Morgunblaðið - 27.01.2001, Síða 6

Morgunblaðið - 27.01.2001, Síða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ MIKLAR vonir eru bundnar við að Íslandslax fái leyfi til að stunda lax- eldi í Klettsvík í Vestmannaeyjum en starfsemin gæti skapað tugi starfa í bænum, sem orðið hefur fyrir miklum áföllum undanfarið í kjölfar bruna Ís- félagsins og ákvörðunar fyrirtæksins að hætta bolfiskvinnslu. Fjórir af þingmönnum Suðurlands funduðu með bæjarstjórn Vestmannaeyja, Þróunarfélaginu og verkalýðsforyst- unni í gær um atvinnuástandið og framtíðarhorfur. Þá var haldinn op- inn fundur með starfsmönnum Ís- félagsins og fleirum þar sem greint var frá stöðu mála en alls eru um 160 manns á atvinnuleysisskrá í Vest- mannaeyjum og eru um 85 af þeim fyrrum starfsmenn Ísfélagsins. Þeir þingmenn sem mættu út í Eyjar voru Guðni Ágústsson, land- búnaðarráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, Drífa Hjartar- dóttir og Árni Johnsen, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, og Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylking- arinnar. Ísólfur Gylfi Pálmason, þing- maður Framsóknarflokksins, og Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, voru erlendis. Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri sagði að bæjarstjórn hefði samþykkt að veita Íslandslaxi leyfi til þess að hefja tilraunaeldi í Klettsvík en málið er nú til skoðunar í landbúnaðar- og umhverfisráðuneytinu en ekki liggur fyrir hvort framkvæmdin þurfi að fara í umhverfismat. Að sögn Guð- jóns myndi laxeldisstöð skapa um 10 föst störf á ári og allt upp í 30 til 40 störf tímabundið á hverju ári og er þá bara verið að miða við hefðbundið lax- eldi og slátrun. Ef farið yrði út í frek- ari vinnslu myndu enn fleiri föst störf skapast. Guðni sagðist taka vel í hugmyndir um sjókvíaeldi á laxi í Klettsvík. Hann sagðist ætla að skoða málið með sínum starfsmönnum á næstunni og lagði áherslu á að það þyrfti að vinna málið hratt. Guðjón sagði að ef allt gengi að óskum yrði hægt að hefja laxeldi í Klettsvík í vor. Skynsamlegt að sameina Ísfélagið og Vinnslustöðina Guðjón sagðist hafa orðið mjög undrandi þegar forráðamenn Ís- félagsins hefðu tilkynnt að þeir hygð- ust hætta bolfiskvinnslu. Eftir að hafa farið yfir málið betur sagðist hann hins vegar skilja afstöðu þeirra. Ísfélagið hefði lagt áherslu á uppsjáv- arfisk og ætti aðeins um 12% af heild- arkóta Vestmannaeyja í bolfiski. Hann sagði að í ljósi þessa væri of dýrt fyrir fyrirtækið að byggja upp fiskvinnsluhús fyrir bolfiskvinnslu, það þyrfti að eiga meiri bolfiskkvóta til þess að það myndi borga sig. Hann sagði að verktakar í Vestmannaeyj- um myndu vinna hluta af kvóta Ís- félagsins og þannig myndu fleiri störf bætast við hjá þeim. Nokkuð hefur verið rætt um mögu- lega sameiningu Ísfélagsins og Vinnslustöðvarinnar í kjölfar brun- ans og sagði Guðjón að ef það væri einhvern tímann skynsamlegt að sameina fyrirtækin þá væri það núna. Kvótasamsetning fyrirtækjanna væri þannig að ef þau yrðu sameinuð yrði til eitt mjög öflugt sjávarútvegsfyr- irtæki sem hefði sterka stöðu í upp- sjávar- og bolfiski. Guðjón sagðist hins vegar ekki vita hvort formlegar viðræður um sameiningu ættu sér stað. Þorsteinn Sverrisson, fram- kvæmdastjóri Þróunarfélags Vest- mannaeyja, sagði afar brýnt fyrir bæjarfélagið að auka fjölbreytni í at- vinnulífi og einblína ekki um of á sjáv- arútveginn. Hann sagði að vissulega yrði sjávarútvegurinn alltaf mikil- vægasta atvinnugreinin í Eyjum en mörg tækifæri væru á öðrum sviðum eins og t.d. upplýsingatækni og ferða- þjónustu. Hann sagði að það væri verið að vinna að ýmsum málum