Morgunblaðið - 05.01.2001, Qupperneq 32
FERÐIR
32 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudaginn 7. janúar n.k. ætlar
Ferðafélagið Útivist að hefja starfs-
ár sitt með kirkjugönguferð eins og
venjulega. Ekki man ég hver átti
hugmyndina í upphafi, en fyrsta
ferðin tókst svo vel að ákveðið var
að gera þessar sérstöku ferðir að
árlegum viðburði. Ferðir þessar fel-
ast í því, annaðhvort að ganga
ákveðna leið til þeirrar kirkju sem
verður fyrir valinu hverju sinni, eða
fara beint til kirkju og ganga svo á
eftir. Þetta veltur svolítið á því
hvort messað er í þeirri kirkju sem
valin er, eða hvort haldin er sam-
veru- og helgistund í kirkjunni með
presti eða öðrum á vegum kirkj-
unnar, eða einhver úr okkar hópi
tekur að sér að stjórna samveru-
stundinni. Lesið er úr ritningunni,
sungnir tveir eða þrír sálmar og
blessunarorð og fyrirbænir fylgja
okkur úr hlaði.
Þar sem nú eru liðin 25 ár frá því
fyrsta kirkjuferðin var farin, er
ákveðið að fara nú í sömu kirkjuna
og þá, Krýsuvíkurkirkju. Þetta litla
yfirlætislausa guðshús, byggt 1857
sem stendur á bæjarhólnum rétt
við tóftir gamla og síðasta bæj-
arhúss Krýsuvíkur var komið í
mikla niðurníðslu. Endurbygging
kirkjunnar hófst 1957 og var hún
endurvígð 31. maí 1964 og er hún
eign Þjóðminjasafns. Við fengum
leyfi til afnota af kirkjunni og stór-
an, gamlan kirkjulykil fengum við í
hendur.
Það var varla orðið bjart þegar
við lögðum af stað kl.10.00 um
morguninn og nístingskalt, en stillt
og bjart veður, nema mikill skýja-
bakki var í austrinu. Þegar komið
var að kirkjunni þurfti að byrja á
því að moka stóran skafl frá kirkju-
dyrum. Inni í kirkjunni var kalt og
dimmt. Enginn hiti er í henni og
ekkert rafmagn, eina ljósmetið voru
kertastubbar í gömlum stjökum,
þrír á hvorum langvegg og svo á
altarinu. Litlu gluggarúðurnar voru
þaktar þykku lagi af hinum feg-
urstu frostrósum. Sólin var enn á
bak við skýjabakkann og það var
varla lesbjart inni. Þarna sátum við
kappklædd og reyndum að rýna í
sálmabækurnar. Með okkur var
séra Emil Björnsson sem m.a. fór
með pistil og guðspjall dagsins í
eigin frumsömdu, bundnu máli,
mjög svo eftirminnilegt. En svo
skeði undrið. Rétt sem presturinn
er að hefja upp raust sína á síðasta
sálminum „Hvað boðar nýárs bless-
uð sumarsól“ kom sólin upp fyrir
skýjabakkann og sendi geisla sína
inn í kirkjuna, gegnum þykkt lagið
af frostrósum á rúðunum. Kirkjan
ljómaði allt í einu roðagullnu ljósi
og frostrósirnar urðu rósrauðar.
Það litu allir upp í undrun og prest-
urinn missti tóninn eitt andartak,
en síðan hljómaði þessi fallegi,
gamli sálmur með meiri krafti á eft-
ir. Ég held að enginn sem þátt tók í
þessari stundu gleymi þessu augna-
bliki.
Á bak við kirkjuna, í miklum
halla niður af hólnum er kirkju-
garðurinn. Þar eru margar ómerkt-
ar þúfur, en nú stóð aðeins einn
legsteinn uppi á leiði Árna Gísla-
sonar fyrrverandi sýslumanns í
Skaftafellssýslum og stórbónda sem
lést 1898. Nú nýlega er komin ann-
ar minnisvarði í garðinn, yfir list-
málaranum Sveini Björnssyni sem
m.a. gaf kirkjunni altaristöflu, en
þessi tafla er aðeins í kirkjunni á
sumrin.
Eftir stundina í kirkjunni var far-
ið niður á Selatanga og staðurinn
skoðaður í nýju ljósi, snjó og kulda.
