Morgunblaðið - 05.01.2001, Síða 38

Morgunblaðið - 05.01.2001, Síða 38
MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í upphafi nýs árs, hvað þá nýrrar aldar, sýnist við hæfi að auglýsa eftir glöggum, réttsýnum og nútímalega þenkjandi stjórnmálamanni til að taka að sér að gerast málsvari fyrir stóran hóp Íslendinga. Um er að ræða hlutverk tals- manns skattgreiðenda á Íslandi, sem enga eiga sér fulltrúa og taka nú afleiðingum þess ráðslags. Beiðnin er fram borin á grundvelli þeirrar vissu að óraunhæft og til- gangslaust sé í senn að óska eftir því að heil stjórnmálasamtök gangist undir það hlutverk að ger- ast málsvari þeirra, sem greiða skatta og fylgjast í þögulli for- undran og orðlausri spurn með því hvernig fjár- munum þeirra er varið. Gefi fleiri en einn stjórn- málamaður sig fram í þessu við- fangi verður þeim hinum sömu tekið fagnandi. Vörnum fyrir skattborgarana verður enda ekki haldið uppi nema að frumstæð flokkshyggja og hagsmunavarsla fyrir slík fyrirtæki víki fyrir hags- munum almennings og rétt- mætum kröfum hans á grundvelli þeirra fjármuna, sem af honum eru teknir til almenningsþarfa. Og það eru raunar hinar sam- eiginlegu þarfir þjóðarinnar, sem eiga að vera mælistika þess stjórn- málamanns, sem tekur að sér hlut- verk formælanda skattgreiðenda á Íslandi. Þeim hinum sama er ætlað að bregðast við þegar stjórnmála- menn ákveða fjárútlát, sem með engu móti tengjast þörfum þeirra, er leggja peningana fram. Á árinu, sem var að líða, urðu skattborgarar þessa lands vitni að fjárútlátum, sem nægja ættu til að sannfæra þá um nauðsyn þess að þeir eignist talsmann á opinberum vettvangi. Þúsundum milljóna króna var varið til hátíðarhalda, menningarkynninga og skraut- sýninga, sem á engan hátt tengd- ust almannaþörfum, afkomu, heill eða hamingju þjóðarinnar. Flestir áttu viðburðir þessir sameiginlegt að tengjast grátbros- legri þjóðrembu á einn veg eða annan. Margir þeirra einkenndust af fíflalátum í útlöndum, sem kurt- eist fólk hló þó ekki að opinber- lega. Bjálfaleg sjálfsupphafning setti yfirleitt svip sinn á sam- kundur þessar og tók þá flest sæmilega upp alið fólk þann kost að líta undan í þeirri von að þess- um ósköpum tæki brátt að linna. Átti það ekki síst við um þá, sem einhver kynni höfðu haft af menn- ingu og höfðu fram að þessu ekki talið það fyrirbrigði til ofnæmis- vaka. Litla skemmtan er af því að hafa að rifja „viðburði“ þessa upp enda má þegar greina vísi að „þjóðar- sátt“ um að heppilegast sé að gleyma þeim sem fyrst. Það sjón- armið má að sönnu teljast skiljan- legt en hitt er mikilvægt að þegar verði unnið að því tryggja að við- líka hörmungar ríði ekki yfir á ný. Einhverjum gæti þótt hag- kvæmt að geta gert greinarmun á stjórnmálaflokkum og -mönnum í þessu viðfangi. Við, sem tilheyrum því ágæta Reykjavíkur-íhaldi, tók- um út stjórnmálaþroska okkar í þeirri vissu að vinstrimönnum væri ekki treystandi á vettvangi efnahags- og fjármála. Hamslaus útþensla ríkisútgjalda, oft í nafni „menningar“ og skattahækkanir forsjárhyggjunnar væru þau úr- ræði ein, sem þessum flokki manna væru töm. Undir þeirra stjórn soguðu bæði ríki og