Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 35
Setbergs-
er dregin
989 m) og
jafnframt
unkti F er
yfir Hof-
punkt G í
, þaðan er
nkt neðst í
punktur
n bein lína
heiði (909
annig síð-
þeirri línu
ðurfljót á
mörkunum
erður það
ðfylgjandi
unktur í
ra á Mýr-
punktur í
ður A hér.
tin í Við-
nu, sem
ðst í Hof-
t á Sand-
verður þá
punkti er
t neðst í
em verður
jökulrót-
l, allt þar
línu fyrir
d (863 m).
verður þá
indur E.
mark. Frá
n lína yfir
an Heina-
F sem er
r þar sem
n og jafn-
Skálafells
það loka-
nnig með-
4. Suðursveit: „Fyrsti punktur í
kröfulínu fjármálaráðherra um
þjóðlendumörk í Suðursveit er sá
sami og síðasti punktur á Mýrum
og er hann kallaður A. Hann er þar
sem landamerkjalína Skálafells að
austan sker Skálafellsjökul neðst (í
landamerkjabréfi er þessari línu
lýst sem línu sem liggur úr Hánípu
og í Snjófjall vestast). Frá punkti A
er dregin lína meðfram jökulrönd-
inni og í skurðpunkt (punktur B),
en hann er í jökulröndinni að vest-
anverðu, þar sem lína dregin úr
punkti A beint í Kálfafellstind (663
m) (punktur C) sker jökulinn. Þessi
lína frá jöklinum liggur yfir Skála-
fellshnútu, Borgarhafnarfjall og
Staðardal. Frá hornpunkti C er far-
ið í punkt D, sem er í Kálfafells-
fjöllum fyrir vestan Kaldárgil, og
verður það hornpunktur. Frá horn-
punkti D er dregin bein lína yfir
Kálfafellsdal í Staðarfjallstind (928
m) í Staðarfjalli, sem verður punkt-
ur E. Frá punkti E er dregin bein
lína í Breiðamerkurjökul við Þröng
vestan Fellsfjalls. Verður það
punktur F og hornpunktur. Frá
þessum hornpunkti er dregin lína
niður í sjó og verður punkturinn við
ströndina punktur G. Hann ákvarð-
ast, sem framhald af línu, sem dreg-
in er beint frá Prestfelli gegnum
punkt E og verður punktur G þann-
ig framhald af þeirri línu. Í punkti G
lýkur kröfulínu fjármálaráðherra
um þjóðlendumörk í Suðursveit.“
Sjá einnig meðfylgjandi kort.
5. Öræfi: „Fyrsti punktur í Öræf-
um er þar sem Kvískerjaland byrj-
ar við ströndina og er það punktur
A. Þessi punktur er á línu, sem ligg-
ur eins og segir í landamerkjabréfi
Kvískerja: „Að hæsta nef á Miðaft-
anstindi á Breiðamerkurfjalli beri í
mitt skarðið efst á Eiðnaskarðstindi
í sama fjalli.“ Frá punkti A er farið í
punkt B sem er þar sem sama lína
sker jökulrönd Fjallsjökuls. Punkt-
ur B verður hornpunktur. Frá
punkti B er dregin lína meðfram
jökulrönd Fjallsjökuls og Hrútár-
jökuls og frá jaðri Hrútárjökuls
(þar sem bein lína milli punkta B og
C sker jökulröndina) í punkt C, sem
er í Múla fyrir norðan Múlagljúf-
ur. Frá punkti C er dregin bein
lína í punkt D sem er framarlega í
Vatnafjöllum við Kvíárjökul. Frá
punkti D er dregin lína meðfram
jökulrönd Kvíárjökuls og um-
hverfis og allt að punkti E. Þaðan
yfir Staðarfjallið í punkt F, sem
er neðst í Hólárjökli. Þaðan er
dregin bein lína í Stórhöfða (784
m) fyrir ofan Fagurhólsmýri og
verður það punktur G. Úr punkti
G er farið beina línu yfir Hofsfjall
og í punkt í Goðafjalli (651 m) og
verður það punktur H og jafn-
framt hornpunktur. Frá punkti H
er dregin lína í punkt I sem er
neðst í Kotárjökli. Þaðan farið yf-
ir Sandfellsheiði í punkt J, sem er
neðst í Falljökli. Þaðan er dregin
bein lína í Öskuhnútu (917 m),
sem verður punktur K og næsti
punktur verður í jökulrönd Svína-
fellsjökuls þar sem lína beint úr
Öskuhnútu og í punkt efst í
Hafrafelli í 1174 m hæð sker jök-
ulröndina. Verður það punktur L.
