svo mikil hækkun hefur ekki verið ákveðin frá
1992, venjulega eru breytingarnar í hvert sinn
aðeins fjórðungur úr prósenti. Markmiðið er að
reyna að koma í veg fyrir að afturkippurinn
breytist í kreppu.
Seðlabanki Evrópusambandsins ákvað á
fundi sínum í gær að halda vöxtum óbreyttum,
4,75%. Evran lækkaði nokkuð fyrst í stað eftir
tíðindin að vestan en náði sér aftur.
„Hrifningin á bandarískum verðbréfum í
kjölfarið á vaxtalækkuninni mun ekki duga til
að stöðva sókn evrunnar,“ sagði í fjármála-
punktum frá franska bankanum BNP Paribas.
„Seðlabanki Bandaríkjanna grípur afar sjaldan
til slíkra ráða og undirstrikar það enn betur en
annað hve varasamt ástandið er í bandarískum
efnahagsmálum.“
Í yfirlýsingu seðlabankans bandaríska sagði
meðal annars að lækkunin hefði verið ákveðin í
ljósi þess að neytendur virtust ekki hafa jafn
mikla trú á efnahagsástandinu og áður, sums
staðar í fjármálalífinu væru teikn um erfiðleika
og einnig tæki hærra orkuverð æ hærri toll af
neytendum og fyrirtækjum. Alan Greenspan
seðlabankastjóri er sagður hafa orðið áhyggju-
fullur er tölur bárust um jólaverslun í Banda-
ríkjunum er sýndu að hún hefur ekki verið
minni í áratug. Einnig sýndu tölur um iðnfram-
leiðslu, er birtar voru á þriðjudag, lélega nið-
urstöðu.
En vaxtalækkunin kom samt mörgum sér-
fræðingum á óvart, ekki síst vegna þess að
næsti fundur ráðsins sem venjulega tekur slík-
ar ákvarðanir mun ekki verða fyrr en í lok
mánaðarins. Hún hafði þegar í stað mikil áhrif
á fjármálamörkuðum, gengi bréfa á Dow Jones
og Nasdaq í Bandaríkjunum hækkaði verulega.
En þótt dollarinn styrktist nokkuð í fyrstu á al-
þjóðlegum mörkuðum seig hann á ný og þykir
það benda til þess að áhyggjur af efnahags-
málum í Bandaríkjunum vaxi stöðugt. Sumir
spáðu því að næsta vaxtalækkun yrði þegar í
lok mánaðarins.
Sérfræðingar voru yfirleitt á því að ákvörð-
unin um lækkunina hefði verið rétt en sumir
töldu að hún hefði átt að koma fyrr. Aðrir
bentu á að hún gæti haft í för með sér fát hjá
fjárfestum, gæti fengið þá til að taka óþarfa
áhættu auk þess sem lækkunin myndi ef til vill
ekki duga til að stöðva samdráttinn í efnahags-
lífinu.
Enn aðrir sögðu að traustið á Greenspan,
sem hefur verið geysimikið, myndi minnka þeg-
ar menn áttuðu sig á því hve stutt væri síðan
hann hefði varað mjög við ofþenslu en nú gerði
hann ráðstafanir gegn kreppu.
Brian Robinson, sérfræðingur hjá fjármála-
fyrirtækinu 4Cast í Bandaríkjunum, sagðist
vera furðu lostinn. „Það liggur við að maður
haldi að hálfgert fát sé komið á þessa náunga
(hjá seðlabankanum),“ sagði hann.
George W. Bush, verðandi forseti Bandaríkj-
anna, sagðist vera ánægður með ákvörðunina
og hún myndi ekki breyta áætlunum hans um
miklar skattalækkanir á næstu árum.
„Ég held að lækkunin hafi verið nauðsynleg.
Hún sendi öflug skilaboð um að grípa þurfi til
ráðstafana til að tryggja að efnahagurinn sigli
ekki hraðbyri inn í kreppu,“ sagði Bush.
Vaxtalækkunin í Bandaríkjunum
Reynt að hamla
gegn afturkipp
Frankfurt, París, New York, London. The Daily Telegraph, AFP, AP.