sveit- arfélög til sín stöðugt meiri fjár- muni til þess eins að fara illa með þá. Þessi vísindi verða almennt ekki dregin í efa. En þegar horft er yfir sviðið, eins og skáldin segja, og forgangs- röðun núverandi valdhafa er íhug- uð, stöndum við, sem meðtekið höfum þessi fræði, frammi fyrir eftirfarandi spurningu: Leyfir samviskan andmæli við þeirri staðhæfingu að sífellt erf- iðara verði að greina mun á flokk- um og fyrirmönnum í þessu tilliti? Er óviðurkvæmilegt að skatt- borgarar þessa lands hafi skoðanir á því hvernig fjármunum þeirra er varið? Verður jafnað við dónaskap, virðingarleysi eða mannhatur að almenningur í þessu landi leyfi sér að andmæla því að peningum al- þýðu sé varið til fráleitra verkefna, sem á engan hátt tengjast afkomu, heill og hamingju þjóðarinnar; verkefna, sem aðeins með orð- hengilshætti og hugvitssamlegum útúrsnúningum verða tengd við al- mannahagsmuni? Er ekki rétt munað, að fyrir skemmstu fóru um miklir fulltrúar mannsandans og spurðu hvert vera ætti hlutverk ríkisvaldsins? Hvernig má það teljast verkefni ríkisvaldsins og þar með skatt- borgaranna að efna til svonefndra „menningar – og landkynninga“ á meðal útlendra manna? Blasir ekki við að slíkar æfingar, hafi þær yfir höfuð nokkurt gildi, eiga frem- ur heima hjá einkaframtakinu? Felur það fyrirkomulag, sem náði áður óþekktum hæðum á nýliðnu ári, ekki í sér „ríkisvæðingu“ menningar, lands og þjóðar? Og með leyfi; er það birtingar- form hroka og mannfyrirlitningar að þeir, sem peningana greiða, hafi um það eitthvað að segja að hafður sé í frammi fíflagangur í útlönd- um, ekki einvörðungu á þeirra kostnað heldur og í þeirra nafni og þjóðarinnar allrar? Ættu skattborgarar þessa lands sér talsmann/talsmenn má ætla að skipti skoðana hefðu skapast um þau fjárútlát, sem fram fóru á síð- asta ári og gengu fram af flestu sæmilega hugsandi fólki. Ein- hverjir hefðu að öllu óbreyttu hugsanlega horft til stjórnarnand- stöðunnar en kátlegt framlag hennar til nefndrar umræðu fólst einkum í því að þrýsta á ríkis- stjórn um kaup á eftirlíkingu af tréskipi einu fyrir 90 milljónir króna. Ef til vill er von þeirra, sem telja umbætur nauðsynlegar, fólgin í að gæsla hagsmuna skattborgara verði hafin yfir hið pólitíska svið. Kemur þá tvennt til álita; að mynduð verði samtök skattgreið- enda og/eða að komið verði á fót embætti umboðsmanns skattborg- ara. Að því verður hugað næsta föstudag. Talsmað- ur óskast Talsmanni skattgreiðenda er ætlað að bregðast við þegar stjórnmálamenn taka ákvarðanir um fjárútlát sem með engu móti tengjast þörfum þeirra er leggja peningana fram. VIÐHORF Eftir Ásgeir Sverrisson ✝ Erlendur Eyj-ólfsson fæddist á Búastöðum í Vest- mannaeyjum 23. nóvember 1919. Hann andaðist á gjörgæsludeild hjartadeildar Lands- spítalans í Fossvogi aðfaranótt 28. des- ember síðastliðinn. Erlendur var sonur hjónanna Margrétar Runólfsdóttur, f. 6.6. 1896, d. 24.7. 1981, og Eyjólfs Gísla- sonar, skipstjóra frá Búastöðum, síðar Bessastöðum í Vestmannaeyjum, f. 22.5. 1897, d. 7.6. 