Síðan er farið úr punkti L niður
með jökulrönd Svínafellsjökuls og
niður fyrir og síðan frá neðri hluta
Svínafellsjökuls nyrst, og í jökul-
rönd Skaftafellsjökuls þar sem
bein lína, sem er framhald af línu
sem dregin er frá Vesturhnútu
(919 m) í syðri Kristínartind (979
m) sker Skaftafellsjökul. Verður
þetta punktur M. Síðan er jökul-
röndinni fylgt vestur fyrir tung-
una og á punkt í jökulröndinni þar
sem fyrrnefnd lína sker jökulinn
og verður það punktur N. Frá
punkti N er farið í punkt O sem er
syðri Kristínartindur (979 m).
Þarna verður hornmark. Frá
Syðri Kristínartindi er dregin
bein lína yfir Morsárdal og Jök-
ulfellið og í Krossgilstind (698 m)
og verður það punktur P. Frá
punkti P er dregin bein lína að
upptökum Skeiðarár (punktur R).
Frá punkti R er dregin bein lína
til sjávar og þar verður punktur
S. Verður sú lína dregin þannig að
hún sé framhald línu, sem dregin
er beint á milli punkts N og Blá-
tinds (1177 m) og verður þannig
framhald þeirrar línu til sjávar.
Frá þessari línu og að sýslumörk-
um í vestri verður með þessu
þjóðlenda, en hún afmarkast í
vestri af línu, sem lýst er svo í
landamerkjalýsingu Skaftafells:
„Að Súlutinda beri hvorn í ann-
an,“ en þar er jafnframt komið að
mörkum þessa kröfusvæðis, sem
fjallað verður um í þessu máli fyr-
ir óbyggðanefnd.“ Sjá einnig
meðfylgjandi kort.“
Gengur miklu lengra
Albert Eymundsson, bæjar-
stjóri á Hornafirði, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að kröfur fjár-
málaráðherra fyrir hönd ríkisins
gengju miklu lengra en menn
hefðu átt von á. Hann hefði að
vísu ekki heyrt í mörgum landeig-
endum ennþá, en hann ætti von á
hörðum viðbrögðum þeirra í ljósi
þessarar kröfugerðar eins og
raunin hefði orðið á varðandi
kröfugerð fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkisins á Suðurlandi.
„Segja má að allt land í Austur-
Skaftafellssýslu hafi verið talið í
einkaeign nema jöklarnir, þannig
að nú reynir á,“ sagði Albert enn-
fremur.
Hann sagðist gera ráð fyrir að
sveitarfélagið og Búnaðarfélag A-
Skaftafellssýslu myndu í fram-
haldinu standa sameiginlega að
kynningar- og upplýsingafundi
um málið þar sem það snerti öll
svæði í sýslunni og þar með í
sveitarfélaginu. Kröfugerðin
snerti ótrúlega margar jarðir í
sýslunni.
Albert tók sem dæmi að í
kröfugerð fjármálaráðherra væri
alveg farið í sjó fram á Breiða-
merkursandi og á Skeiðarár-
sandi. Þá væru gerðar kröfur til
stórs hluta fjalllendisins milli
Nesja og Hornafjarðar, sem hefði
verið talið að væri í einkaeigu
enda hefðu sumir verið skikkaðir
til að smala þessi lönd vegna þess
að þeir væru eigendur þeirra.
Þannig væri til dæmis um Núp-
ana inn af Hoffelli, svo dæmi væri
tekið.
"$
" #"
!
"
#
!
vegna þjóðlendna í A-Skaftafellssýslu
ngra en
áð fyrir
fjár-
um
firði,
slu.