en ekki væri tímabært að greina frá þeim í einstökum atriðum. Þorsteinn sagði að í bígerð væri að bjóða upp á námskeið í samvinnu við Svæðisvinnumiðlun Suðurlands til þess að þjálfa fólk til nýrra starfa. Hann sagði að t.d. hefði verið rætt við fjármálafyrirtæki um að flytja hluta af bakvinnslu þeirra til Vestmanna- eyja en vinnslan fer m.a. fram í dýru húsnæði í Reykjavík. Á opna fund- inum spurði hann fólkið hvort það væri tilbúið til þess að vinna við annað en fiskvinnslu og var svarið jákvætt. Árni sagði að Eyjamenn væru van- ir að vinna mikið og því væri þessi tími afar erfiður fyrir þá. Hann sagði að fundirnir hefðu verið gagnlegir. Farið hefði verið yfir stöðu mála og það óöryggi sem fylgdi auknu at- vinnuleysi. Hann lagði áherslu á mik- ilvægi þess að fólk horfði á björtu hliðarnar, því hver dagur hefði sín tækifæri. Hann sagði að bærinn hefði ýmis járn í eldinum hvað varðaði at- vinnusköpun og þróun, bæði til skammtíma og langtíma. Ríkisstjórnin ræddi atvinnuástandið í Eyjum Að sögn Árna væri mjög spennandi að fá fiskeldi aftur út í Eyjar en fyrir um tíu árum var stundað eldi þar. Hann sagði að þá hefði verið annar búnaður sem hefði verið vanbúinn og ekki þolað sterka sjávarstraumana. Nú hefði tækninni hins vegar fleygt mikið fram og að í dag sæju menn ekki neitt því til fyrirstöðu að hefja laxeldi á ný. Hann sagði það mjög mikilvægt fyrir Vestmannaeyinga að fá laxeldið, því möguleikar í uppbygg- ingu þess gætu þýtt jafnvirði tveggja til þriggja skuttogara í atvinnusköp- un. Guðni sagði að Eyjamenn hefðu gengið í gegnum mikla erfiðleika undanfarið en að menn þyrftu að horfa björtum augum fram á við. Hann sagði að á fundinum með bæj- arstjórninni og Þróunarfélaginu hefði komið í ljós að miklir möguleikar væru fram undan fyrir atvinnulífið í bænum og sagðist hann binda miklar vonir við að eitthvað af þeim hug- myndum sem viðraðar hefðu verið á fundinum næðu fram að ganga. Hann sagðist hafa rætt atvinnuástandið í Vestmannaeyjum á fundi ríkisstjórn- arinnar í fyrradag og að þar hefðu ráðherrar lýst því yfir að þeir vildu fylgjast vel með þróuninni og taka á málum ef til þess þyrfti að koma. Drífa sagði að það hefði lengi vant- að fjölbreytni í atvinnulífið í Vest- mannaeyjum. Hún sagði að nú stæðu Vestmannaeyingar á krossgötum og að þá væri rétti tíminn til þess að snúa vörn í sókn. Lúðvík tók undir þetta og sagðist sannfærður um að innan skamms yrði búið að skapa um 40 til 50 ný störf í Eyjum. Þingmenn Suðurlands funda með Vestmannaeyingum um atvinnuástandið og framtíðarhorfur Vonir bundn- ar við laxeldi Íslandslax Morgunblaðið/Sigurgeir Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, ræðir málin á opnum fundi í Vestmannaeyjum í gær þar sem fjórir af þingmönnum Suðurlands voru m.a. staddir. EKKI leikur nokkur vafi á því, að nauðsynlegt er að bregðast við þeim breytingum sem orðið hafa í andrúmslofti jarðar, og „við verð- um að ráðast í beinar aðgerðir til þess að forðast víðtækar afleiðing- ar sem kannski ekki við, heldur börn okkar og komandi kynslóðir þurfa að takast á við,“ segir Klaus Töpfer, framkvæmdastjóri Um- hverfisstofnunar Sameinuðu þjóð- anna í samtali við Morgunblaðið. Töpfer ávarpar Umhverfisþing er haldið er á Grand Hótel í Reykjavík og lýkur í dag. Ennfremur undirritaði Töpfer, ásamt fulltrúum stjórnvalda og at- vinnulífs á Íslandi, Alþjóðlega yf- irlýsingu um hreinni framleiðslu. Þá afhenti hann Siv Friðleifs- dóttur umhverfisráðherra nýja skýrslu er unnin var á vegum SÞ um áhrif svonefndra gróðurhúsa- lofttegunda á lofthjúp jarðar. Í skýrslunni kemur m.a. fram, að gróðurhúsaáhrifin séu alvarlegri en áður