1995. Þau skildu. Sex mánaða gamall fór Erlendur í fóstur til hjónanna Þórarins Guðmundsson- ar skipstjóra og konu hans Jónas- ínu Runólfsdóttur sem var móður- systir hans. Þau bjuggu á Jaðri við Vestmannabraut og dvaldi Erlend- ur þar til fullorðinsára og var allt- af kenndur við húsið Jaðar sem Elli á Jaðri. Húsið stendur enn við jaðar hraunsins sem rann í jarð- eldunum 1973. Það var sérstök til- viljun að Jaðar, sem var fullbyggt 1908, skyldi vera skírt því tákn- ræna nafni sem það hefur í dag eft- ir eldgosið 1973. Í kjallaranum á Jaðri var fyrsta vélsmiðjan í Vest- mannaeyjum, sem völundurinn Matthías Finnbogason stofnsetti. Síðari maður Margrétar Run- ólfsdóttur var Dagbjartur Gísla- son. Þau skildu. Bræður Erlendar sammæðra, Dagbjartssynir, voru: Runólfur (Dúddi) múrarameistari, f. 21.4. 1923, búsettur í Vest- mannaeyjum; Jónas Þórir hljóm- listarmaður, f. 20.8. 1926, alinn upp á Jaðri frá 7 ára aldri; Krist- inn, verslunarmaður, f. 13.1. 1930, d. 26.07. 1979. Síðari kona Eyjólfs Gíslasonar var Guðrún Brandsdóttir, d. 16.12. 1981. Bræður Erlendar, samfeðra, eru synir Eyjólfs og Guðrúnar: Gísli stýrimaður, síðar flokksstjóri í Straumsvík, f. 24.9. 1929, búsett- Sigurðar Sigurðssonar frá Hæli hinn 10. febrúar 1945 og varð meistari í greininni 23. apríl 1952. Árið 1959 stofnaði Erlendur ásamt fimm starfsfélögum sínum í Magna, vélsmiðjuna Völund, sem átti eftir að vaxa og verða ásamt Magna annað stórfyrirtækið í Vestmannaeyjum í vélsmíði og við- gerðum á vélum og tækjum í vél- bátaflota og fiskiðjuverum Eyjanna. Einnig rak fyrirtækið verslun með alls konar vörur og tæki fyrir vélar og til járnsmíða. Árið 1975 varð Völundur ásamt vélsmiðjunni Magna meðstofnandi og einn af stærstu eigendum í Skipalyftu Vestmannaeyja. Erlendur var viðurkenndur járnsmiður og vann við iðn sína í Völundi til ársins 1975, er þau hjónin fluttu til Reykjavíkur. Þá hóf Erlendur störf við járnsmíðar í fyrirtækinu Smíðajárni hjá Guð- mundi Arasyni, og vann þar til árs- ins 1994, er hann hætti störfum 75 ára að aldri. Erlendur Eyjólfsson var félags- lyndur og hafði sérstakt yndi af hljómlist, enda músíkalskur og spilaði á trompet og fleiri hljóð- færi. Strax á unga aldri varð hann félagi í Lúðrasveit Vestmanna- eyja, sem var stofnuð 22. mars 1939. Í lúðrasveitinni eignaðist han góða vini, hér má nefna Odd- geir heitinn Kristjánsson á Heið- arbrún, tónskáld og stjórnanda sveitarinnar, Jóhann Gíslason, Uppsölum, Karl Guðjónsson í Breiðholti, Hreggvið Jónsson frá Hlíð og Gísla Bryngeirsson, Búa- stöðum, en þeir voru systkinasyn- ir. Erlendur var formaður Lúðra- sveitar Vestmannaeyja 1968–1975. Hann var árið 1967 einn af stofn- endum Kiwanisklúbbsins Helga- fells í Eyjum og starfaði alla tíð af lífi og sál í Kiwanishreyfingunni. Árið 1972 varð hann forseti klúbbsins og fór þá m.a. til Mílanó á alheimsþing Kiwanisfélaga. Eft- ir að Erlendur flutti til Reykjavík- ur var hann til dánardægurs félagi í Kiwanisklúbbnum Heklu og lagði sig þar fram eins og áður. Útför Erlends Eyjólfssonar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í kirkjugarðinum í Hafnarfirði. ur í Kópavogi, Guðjón Ármann, skólameist- ari Stýrimannaskól- ans í Reykjavík, f. 10.1. 1935. Sigurlín var dóttir Eyjólfs og Guðrúnar, dó korna- barn, f. 12.7. 