Þegar 20 ár voru liðin frá þessari
fyrstu kirkjuferð var komið við í
Krýsuvíkurkirkju á leið til kirkju
dagsins sem var Selfosskirkja. Í
það sinn var milt og stillt veður og
blautt á. Þá höfðum við með okkur
kerti og hver þátttandi, en kirkjan
var yfirfull, fékk logandi kerti í
hendur. Það var stigið í stólinn og
upp var lesinn pistill og guðspjall
séra Emils frá fyrstu ferðinni. Það
var stórkostleg stemmning í kirkj-
unni þar sem allir sátu með sín
kertaljós. Þetta var eftirminnileg
stund og gleymist víst ekki frekar
en fyrsta ferðin. Síðan var farið að
Kaldaðarnesi og gengið þaðan með
bökkum Ölfusár að Selfosskirkju.
Í tilefni 25. kirkjugöngunnar er
ætlunin að fara enn á ný í Krýsu-
víkurkirkju. Nú verður með okkur í
för séra Pétur Þorsteinsson, Úti-
vistarmönnum að góðu kunnur. Eft-
ir samverustund í kirkjunni verður
gengið á vit stórskáldsins og hug-
sjónamannsins Einars Benedikts-
sonar í Herdísarvík þar sem hann
bjó síðast og til dauðadags. Það er
fallegt í Herdísarvík og margt að
skoða. Farið verður frá Umferð-
armiðstöðinni kl.10.00.
Kirkjuferðir Útivistar hafa ekki
aðeins verið skemmtilegar heldur
einnig lærdómsríkar. Við fáum að
heyra sögu viðkomandi kirkju og
skoðum kirkjugripi. Í þessum
gömlu kirkjum vítt og breitt um
landið er að finna ómetanlega fjár-
sjóði dýrgripa sem þar hafa varð-
veist um aldir og segja má að komi
í stað lista- og minjasafna. Altaris-
töflur, málaralist, gull- og silfur-
smíði, tréskurður og listasaumur
oftast unnið af sjálflærðum bænd-
um og konum sveitanna. Einhver
sú eftirminnilegasta kristsmynd
sem ég hefi séð er í litlu Saurbæj-
arkirkjunni á Kjalarnesi, máluð á
tré 1836 af Sveinunga Sveinunga-
syni, svo undarlega sviphrein og
sterk. Gaman er að fá að skoða þá
frægu sálmabók, Leirgerði, sem
prentuð var í Lerárgörðum 1801 og
þótti svo vond bók að henni var gef-
ið þetta uppnefni og fyrirfinnst í
Leirárkirkju eða þá hinn stórkost-
lega fagra kaleik í kirkjunni að
Breiðabólstað í Fljótshlíð. Hann var
gefinn þangað álfkonu í þakklæt-
isskyni fyrir veitta hjálp og á að
fylgja lækningamáttur og svo mætti
lengi telja.
Ég er einnig sannfærð um að þau
blessunarorð og fyrirbænir sem
fylgt hafa okkur úr hlaði við hverja
árlega kirkjuheimsókn, hafi verið
félaginu til góðs og einnig öllum
sem þátt hafa tekið. Sjáumst og
gleðilegt nýtt ár.
Nýársferð
Útivistar
í Krýsuvík
Krýsuvíkurkirkja
Höfundur er fararstjóri hjá Útivist.
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist hefur starfið á nýju ári með kirkjugönguferð eins
og áður. Ferð í Krýsuvíkurkirkju var fyrsta ferð Útivistar fyrir aldarfjórð-
ungi. Nanna Kaaber segir frá, en ferðin verður endurtekin nú á sunnudag.
KNICKERBOX
Útsalan er hafin
Allt brjálað!!!
KNICKERBOX
Ótrúlegur afsláttur
20-70%
afsláttur
áður nú
Satínnáttföt 4990 1990
Náttserkur 3990 1199
Nærbuxur 1299 389
Brjóstahaldarar 2999 899
Silkibuxur 7699 5389
Silkitoppar 3999 2799
Bikini-sett 4599 2759
Sendum í póstkröfu
Laugavegi 62, sími 551 5444
KNICKERBOX
Kringlunni, sími 533 4555
LAUGAVEGI 36
Opnaðu
augun
30% verðlækkun á öllum
gleraugnaumgjörðum & gleri.
Langur laugardagur opið til kl. 17.00
Útsala
Algjört verðhrun
Ath. allar vörur á útsölu
Stærðir frá 36—56
OPIÐ kl. 10-17