Morgunblaðið - 27.01.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKIPULAGSSTOFNUN
mælir ekki með því að um-
hverfisráðherra staðfesti til-
lögu bæjarstjórnar Kópavogs
að breyttu aðalskipulagi á
svæðinu milli vatns og vegar
við Elliðavatn eins og hún
liggur fyrir og vill t.d að ekki
verði gert ráð fyrir nýrri
byggð á minnst 100 metra
belti meðfram vatninu. Bær-
inn og stofnunin eiga nú í við-
ræðum um breytingar á
skipulagstillögunni, að sögn
Ásdísar Hlakkar Theódórs-
dóttur, aðstoðarskipulags-
stjóra.
„Að mati Skipulagsstofn-
unar vega sjónarmið um
verndun og útivistargildi
svæðisins þyngra heldur en
þörf á að skapa rými fyrir
fleiri íbúðarlóðir á svæðinu
milli vatns og vegar,“ segir
m.a. í niðurstöðum stofnunar-
innar.
Miklar deilur hafa staðið
frá síðasta sumri um áform
bæjaryfirvalda í Kópavogi að
skipuleggja íbúðabyggð á
svæðinu milli vatns og vegar
annars vegar og svokölluðum
F-reit hins vegar en á síðast-
nefnda svæðinu var m.a.
áætlað að reisa allt að sex
hæða fjölbýlishús.
Upphaflega auglýsti bær-
inn sameiginlega breytingar
á aðal- og deiliskipulagi á
svæðinu milli vatns og vegar
og breytingar á deiliskipulagi
á F-reit.
Auk mótmæla íbúa, sem
m.a. mótmæltu áformum um
þéttingu byggðar og niðurrif
hluta húsa á svæðinu og settu
einnig út á hvernig bæjaryf-
irvöld hefðu staðið að kynn-
ingu áformanna, mótmæltu
fjölmörg félagasamtök og
stofnanir, sem láta sig nátt-
úruvernd og útivist varða,
áformunum.
Að loknum athugasemda-
fresti frestaði bæjarstjórn
m.a. ákvörðunum um um-
deildustu framkvæmdir á F-
reit og staðfesti umhverfis-
ráðherra síðan deiliskipulagið
þar með þeim breytingum í
samræmi við tillögur Skipu-
lagsstofnunar.
Hvað varðar svæðið milli
vatns og vegar féll bæjar-
stjórnin frá því að afgreiða
samtímis breytingar á aðal-
skipulagi og deiliskipulagi,
fyrir 32 íbúðir og leikskóla á
37 ha svæði, m.a. vegna úr-
skurðar úrskurðarnefndar
skipulags- og byggingarmála
í sambærilegu máli í Vatns-
leysustrandarhreppi, og sam-
þykkti eingöngu aðalskipu-
lagið en frestaði afgreiðslu
deiliskipulagsins.
Aðalskipulagstillagan var
send skipulagsstofnun sem
þann 19. janúar afgreiddi
málið til umhverfisráðuneyt-
isins og mælir ekki með stað-
festingu.
Sterk rök gegn
frekari byggð
Í niðurstöðum stofnunar-
innar segir að í ljósi fram-
kominna athugasemda, sér-
staklega frá Veiðimála-
stofnun, Fuglaverndarfélagi
Íslands, Reykjavíkurborg og
Náttúruvernd ríkisins, og að
fengnu áliti Náttúrufræði-
stofnunar Íslands sé það nið-
urstaða stofnunarinnar varð-
andi áhrif skipulagstillög-
unnar á náttúrufar, að sterk
rök mæli gegn frekari áform-
um um byggð næst Elliða-
vatni.
„Að mati Skipulagsstofn-
unar vega sjónarmið um
verndun og útivistargildi
svæðisins þyngra heldur en
þörf á að skapa rými fyrir
fleiri íbúðarlóðir á svæðinu
milli vatns og vegar. Skipu-
lagsstofnun tekur einnig und-
ir það sem fram kemur í
minnispunktum Náttúru-
fræðistofnunar frá 8. janúar
sl. um að unnt eigi að vera að
gera lagfæringar á svæðinu
varðandi aðgengi og um-
hverfismál með skipulagsað-
gerðum og framkvæmdum án
tilkomu aukinnar byggðar. Í
ljósi þessa getur Skipulags-
stofnun ekki mælt með stað-
festingu tillögu um breytingu
á Aðalskipulagi Kópavogs
1992-2012 varðandi svæðið
milli vatns og vegar,“ segir í
niðurstöðunum. „Skipulags-
stofnun telur að draga megi
verulega úr hættu á neikvæð-
um áhrifum byggðar á lífríki
svæðisins með því að á
minnst 100 metra belti með-
fram vatninu verði ekki gert
ráð fyrir nýrri byggð, þótt
fest verði í skipulagi sú byggð
sem fyrir er á því svæði. Jafn-
framt beri að falla frá tillögu
um uppfyllingu/bátalægi í
ljósi fyrirsjáanlegra áhrifa á
sérstætt fuglalíf á vatninu,“
segir í niðurstöðunum.