MÓTMÆLIN í Prag ífyrrakvöld vegna ráðn-ingar sjónvarpsstjóratékkneska ríkissjón-
varpsins voru þau mestu sem efnt
hefur verið til í Tékklandi frá
„flauelsbyltingunni“ svonefndu árið
1989 þegar stjórn kommúnista
hrökklaðist frá völdum í landinu.
Talið er að um hundrað þúsund
manns hafi komið saman á Václav-
torgi í miðborginni til þess að lýsa
yfir stuðningi við baráttu frétta-
manna, sem telja ráðningu frétta-
stjórans pólitíska, og yfir 130 þús-
und Tékkar hafa undirritað
yfirlýsingu þar sem afsagnar hans
er krafist.
Jiri Hodac var ráðinn sjónvarps-
stjóri tékkneska ríkissjónvarpsins
20. desember síðastliðinn. Frétta-
menn á sjónvarpsstöðinni hófu sama
dag mótmæli vegna ráðningarinnar,
en þeir halda því fram að tengsl Ho-
dacs við Vaclav Klaus, fyrrverandi
forsætisráðherra, grafi undan hlut-
leysi og trúverðugleika fréttastof-
unnar. Um 50 fréttamenn hafa lokað
sig inni á fréttastofu ríkissjónvarps-
sins síðan 23. desember og sent út
eigin fréttir. Minnihlutastjórn jafn-
aðarmanna í Tékklandi, undir for-
ystu Milosar Zemans, hefur undan-
farin tvö ár notið stuðnings flokks
Vaclavs Klaus, Borgaralega lýðræð-
isflokksins, sem hefur í staðinn hlot-
ið ýmis eftirsóknarverð embætti
innan stjórnsýslunnar og í ríkisfyr-
irtækjum. Vaxandi óánægju með
þetta fyrirkomulag hefur gætt með-
al almennings og ásakanir frétta-
mannanna um meintan klíkuskap
varðandi ráðningu Hodac hafa því
hlotið hljómgrunn meðal þjóðarinn-
ar.
Fréttamennirnir amast einnig við
því að Hodac hafi ráðið Jönu Bobosi-
kovu í starf fréttastjóra, en hún var
áður einn af ráðgjöfum Václavs
Klaus. Hodac gegndi reyndar
fréttastjórastarfinu um fjögurra
mánaða skeið á síðasta ári en sagði
af sér í ágúst eftir miklar væringar á
fréttastofunni.
Hodac segir ekkert
hæft í ásökunum
Áður en Jiri Hodac tók við starfi
fréttastjóra hjá tékkneska ríkissjón-
varpinu hafði hann meðal annars
verið yfirmaður tékkneskudeildar
breska ríkisútvarpsins, BBC. Sjón-
varpsráð tékkneska ríkissjónvarps-
ins valdi hann úr hópi 32 umsækj-
enda aðeins 18 klukkustundum eftir
að umsóknarfrestur rann út. Hodac
segir ekkert hæft í fullyrðingum um
pólitísk tengsl sín. „Svar mitt er ein-
falt – þetta er þvættingur. Ég hef
aldrei verið flokksbundinn,“ sagði
hann í samtali við CNN í gær. „Stað-
an er skýr – ég er ekki tékkneskur
ríkisborgari svo ég gæti ekki einu
sinni gengið í stjórnmálaflokk þótt
ég kærði mig um það,“ sagði Hodac.
Hann greip til þess ráðs að segja
30 af fréttamönnunum upp starfi, en
þeir brugðust við með því að lýsa yf-
ir verkfalli, sem gerir það að verkum
að ólöglegt er að reka þá. Þá óskaði
hann eftir því að lögreglan rýmdi
fréttastofuna, en lögreglumenn og
dómarar hafa ekki fengist til þess að
grípa inn í deiluna. Tilraun Hodac til
að afla sér samúðar meðal áhorf-
enda bar ekki heldur árangur, en
hann rauf um tíma útsendingu sjón-
varpsstöðvarinnar um jólin og birti
svohljóðandi áskorun á skjánum:
„Sjónvarpsstjórinn skorar á stofn-
anir lýðveldisins að aðstoða við að
hefja löglegar sjónvarpsútsendingar
á ný með því að beita öllum ráðum til
þess að stöðva hinar ólöglegu að-
gerðir.“ Fréttamennirnir hafa aftur
á móti náð eyrum almennings, sem
óttast að meint pólitísk skipun yf-
irmanns áhrifamesta fjölmiðils
landsins sé liður í baráttunni fyrir
kosningarnar á næsta ári.