1927, d. 20.7. 1927. Erlendur kvæntist Helgu Aaberg, f. 10.10. 1925, hinn 14. júlí 1946. Helga, sem lifir mann sinn, er dóttir hjónanna Nönnu Aaberg, á sín- um tíma saumakonu við Þjóðleikhúsið, og Henrys Ágústs Aabergs, rafvirkjameist- ara í Reykjavík. Erlendur og Helga reistu sér hús á Brimhólabraut 7 í Vest- mannaeyjum og bjuggu þar fram að eldgosinu 1973. Þau fluttust aft- ur til Eyja árið 1974 og bjuggu þar rúmlega eitt ár, er þau fluttu að Álftamýri 54 í Reykjavík, þar sem þau hafa búið síðan. Börn þeirra eru: 1) Henry Ágúst bifreiðastjóri, f. 15.11. 1946, búsettur í Vestmanna- eyjum. Hann er kvæntur Þóru Sig- ríði Sveinsdóttur og eiga þau þrjú börn: Svein, f. 25.2. 1968 búsettur í Reykjavík. Hann á einn son og fósturson; Helgu Henriettu, f. 7.10. 1970, sem býr í Vestmannaeyjum og á tvær dætur; Arnþór, f. 10.5. 1976, ókvæntur og býr í Vest- mannaeyjum. 2). Jónasína Þóra, f. 14.12. 1947, d. 25.1. 1948. 3) Jón- asína Þóra f. 13.6. 1950, gift Eiríki Þorleifssyni skipstjóra og fyrrv. útgerðarmanni. Þau eru búsett í Hafnarfirði og eiga einn son, Er- lend, f. 4.2. 1971, sem á þrjú börn. Æsku- og unglingsár Erlendar voru einir mestu uppgangstímar í sögu Vestmannaeyja og tók hann frá unga aldri þátt í umsvifamiklu og fjörlegu athafnalífi sem þá var í Eyjum. Hann hóf ungur störf í Vél- smiðjunni Magna og lagði fyrir sig eldsmíði; Erlendur lauk sveins- prófi í þeirri iðn undir handleiðslu Þegar litið er yfir lífshlaup Er- lends Eyjólfssonar sést að þar fór maður sem hafði átt farsælt líf, komið mörgu í verk og gat litið með ánægju yfir liðna ævi í faðmi fjölskyldu sem stækkaði eftir því sem árin liðu. Við Erlendur vorum samfeðra, en ég kynntist honum fyrst er ég var kominn á fullorðinsár. Hann var Eyjólfi föður okkar sérstaklega kær og mér er sem ungum dreng minnisstætt hvað hann faðmaði Ella að sér, þegar þeir hittust á mannamótum eins og á Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Helga og Elli bjuggu sér ein- staklega hlýlegt og notalegt heim- ili. Hann var bókamaður og átti safn góðra bóka, prýðilegur teikn- ari og fékkst við að mála. Þangað buðu þau hjónin fjölskyldu sinni og nánum vinum; síðastliðin ár oftast á afmælisdegi Ella, 23. nóvember. Þar var þá gott að vera, þau hjón bæði sérstaklega gestrisin og Elli naut þess að vera með sínu fólki eins og hann sagði svo gjarnan. Er- lendur Eyjólfsson var fíngerður maður, fríður sýnum og hélt sér vel. Það var ekki að sjá að þar færi maður sem hafði alla ævi starfað við svo erfitt og krefjandi starf sem eldsmíði. Áratuga staða við steðj- ann og rjúkandi aflinn hafði þó reynt á lungu og hjarta. Sjúkdóms- legan var því stutt og kallið kom skyndilega. Við Anika og börn okkar þökkum Ella samfylgdina og vottum Helgu og fjölskyldu þeirra innilega samúð vegna andláts hans. Blessuð sé minning Erlends Eyjólfssonar. Hann hvíli í Guðs friði. Guðjón Ármann Eyjólfsson. Elskulegur bróðir minn Erlend- ur er látinn, almættið kallaði hann til sín aðfaranótt 28. desember síð- astliðinn, þar sem hann lá sjúkur á sjúkrahúsi frá kvöldi 23. desember. Erlendur fæddist 23. nóvember 1919 á Búastöðum í