Morgunblaðið - 05.01.2001, Page 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 51
FERÐAFÉLAG Íslands efnir blys-
farar og fjölskyldugöngu á þrett-
ándanum, 6. janúar. Lagt verður af
stað í gönguna frá Perlunni í Reykja-
vík kl. 17 og rétt að vekja athygli á
breyttri tímasetningu frá útgefinni
áætlun.
Gengið verður um Öskjuhlíð og að
þrettándabrennu Vals. Ekkert þátt-
tökugjald er í göngunni en blys eru
seld á 300 krónur. Allir eru velkomn-
ir og hægt verður að nálgast nýja
ferðaáætlun við upphaf göngunnar.
Sunnudaginn 7. janúar verður svo
fyrsta lengri gönguferð ársins.
Gengið verður frá Stardalshnjúkum
að Tröllafossi í Mosfellssveit en foss-
inn er sérlega fallegur í klakabönd-
um. Fararstjóri verður Eiríkur Þor-
móðsson og þátttökugjald er þúsund
krónur. Brottför er frá BSÍ kl. 11 og
komið við í Mörkinni 6.
Blysför og
fjölskyldu-
ganga
með FÍ
ÁRLEG þrettándabrenna verður
laugardaginn 6. desember kl. 20.
Lagt verður af stað í blysför frá
miðbæ Mosfellsbæjar og gengið
fylktu liði að brennunni. Skóla-
hljómsveit Mosfellsbæjar undir
stjórn Birgis Sveinssonar verður í
broddi fylkingar og stjórnar Mos-
fellskórinn fjöldasöng í göngunni.
Álfakóngur og álfadrottning
verða á staðnum og búast má við
að Grýla sjálf og Leppalúði ásamt
öllu þeirra hyski láti sjá sig líka.
Björgunarsveitin Kyndill mun
standa fyrir glæsilegri flugelda-
sýningu í lok brennunnar, sem
verður um kl. 21.
Létt grín og glens
í Bæjarleikhúsinu
Þá mun Leikfélag Mosfellssveit-
ar standa fyrir Þrettándaskemmt-
un í Bæjarleikhúsinu kl. 22 þar
sem boðið verður upp á fjölbreytta
leik og söngdagskrá. Frítt inn.
Leikfélagsdansleikur
í Hlégarði
Þrettándagleðinni í Mosfellsbæ
lýkur með hinu árlega leikfélags-
þrettándaballi í Hlégarði, þar sem
hljómsveitin Sixties mun halda
uppi fjörinu, aðgangseyrir er 1.500
krónur.
Jólin verða
kvödd í
Mosfellsbæ
á morgun
FYRSTA ferð Jeppadeildar Útivist-
ar á árinu er þrettándaferð í Bása 6.
– 7. janúar þar sem haldin verður ár-
leg þrettándagleði í þessu sæluríki
vetrar og fjalla. Brottför er frá Hlíð-
arenda á Hvolsvelli kl.10 á laugar-
dagsmorguninn, og komið inn eftir
upp úr hádegi.
Á dagskrá í Básum verða skipu-
lagðar gönguferðir, sameiginleg
kvöldmáltíð, blysför og kvöldvaka.
Skráning og farmiðar eru á skrif-
stofu Útivistar að Hallveigarstíg 1.
Fyrsta dagsferð Útivistar á árinu
er nýársferð í Krýsuvíkurkirkju og
Herdísarvík sunnudaginn 7. janúar
og er brottför kl.10 frá BSÍ.
Þrettándaferð
í Bása
Í LJÓS hefur komið að villur eru í
sorphirðudagatali Gámaþjónustunn-
ar sem dreift hefur verið á vegum
Hafnarfjarðarbæjar.
Dagana 8.–9. maí á litur að vera
ljósblár (hreinsun í Norðurbæ) og
gulur 10.–11. maí (hreinsun á Holti,
Börðum og Byggðum).
Dagarnir 20.–21. ágúst eiga að
vera merktir með ljósbláu (hreinsun
í Norðurbæ), 21.–22. ágúst með gulu
(hreinsun á Holti, Börðum og
Byggðum) og 23.–24. ágúst með
dökkbláu (hreinsun í Hvömmum,
Kinnum og miðbæ).
Villur í sorp-
hirðudagatali
HINN árlegi þrettaándavarðeldur
Skátafélagsins Vífils í Garðabæ
verður haldinn við skátaskálann Víf-
ilsbúð, sunnan Heiðmerkur laugar-
daginn 6. janúar og hefst hann kl.
18.
Á dagskrá verður skátasöngur,
flugeldasýning Hjálparsveitar skáta
í Garðabæ, kakó og meðlæti. Skátar,
foreldrar og aðrir velunnarar skáta-
starfs eru hjartanlega velkomnir.
Boðið verður upp á rútuferðir frá
skátaheimilinu og Garðatorgi kl.
17.30. Þar sem búast má við því að
vegaslóðinn verði ófær öðrum en vel
búnum jeppum eru gestir beðnir um
að koma vel búnir til fótanna.
Þrettánda-
varðeldur
Vífils í
Garðabæ
JÓLIN verða kvödd með dansi og
söng á Þrettándahátíð á Ásvöllum,
Hafnarfirði, laugardaginn 6. janúar.
Skemmtidagskrá hefst kl. 18 á plan-
inu framan við íþróttahúsið. Þar
verður sungið og dansað, álfabrenna,
flugeldasýning og óvæntar upp-
ákomur.
Kaffi, kakó, blys og kyndlar verða
til sölu á vægu verði. Ókeypis að-
gangur er á svæðið. Næg bílastæði
eru kringum íþróttahúsið.
Þrettándagleðin er í umsjón
Knattspyrnufélagsins Hauka í sam-
starfi við Æskulýðsráð Hafnarfjarð-
ar og Hestamannafélagið Sörla.
Þrettándagleði á Ásvöllum Í MORGUNBLAÐINU í gær varrangt farið með að Jón Reynir
Magnússon væri forstjóri SR-mjöls í
frétt og grein um horfur í útflutningi
fiskimjöls. Hann lét af því starfi í
haust og tók Þórður Jónsson við af
honum. Jón Reynir er hins vegar
formaður Samtaka íslenskra fiski-
mjölsframleiðenda. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
VÍFILFELL ehf. stóð fyrir jólaleik
undir slagorðinu „Colagjöfin í ár“ í
flestum stærri matvöruverslunum
landsins frá lokum nóvember til
jóla. Hverri kippu af 2 l Coca-Cola
eða Diet Coke flöskum fylgdi lukk-
umiði sem lumaði á vinningi, allt
frá aðgöngumiða fyrir fjölskyld-
una á eitthvert tíu jólaballa sem
haldin voru víðsvegar um land á
milli jóla og nýárs til utanlands-
ferða með Icelandair. Allir miðar
voru því vinningsmiðar. Hátt í
3.000 manns hafa þegar sótt vinn-
inga sína og svipaður fjöldi mætti
síðan á fyrrnefnd jólaböll í sínu
fínasta pússi. Aðalvinningurinn,
ferð fyrir fjóra til Orlando með
Flugleiðum ásamt aðgöngumiðum
í Disney World, kom í hlut Jónasar
Elíassonar og Bjarkar Ingadóttur.
Á meðfylgjandi mynd afhendir
Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Víf-
ilfells, þeim vinninginn.
Afhending aðalvinnings
í jólaleik Coca-Cola 2000