Vonir bundnar við að
ný lög lægi öldurnar
Samningaviðræður stjórnvalda og
fréttamannanna hafa ekki skilað
neinum árangri og málið virðist í
sjálfheldu. Forsætisráðherrann Mil-
os Zemann vísar því alfarið á bug að
eitthvað sé athugavert við ráðningu
Hodacs og hann hefur fordæmt mót-
mæli fréttamannanna. Vaclav Klaus
lagði til þá málamiðlun að bæði Hod-
ac og leiðtogar mótmælendanna
vikju, en fréttamennirnir höfnuðu
því og ljá ekki máls á öðru en að
Hodac fái að fjúka og allir frétta-
menn haldi störfum sínum.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að
leggja fram frumvarp um breytingu
á lögum um skipun sjónvarpsráðsins
og vonir eru bundnar við að það lægi
öldurnar. Þingið hefur hingað til
kosið fulltrúa í sjónvarpsráðið, en
samkvæmt tillögum ríkisstjórnar-
innar yrði ráðið gert óháð. Frum-
varpið verður tekið til afgreiðslu í
neðri deild tékkneska þingsins í dag.
Fréttamennirnir njóta stuðnings
Vaclavs Havels, forseta landsins,
sem hefur lýst því yfir að tjáning-
arfrelsið í landinu sé í hættu ef Ho-
dac haldi starfi sínu. Havel er póli-
tískur andstæðingur Vaclavs Klaus
og er talinn vilja forða því að hann
verði eftirmaður sinn á forsetastóli
eftir kosningar á næsta ári. Hann
hefur líkt mótmælunum við andstöð-
una við valdatöku kommúnista árið
1948 og lýsir ástandinu sem „gríð-
arlega hættulegu“. Havel ætlaði að
fara í frí til Kanaríeyja í gær, en
frestaði förinni vegna málsins.
Hefur ekki áhrif á umsókn
Tékka um aðild að ESB
Alþjóðasamband blaðamanna,
sem hefur aðsetur í Brussel, styður
aðgerðirnar í Prag og hefur skorað á
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins að rannsaka málið, sem
sambandið segir prófstein á frelsi
fjölmiðla í Tékklandi. Fram-
kvæmdastjórnin hefur heitið því að
taka málið til skoðunar, en í yfirlýs-
ingu sem hún sendi frá sér í gær
segir að ekki sé ástæða til að óttast
um framtíð lýðræðis í Tékklandi og
málið muni ekki hafa áhrif á umsókn
Tékka um aðild að ESB. „Við höfum
trú á því að hin lýðræðislega stjórn í
Tékklandi, sem hefur áður sýnt
styrk sinn, muni finna leiðir til þess
að leysa þetta mál,“ sagði Jean-
Christophe Filori, talsmaður fram-
kvæmdastjórnarinnar í stækkunar-
málum, á fréttamannafundi í gær.
Mótmælin í Tékklandi gætu aftur
á móti verið áhyggjuefni fyrir
stjórnvöld í nágrannaríkjum sem
áður voru undir stjórn kommúnista,
til dæmis í Póllandi og Ungverja-
landi þar sem ríkisfjölmiðlarnir eru
víða álitnir eitt mikilvægasta valda-
tækið.
Deilt um sjónvarpsstjóra tékkneska ríkissjónvarpsins
AP
Eva Souhradova, starfsmaður á fréttastofu tékkneska ríkissjónvarpsins, burstar tennurnar á fréttastofunni í
gær, á meðan hún horfir á útsendingu félaga sinna.
Mestu mótmælin frá
„flauelsbyltingunni“
Ráðning sjónvarps-
stjóra tékkneska rík-
issjónvarpsins hefur
valdið mestu stjórn-
málakreppunni í Tékk-
landi frá því að lýðræð-
isleg stjórn tók við
völdum í landinu fyrir
rúmum áratug.
Jiri Hodac
Prag. AFP, AP, Reuters.