hafi verið talið. Töpfer var spurður hvort hann teldi vægi þessarar skýrslu að ein- hverju leyti meira en fyrri skýrslna, sem birtar hafi verið um aukin gróðurhúsaáhrif, og kvaðst hann sannfærður um að skýrslan væri ekki aðeins mikilvæg, heldur sýndi hún greinilega fram á að áhrifanna væri þegar tekið að gæta í heiminum. „Ef maður fer til ann- arra staða í heiminum getur maður orðið vitni að öfgakenndu veður- fari, og síðasti áratugur var sá heitasti síðan mælingar hófust í heiminum. Þetta eru ekki niður- stöður stjórnmálamanna, þetta eru niðurstöður alls um þrjú þúsund vísindamanna um allan heim.“ Munurinn á þessum nýju niður- stöðum og niðurstöðum fyrri rann- sókna sé helstur sá, að í fyrri rann- sóknum hafi áhrifin verið vanmetin. „Auðvitað munu ætíð einhverjir vísindamenn taka annan pól í hæðina, þar kemur til hvernig menn taka ákvarðanir og það verð- ur aldrei einróma samþykki um þetta og ætíð aðrar tilgátur mögu- legar. En það er ekki vafi á að breytingar eru þegar orðnar í and- rúmsloftinu.“ Franski eðlisfræðingurinn Pierre-Gilles de Gennes, sem hlaut Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 1991, skrifaði nýlega í grein, að „hagn- aðarvonin [sé] meginástæðan fyrir mengun“. Töpfer sagði aðspurður að hann væri sammála þessu „í markaðs- hagkerfi, já [...] en það er ekki nóg að hafa frjálst markaðshagkerfi, við þurfum að samþætta markaðs- öflin hinni félagslegu umgjörð og þannig höfum við í marga áratugi haft félagslegt markaðskerfi sem dregur úr neikvæðum áhrifum markaðsaflanna á samfélagsað- stæður.“ Það sama þurfi að gera varðandi umhverfið, og setja lög og skýrar reglur um hvað megi gera. „Við erum því ekki aðeins að leita hagnaðar, við höfum dregið skýra umgjörð og ég held að innan þeirrar umgjarðar séu markaðsöfl- in ákaflega vel til þess fallin að ná góðum árangri í efnahagsmálum sem nauðsynlegt er fyrir stækk- andi þjóðir heims.“ Töpfer sagði ennfremur að í ljósi skýrslu SÞ um gróðurhúsaáhrifin væri greinilegt að mun meiri vís- indarannsókna væri þörf til að fylgjast með og skilgreina stöðuna, og ennfremur það hvernig hægt væri að bregðast við á hnattrænum grundvelli. Klaus Töpfer, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna Bregðast þarf við breytingum sem hafa orðið í andrúmsloftinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Klaus Töpfer (fyrir miðju) ásamt Siv Friðleifsdóttur umhverfisráð- herra og Magnúsi Jóhannessyni, ráðuneytisstjóra í umhverfisráðu- neytinu, á Umhverfisþingi sem haldið var í gær. ÁTTA ára drengur féll af hestbaki skammt frá Laugardalshólum, skammt frá Laugarvatni í Árnes- sýslu, laust fyrir kl. 15 í gær. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögregl- unni á Selfossi sat drengurinn hestinn á túni þegar hann datt af baki. Hann flæktist í taumnum og hesturinn dró hann á eftir sér um 100 m upp á veg. Þar hljóp hest- urinn á pípuhlið og féll við en við það losnaði drengurinn úr taumn- um. Þyrla sótti drenginn Lögreglan á Selfossi fékk til- kynningu um slysið kl. 14.47. Lög- reglubíll og sjúkrabifreið héldu þegar á staðinn og læknir var kall- aður út frá Laugarási. Aðstand- andi drengsins varð vitni að óhappinu og hlúði að honum þar til lögregla og sjúkralið komu á slys- stað. Þar var ákveðið að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar sem lenti með piltinn við slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss kl. 16.24. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni voru meiðsl drengsins minni en fyrst var talið. Festist í taumnum og dróst um 100 m Átta ára drengur féll af hestbaki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.