Morgunblaðið - 05.01.2001, Síða 29
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 29
ALMAR Guðmunds-
son, hagfræðingur og
forstöðumaður grein-
ingar hjá Íslands-
banka-FBA, ritar grein
í Morgunblaðið þann
30. desember undir
heitinu „Spámennskan
er ekkert grín“. Þar
gerir hann athuga-
semdir við ákveðin at-
riði í skrifum undirrit-
aðs í sama dagblaði
vikuna áður um efna-
hagsspár greiningar-
deilda sem bar heitið
„Af íslenskum spá-
mönnum“. Sá sem hér
ritar er ánægður með að fá viðbrögð
við grein sinni. Nokkurra mistúlkana
gætir í þessu svarbréfi sem nauðsyn
er að leiðrétta.
Óviss framtíð
Undirritaður aðhyllist ekki þá
skoðun að hagfræðingar á vegum
hins opinbera séu þeir
einu sem er treystandi
til þess að fjalla um
efnahagsmál og þarf
nokkra lagni til þess að
lesa þann boðskap út úr
nefndri grein um ís-
lenska spámenn. Sú
þróun er jákvæð að
bankar og verðbréfa-
fyrirtæki stofni grein-
ingardeildir sem láta að
sér kveða. En gagnrýn-
isvert er þó að flestar
greiningardeildirnar
hafa valið þá leið að
markaðsetja greining-
ar sínar sem naglfasta
spádóma fremur en
fjölhliða efnahagsumræðu. Í þeirri
viðleitni hafa margar fullyrðingar og
ágiskanir flogið sem hafa unnið frem-
ur lítið gagn fyrir fjármálamarkað og
viðskiptavini viðkomandi peninga-
stofnana. Staðreyndin er sú að efna-
hagsspár eru gífurlega erfiðar eins
og staðan er nú, m.a. vegna þess
hversu stutt kynni Íslendingar hafa
haft af frjálsum fjármagnsviðskipt-
um. Það er einnig af þessum sökum
að mörgum opinberum aðilum hefur
heldur ekki reynst auðvelt að spá fyr-
ir um framvinduna eins og Almar
bendir réttilega á. En þeim mun
meiri ástæða er til þess að sýna var-
úð.
Upplýsingar og ábyrgð
Almar nefnir einnig í athugasemd-
um sínum að einkaaðilar séu fullfærir
um að meta trúverðugleika upplýs-
inga og skilja kjarna frá hismi í efna-
hagsumræðu. Þannig hafi rangar eða
misvísandi spár lítil áhrif. Þetta er
aðeins rétt að ákveðnu marki. Það er
nú einu sinni svo að spádóma er að-
eins hægt að sanna eða afsanna í fyll-
ingu tímans og hér ber aftur að und-
irstrika bernsku íslensks fjármagns-
markaðar. Mjög fáir einkaaðilar hafa
langa sögu í efnahagsspám og því
erfitt að meta trúverðugleika þeirra
upplýsinga sem mönnum er miðlað
úr þeirri átt á grundvelli fenginnar
reynslu. Í flestum tilvikum fá því
greiningardeildirnar trúverðugleika
í forgjöf með því að vera innanbúðar í
peningastofnun sem hefur áunnið sér
traust. En þær peningastofnanir sem
standa að greiningardeildunum hafa
flestar tryggar rætur á fjármagns-
markaði og gegna þýðingarmiklu
hlutverki. Í raun má segja sem svo að
markaðurinn treysti dómgreind
þeirra sem greiða spámönnunum
laun, fremur dómgreind greiningar-
deildanna sjálfra eins og staðan er
nú. En þetta verður þó líklega ger-
breytt eftir 5 ár eða svo.
Þá er peningamarkaður það lítill
hérlendis að inngrip einstakra banka
eða verðbréfafyrirtækja geta skipt
sköpum. Þess vegna er hætt við því
að spár ákveðinna greiningardeilda
séu taldar vera vísbendingar um
gerðir þeirrar peningastofnunar þar
sem viðkomandi spámenn starfa. Ef
greiningardeild í stórum banka spáir
gengisfalli freistast menn til þess að
álykta að fjárvörslumenn bankans
hans muni veðja gegn krónunni á
gjaldeyrismarkaði og hafa því hvatn-
ingu til þess að gera áhlaup á gengið.
Af þessum sökum geta efnahagsspá-
dómar þessara aðila mótað vænting-
ar markaðarins og ræst af sjálfu sér.
Þetta getur gerst jafnvel þótt skoð-
annir séu skiptar um ágæti þeirrar
efnahagsgreiningar sem liggur að
baki þeirra.
Fram á veginn
Það er ánægjulegt að sjá að fyr-
irtæki í einkageira sjá nú ástæðu til
þess að ráða kraftmikla hagfræðinga
til þess að huga að efnahagsmálum
og þjóðhagsspám. Hér gætir enn
nokkurrar bernsku þar sem svo stutt
er síðan fjármagnsviðskipti urðu
frjáls og hjólin fór verulega að snúast
í fjármálaheiminum. En þegar fram í
sækir má fastlega gera ráð fyrir því
nefndar greiningardeildir gegni
mjög mikilvægu hlutverki fyrir
landsins gagn og nauðsynjar.
Spámanni svarað
Ásgeir
Jónsson
Efnahagur
Flestar greiningar-
deildirnar hafa valið
þá leið, segir Ásgeir
Jónsson, að markað-
setja greiningar sínar
sem naglfasta spádóma
fremur en fjölhliða
efnahagsumræðu
Höfundur er hagfræðingur og starf-
ar á Hagfræðistofnun Háskólans
herra
GARÐURINN
KRINGLUNNI
UTSALAN
er hafin