Kynningu og
samráði áfátt
Í umfjöllun stofnunarinnar
segir ennfremur m.a. að svo
virðist sem kynningu og sam-
ráði á vinnslutíma tillögunnar
hafi verið áfátt og ekki verið
haft samráð við fasteignaeig-
endur og lóðarhafa á skipu-
lagssvæðinu. „Það er mat
Skipulagsstofnunar að kynna
hefði átt tillöguna á vinnslu-
stigi fyrir íbúum og fast-
eignaeigendum á svæðinu og
fyrir Náttúruvernd ríkisins
vegna svæðis á náttúruminja-
skrá. Það verður þó að líta
svo á að málið hafi hlotið full-
nægjandi kynningu þar sem
haldinn var opinn kynningar-
fundur í lok athugasemda-
tímabils og málið hlaut víð-
tæka umfjöllun í fjölmiðlum
áður en athugasemdafresti
lauk.“
Ótvíræð hætta
fyrir lífríki
Einnig er vísað til þess
álits Náttúrufræðistofnunar
Íslands að mikið fuglalíf sé
við vatnið á öllum tímum árs
og fyrirhugaðar framkvæmd-
ir á svæðinu hafi í för með sér
ótvíræða hættu fyrir lífríki
svæðisins sem felist í eyði-
leggingu búsvæða, mengun
og truflun. Þá gerir ráðið at-
hugasemdir við nálægð
byggðar við vatnið, áform um
uppfyllingu/bátalægi og notk-
un og staðfestingu fyrirhug-
aðra settjarna. Niðurstaða
Náttúrufræðistofnunar er að
halda skuli nánasta umhverfi
Elliðavatns sem mest
óbyggðu og að þetta óbyggða
svæði skuli að lágmarki vera
100-200 m.
Eftir að þetta álit Náttúru-
fræðistofnunar lá fyrir beindi
Skipulagsstofnun því m.a. til
bæjarins að endurskoða
ákvarðanir um nýja byggð og
uppfyllingu við vatnsbakkann
og að hafa minnst 100 m belti
meðfram vatninu án nýrrar
byggðar þótt sú byggð sem
fyrir er verði fest í skipulagi.
Bærinn taldi ekki tilefni til
breytinga á tillögunni og ósk-
aði eftir að stofnunin af-
greiddi hana til staðfestingar
ráðherra. Með svari bæjarins
fylgdi greinargerð jarðverk-
fræðings og fiskifræðings
sem bregðast við áliti Nátt-
úrufræðistofnunar og sam-
starfsyfirlýsing Reykjavíkur
og Kópavogs um umhverfis-
mál og skipulag í nágrenni
vatnsins. Í niðurstöðum
stofnunarinnar kemur fram
að álit ráðgjafa bæjarins
hnekki ekki því sem fram hafi
komið hjá Náttúrufræðistofn-
un um líkleg skaðleg áhrif á
lífríki vatnsins.
Viðræður milli bæjarins
og stofnunarinnar
Ásdís Hlökk Theódórsdótt-
ir, aðstoðarskipulagsstjóri,
sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að eftir að stofn-
unin hefði ákveðið að mæla
gegn staðfestingu aðalskipu-
lagstillögunnar við ráðherra
væru hafnar viðræður stofn-
unarinnar og bæjarins um
breytingar á tillögunni.
Skipulagsstofnun kemst að niðurstöðu um aðalskipulag milli vatns og vegar á Elliðavatnssvæði
Ekki mælt með stað-
festingu aðalskipulags
Kópavogur
ÞAÐ er bráðnauðsynlegt að
Listaháskóli Íslands komist
sem fyrst undir eitt þak en
kennsla fer núna fram á
þremur mismunandi stöðum
og að öllum líkindum fjórum
með haustinu og jafnvel
fleirum, að sögn Hjálmars
H. Ragnarssonar, rektors
skólans. Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær, til
að kanna hvar málið væri
statt, en eins og komið hefur
fram vann Björn Stefán
Hallsson hjá arkitektastof-
unni O’Donnell, Wicklund,
Pigozzi and Peterson Archi-
techts Incorporated í Chic-
ago skýrslu í ágúst á fyrra
ári um framtíðarhúsnæði
Listaháskóla Íslands.
„Þessi skýrsla var gerð að
beiðni stjórnar Listaháskóla
Íslands og hefur verið til
umfjöllunar þar og jafnframt
verið kynnt viðkomandi
stjórnvöldum, bæði mennta-
málaráðherra og þeim bæj-
arfélögum sem hafa sýnt
áhuga á málinu, þ.e. Hafn-
arfirði og Reykjavík,“ sagði
Hjálmar. „Aðalviðfangsefni
skýrslunnar er úttekt á SS-
húsinu að Laugarnesvegi 91,
með tilliti til þess hvort
starfsemi listaháskólans geti
rýmst þar inni, þannig að vel
fari og samkvæmt markmið-
um skólans. Niðurstaða
hennar er sú, að eins og
starfsemin er hugsuð verði
mjög erfitt, ef ekki ómögu-
legt, að koma þessari starf-
semi fyrir í þessari bygg-
ingu.“
Tveggja ára
aðdragandi
„Það var reyndar fyrst
fyrir tveimur árum, að
stjórn skólans óskaði eftir
við Reykjavíkurborg að hún
kannaði hvort það væri
mögulegt að finna skólanum
stað í miðborginni. Skýrslan
kemur síðan í millitíðinni.
