Morgunblaðið - 27.01.2001, Page 1
22. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 27. JANÚAR 2001
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, þurfti í gær að koma
öðrum ráðherra í ríkisstjórn
sinni til varnar vegna Hinduja-
málsins. Spjótin beinast nú að
Keith Vaz, aðstoðarutanríkis-
ráðherra, sem fer með Evrópu-
mál í stjórninni.
Sem kunnugt er neyddist
Peter Mandelson til að segja af
sér embætti Írlandsmálaráð-
herra á miðvikudag, eftir að uppvíst varð að hann
hafði gefið rangar upplýsingar um afskipti sín af
umsókn indverska auðkýfingsins Srichands
Hinduja um breskan ríkisborgararétt. Stjórnar-
andstaðan hefur nú krafist þess að Keith Vaz gefi
skýringar á bréfum sem hann sendi bæði Blair og
Mandelson, þar sem hann hvetur til þess að
Hinduja verði veittur ríkisborgararéttur.
BBC hafði í gær eftir Vaz að hann hefði ekkert á
móti því að bréfin yrðu gerð opinber og að rann-
sókn myndi leiða í ljós að hann hefði ekki gert neitt
rangt. Ráðherrann vildi þó ekki tjá sig frekar um
málið að svo stöddu. Hann hafði áður viðurkennt
að hafa í október 1997 ritað ráðherrunum bréf fyr-
ir hönd Hinduja og bróður hans, en neitaði að
skýra frá efni þeirra.
Blair segir ekkert
athugavert hafa komið fram
Blair hét því á miðvikudag að Hinduja-málið
yrði rannsakað ofan í kjölinn og talsmenn hans
sögðu í gær að embættismenn leituðu gagna um
bréfasendingar Vaz til forsætisráðherrans. Blair
kom Vaz til varnar í gær og kvaðst ekki hafa feng-
ið í hendur nein gögn sem bentu til þess að eitt-
hvað væri athugavert við embættisfærslur hans.
Srichand Hinduja og bróðir hans, Gopichand,
sóttu fyrst um breskan ríkisborgararétt árið 1990,
en var hafnað. Gopichand lagði á ný inn umsókn og
fékk ríkisborgararétt í október 1997. Srichand
sótti aftur um í október 1998, sex dögum eftir að
hann lagði rúma eina milljón punda til Þús-
aldarhvelfingarinnar í Lundúnum og fékk sam-
þykki sex mánuðum síðar. Málefni hvelfingarinn-
ar heyrðu á þessum tíma undir Mandelson.
Fleiri ráðherrar í Bretlandi í vanda vegna Hinduja-málsins
Spjótin beinast að Vaz
Keith Vaz
London. AFP, The Daily Telegraph.
BJÖRGUNARFÓLK leitaði í gær-
kvöld að lífsmarki í rústum húsa sem
hrundu til grunna í gríðarlega öflug-
um jarðskjálfta á Indlandi í gær-
morgun. Í gærkvöld höfðu um 2.000
manns fundist látnir, en talið var að
um 4.000 manns væri saknað og að yf-
ir 3.000 hefðu særst. Jarðskjálftinn
reið yfir á þjóðhátíðardegi Indverja,
en hann er sá öflugasti í landinu í 50
ár, mældist 6,9–7,9 stig á Richter-
kvarða.
Skjálftinn átti upptök sín 20 km
norðaustur af bænum Bhuj í Gujarat-
ríki, suður af landamærunum að Pak-
istan, og varði hann í tvær mínútur.
Yfir 80 eftirskjálftar mældust í kjöl-
farið, sá stærsti 5,6 á Richter-kvarða.
Jarðskjálftinn var svo öflugur að
hann skók háhýsi í höfuðborginni
Nýju-Delhí sem er í yfir 1.000 km
fjarlægð frá upptökunum. Hans varð
einnig vart í Nepal og Bangladesh.
Pakistanar fóru ekki varhluta af
skjálftanum, en þar létust a.m.k. tíu
manns og níutíu særðust.
Ástandið var þó langverst í Guj-
arat-ríki. Í Ahmedabad, höfuðborg
ríkisins, var í gærkvöld staðfest að á
þriðja hundrað manns hefðu látist og
óttast var að mörg hundruð manns
væru fastir í rústum. Talið var að
a.m.k. 500 hús hefðu jafnast við jörðu í
skjálftanum en 4,5 milljónir manna
búa í borginni. Að sögn slökkviliðs-
stjórans, Rajesh Bhat, hafði mann-
fjöldi safnast saman til að biðja um
hjálp við að leita ættingja sinna. „Hér
er neyðarástand. Fólk er sturlað af
ótta. Það hefur flúið heimili sín og leit-
ar nú hælis á götum borgarinnar.“
Tíundi hluti bygginga í Bhuj, sem
er 150.000 manna bær, jafnaðist við
jörðu.