Í báðum ræðunum léku umhverf-
ismál stór hlutverk; konungur
ræddi þau á heimsvísu og harmaði
að ekki skyldi hafa fengist nið-
urstaða á loftslagsráðstefnunni í
Haag í nóvember. Forsætisráð-
herrann, Jens Stoltenberg, gekk
skrefi lengra og tilkynnti að hætt
hefði verið við byggingu þriggja
orkuvera vegna umhverfisskaða
sem þau myndu valda.
Stoltenberg gagnrýndur
fyrir tvískinnung
Í leiðurum norskra blaða hefur
þeirri áherslu sem konungur og
forsætisráðherra lögðu á umhverf-
ismál verið fagnað þó að Stolten-
berg sé raunar gagnrýndur fyrir
tvískinnungshátt í umhverfismál-
um. Ástæðan er einkum sú að
Verkamannaflokkurinn felldi fyrri
ríkisstjórn vegna þess að hún var
andvíg byggingu gasorkuvers sem
fullyrt er að valdi mikilli mengun.
Hafa umhverfisverndarsinnar og
margir þingmenn krafist þess að
Stoltenberg verði samkvæmur
sjálfum sér og hætti einnig við
byggingu gasorkuversins.
Eftir stendur þó ánægja með að
umhverfismálin séu loksins komin
á dagskrá. „Umfjöllun konungs um
alþjóðaspurningar er varða and-
rúmsloftið og tillaga forsætisráð-
herra um að stöðva byggingu fleiri
vatnsorkuvera í ósnertri náttúru
undirstrikar að við stöndum á mik-
ilvægum tímamótum og það er
löngu kominn tími til að umræða
um umhverfismál komist aftur í
tísku,“ segir í forystugrein Aften-
posten.
Konungi hælt
Ber leiðarahöfundur lof á Nor-
egskonung fyrir að gagnrýna það
að ekki skyldi nást niðurstaða á
loftslagsráðstefnunni. Segir hann
orð hans til marks um að staða
hans sé að breytast úr því að vera
eingöngu til skrauts á hátíðar-
stundum og til að greiða fyrir við-
skiptasamningum við útlönd, og í
það að verða siðferðilegur leiðtogi.
Leiðarahöfundar eru aðeins
sparari á lofið í garð Stoltenbergs,
segja að ekki hafi mátt síðar vera
að Verkamannaflokkurinn hafi
reynt að reka af sér það slyðruorð
sem á honum hafi verið í umhverf-
ismálum. En betra sé seint en
aldrei, svo fremi sem ríkisstjórnin
standi við orð Stoltenbergs um að
endurmeta stefnuna í umhverfis-
og auðlindamálum til sjávar og
sveita.
Nýársræðum konungs og forsætisráðherra fagnað í Noregi
„Umhverfið sigraði“
NÝÁRSRÆÐUM norska forsætisráðherrans og Noregskonungs hefur verið
fagnað þar í landi þar sem kveða þykir við nýjan tón í umhverfismálum. „Um-
hverfið sigraði,“ er yfirskrift leiðara Nordlys og svipað er uppi á teningnum í
bæði Aftenposten og Dagbladet.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÚTSALAN
HEFST
Í DAG
Laugavegi 20,
sími 562 6062.
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR í Þýskalandi
kröfðust þess í gær að Joschka Fischer utanrík-
isráðherra segði af sér vegna viðtals við vikurit-
ið Der Stern þar sem hann viðurkennir að hafa
verið „herskár“ þátttakandi í hreyfingu vinstri-
sinnaðra námsmanna á fyrri hluta áttunda ára-
tugarins, m.a. tekið þátt í hústöku og slags-
málum við lögreglu. „Þessi játning hefur valdið
ímynd Þýskalands á alþjóðavettvangi miklum
skaða,“ sagði Günther Beckstein, þingmaður
CSU, systurflokks Kristilegra demókrata í Bæj-
aralandi. „Það er ekki lengur verjandi að Fisch-
er sé fulltrúi Þýskalands erlendis.“
Fischer gerði lítið úr kröfu stjórnarandstæð-
inganna. „Ég er ekki sami maðurinn og ég var
fyrir 26 árum,“ sagði hann. „Þið skulið endilega
krefjast afsagnar minnar ef þið skiljið það ekki.“
Þýsk dagblöð birtu í gær gamlar myndir af
Fischer og á nokkrum þeirra sést hann í átökum
við lögreglumenn.
AP
Krefjast afsagn-
ar Fischers