Vestmanna- eyjum, Erlendur Hvannberg Eyj- ólfsson hét hann fullu nafni, var sonur Eyjólfs Gíslasonar skipstjóra og útvegsbónda frá Búastöðum, síðan á Bessastöðum í Vestmanna- eyjum. Móðir Erlendar var Margr- ét Runólfsdóttir fædd í Ranakoti á Stokkseyri, ólst upp í Hausthúsum sem foreldrar hennar byggðu 1896. Fór hún til Vestmannaeyja sem vinnukona hjá Jóel Eyjólfssyni og fjölskyldu hans á Sælundi 1914, en Jóel var föðurbróðir Eyjólfs. Vor- um við Erlendur sammæðra ásamt tveim bræðrum öðrum, Jónasi Þóri og Kristni Helga sem lést 49 ára. Bræður Erlendar samfeðra eru Guðjón Ármann, skólastjóri Stýri- mannaskólans í Reykjavík, og Gísli, fyrrverandi skipstjóri, síðan starfs- maður í Álverinu í Straumsvík til starfsloka. Foreldrar Erlendar giftust 26. desember 1919 á skírn- ardegi hans, en fljótlega slitnaði það samband. Flutti Margrét þá til systur sinnar, Jónasínu Þóru Run- ólfsdóttur og hennar eðalmanns Þórarins Guðmundssonar, fengsæls skipstjóra frá Mandal í Vestmanna- eyjum. Tóku þau hjón síðan Erlend í fóstur, ólst hann upp hjá þeim við góðan hag og gott atlæti, sem þeirra eigin sonur á Jaðri, Vest- mannabraut 6, en það hús keyptu þau hjón 1918, stækkuðu það og breyttu. Bjuggu áður í Brautar- holti. Hamingjan fylgdi Ella mínum þegar hann kynntist sinni elsku- legu konu, Helgu Åberg, sem var þá að nema hjúkrun og starfaði um tíma við Sjúkrahús Vestmannaeyja. Foreldrar Helgu voru Henry Ágúst Åberg, rafvirkjameistari í Reykja- vík, og kona hans Nanna Åberg, bjuggu þau lengst af í húsi sínu við Óðinsgötu í Reykjavík. Helga og Erlendur giftust 14. júlí 1946 og eignuðust þau þrjú börn, eitt lést í frumbernsku, en hin eru Henry Ágúst, f. 15.11. 1946, kona hans er Þóra Sigríður Sveins- dóttir og eiga þau þrjú börn, Svein, Helgu og Arnþór, og fimm barna- börn og Jónasína Þóra, f. 13.6. 1950, hennar maður er Eiríkur Þorleifsson, skipstjóri og útgerð- armaður til langs tíma, eiga þau einn son, Erlend að nafni, og á hann þrjú börn. Strax í upphafi byrjuðu þau Helga og Erlendur að byggja sér heimili. Voru fyrst á Jaðri hjá fósturforeldrum hans meðan þau byggðu sér hús á Brim- hólabraut 7 í Vestmannaeyjum og bjuggu þar fram að gosi 1973. Fluttu þá til Reykjavíkur og voru þar gosárið, fóru svo heim aftur til skamms tíma, en skiptu svo á húsi sínu og góðri íbúð í Álftamýri 54 hér í borg og hafa búið þar síðan og unað sér vel. En nú er Elli minn horfinn og Helga mín ein eftir. Elli minn var einstakur maður, snill- ingur í höndunum, frábær teiknari og málaði myndir. Erlendur hóf nám í Vélsmiðjunni Magna í Vest- mannaeyjum í eldsmíði undir hand- leiðslu Sigurðar Hreinssonar á Hæli í Vestmanneyjum. Náði hann fljótt góðum tökum á faginu og þótti með snjallari mönnum í þess- ari grein, einnig smíðaði hann mik- ið úr kopar, margt kleinujárnið og steðjalíkön ásamt ótal hlutum öðr- um. Erlendur byggði upp stórt fyr- irtæki í Eyjum ásamt nokkrum félögum sínum í járniðnaði, það var Vélsmiðjan Völundur. Byggðu þeir það upp af mikilli elju og afneitun eigin þarfa, þá var ekki eins auð- velt að fá fjármagn og virðist í dag. ERLENDUR EYJÓLFSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.