Skjálftinn varpaði hörmulegum
blæ á þjóðhátíðardaginn og kallaði
forsætisráðherra Indlands, Atal Beh-
ari Vajpayee, hann þjóðarharmleik.
Vajpayee hélt neyðarfund með ríkis-
stjórninni í gær og hvatti fólk til að
standa saman í hörmungunum. Ráð-
herrann Pramod Mahajan sagði að
stjórnvöld hefðu sent lækna og aðra
sérfræðinga til Gujarat, auk matvæla,
lyfja og tjalda.
Sólveig Þorvaldsdóttir
send á vettvang af SÞ
Sameinuðu þjóðirnar munu senda
fimm manns á vettvang sem hafa
reynslu af starfi á neyðarsvæðum.
Óskað var aðstoðar Íslendinga og fer
Sólveig Þorvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna, utan á
sunnudag og verður í tvær vikur.
Að sögn Sólveigar sendu Samein-
uðu þjóðirnar út neyðarbeiðni til allra
meðlima UNDAC (United Nations
Assessment and Coordination Team)
en þeir eru sérþjálfaðir til starfa á
hamfarasvæðum. Skrifstofa SÞ í Genf
velur síðan fulltrúa úr hópi þeirra sem
svara og fara fimm manns til Ind-
lands að Sólveigu meðtalinni, allt fólk
sem hefur reynslu af neyðaraðgerð-
um.
Tilgangur fararinnar er, að sögn
Sólveigar, að afla upplýsinga um
ástandið og reyna að skipuleggja og
meta framhaldið auk þess að aðstoða
við að samhæfa aðgerðir.
Gríðarlega öflugur jarðskjálfti reið yfir Indland á þjóðhátíðardegi
Að minnsta kosti tvö
þúsund manns látnir
Sjúkrahús full/20
APMannfjöldi safnast saman fyrir utan eina byggingu af mörgum sem hrundu til grunna í Ahmedabad.
Ahmedabad. AFP, AP.
AUGUSTO Pinochet, fyrrverandi
einræðisherra í Chile, var í gær flutt-
ur á hersjúkrahús í höfuðborginni
Santiago en grunur lék á að hann
hefði fengið vægt heilablóðfall.
Pinochet, sem er 85 ára, hafði að
sögn lækna fundið fyrir „miklum höf-
uðverk, misst meðvitund í skamma
stund og misst nokkurn mátt í vinstri
hluta líkamans“. Í yfirlýsingu frá her-
sjúkrahúsinu kom fram að blóðflæði
til heila hefði stöðvast í stuttan tíma.
Yfirlæknir á sjúkrahúsinu sagði að
Pinochet lægi á gjörgæsludeild en
væri „á batavegi“.
Nokkrum klukkustundum áður en
Pinochet var fluttur á sjúkrahúsið
kom fyrrverandi hershöfðingi, Joaq-
uin Lagos, fram í sjónvarpsviðtali og
fullyrti að einræðisherrann fyrrver-
andi hefði á valdatíma sínum gefið fyr-
irskipanir um pólitísk morð. Í yfir-
heyrslum rannsóknardómarans Juans
Guzmans á þriðjudag hafði Pinochet
þvegið hendur sínar af morðunum og
sagt aðra hershöfðingja ábyrga.
Pinochet
sjúkur
Santiago. AFP, AP.
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er maður með ein-
faldan smekk, ólíkt forvera hans,
Madeleine Albright.
Albright gisti jafnan á fínustu
hótelum á ferðum sínum erlendis
og starfsmenn utanríkisráðuneyt-
isins þurftu iðulega að tryggja að
hún fengi aðeins það besta í mat og
drykk. Á fundi með embættis-
mönnum í ráðuneytinu kvaðst Pow-
ell hins vegar gera sér að góðu að
gista á hótelum Holiday Inn-keðj-
unnar og snæða einfalda hamborg-
ara. „Ég vil ekki láta hafa fyrir
mér,“ sagði Powell í ávarpi sínu og
uppskar lófaklapp. Að sögn AFP-
fréttastofunnar runnu þó tvær
grímur á fréttamennina sem fylgja
utanríkisráðherra á ferðum sínum,
en þeir munu víst ekki hafa verið
sérlega ósáttir við að dvelja á fimm
stjörnu hótelum í fylgd Albright.
Colin Powell
Með einfald-
an smekk
Washington. AFP.
♦ ♦ ♦
Yfirhylming/22