Arkitektastofan, sem vann
hana fyrir stjórn Listahá-
skóla Íslands, hefur unnið
við teikningar á háskóla-
byggingum í Bandaríkjunum
og verið ráðgefandi fyrir
Kennaraháskóla Íslands.
Vegna góðrar reynslu þar
var hún beðin um að gera
hlutlausa úttekt á þessu,
enda er hér um mjög við-
kvæmt mál að ræða og því
nauðsynlegt að fá einhvern
utanaðkomandi til slíks
verks. Og í ljósi niðurstöðu
skýrslunnar og þeirra sjón-
armiða sem þar koma fram,
um að það verði skólanum til
mikils framdráttar og nauð-
synlegt að hann sé í
tengslum við menningar-
stofnanir í landinu og þá
skóla sem tengjast honum,
samþykkti stjórn Listahá-
skólans í lok ársins 2000 að
ítreka það við Reykjavíkur-
borg að fundin yrði stað-
setning fyrir skólann í mið-
borginni eða nálægt henni. Í
þeirri samþykkt voru að
öðru leyti ekki tilgreindir
ákveðnir kostir. Í kjölfarið
hefur Borgarskipulag látið
útfæra hugmyndir um stað-
setningu á Miklatúni, þannig
að það gæti orðið bæði skól-
anum til framdráttar og
byggðinni í kring.“
Að sögn Hjálmars grunaði
stjórnina á sínum tíma að
húsið að Laugarnesvegi 91
myndi e.t.v. ekki henta fyrir
þessa starfsemi og því hafi
verið ákveðið að leita eftir
frekari útfærslu á því. Húsið
væri í eigu ríkisins, hafði
verið ánafnað skólanum fyrir
allmörgum árum en ekki
hafi verið gerð svona úttekt
með tilliti til starfseminnar
fyrr en nú. Það hús sé ekki
fullbyggt. Listaháskólinn
hafi aðstöðu á neðstu hæð
þess, fyrir myndlistarstarf-
semi, en langstærstur hluti
hússins sé bara í fokheldu
ástandi. En það fyrirheit
liggi hins vegar fyrir frá
stjórnvöldum og hafi legið
allt frá því hugmyndir um
skólann komu fram, að húsið
að Laugarnesvegi 91 yrði af-
hent skólanum fullbúið fyrir
starfsemi sína þegar þar að
kæmi.
Starfsemi dreifð
um alla borg
„Núna erum við á þremur
stöðum og verðum væntan-
lega á fjórum stöðum í
haust, og jafnvel víðar. Við
rekum myndlistardeild, sem
spannar bæði myndlist og
hönnun, og leiklistardeild.
Áformin eru þau fyrir haust-
ið að myndlistardeild og
leiklistardeild starfi áfram
en að stofnuð verði sérstök
hönnunardeild á þremur
brautum, þ.e. grafísk hönn-
un, form- og vöruhönnun,
eða öðru nafni iðnhönnun, og
síðan byggingarlist. Og svo
eru uppi áætlanir um stofn-
un tónlistardeildar en það á
eftir að koma í ljós hvort
það næst. Danslist og kvik-
myndalist eru ekki á teikni-
borðinu eins og er en koma
eflaust síðar.
Fyrir utan það að rekstr-
areiningin yrði þægilegri,
teljum við að með því að
komast á einn stað geti skól-
inn skapað sér sérstöðu
meðal listaháskóla, vegna
þess sambýlis sem við hefð-
um þá á milli listgreinanna
og þeim ávinningi sem feng-
ist af sambýlinu en margt af
því frjóasta sem er að gerast
í listsköpuninni nú á tímum
er einmitt vegna sambýlis og
tenginga á milli listgreina og
eins innan sömu listgreina. Í
tónlistinni hafa t.d. lengi
verið múrar á milli klass-
ískrar tónlistar, jazztónlistar
og nútímatónlistar, að eitt-
hvað sé nefnt, en allt þetta
er að breytast og þess vegna
er mjög nauðsynlegt fyrir
okkur, ef við ætlum að halda
velli í alþjóðlegu háskóla-
samfélagi, að við nýtum okk-
ur þá sérstöðu sem við get-
um búið til. Og þess vegna
er þetta mikilvægt, að skól-
inn komist á einn stað, því
hann verður aldrei heill
öðruvísi. Núna erum við í
óða önn að byggja hann upp,
eina deildina af annarri, og
verðum tilbúin þegar þar að
kemur,“ sagði Hjálmar að
lokum.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, um húsnæðismál skólans
Listaháskólinn verð-
ur að fara að komast
undir eitt þak
Reykjavík
Afstöðumynd sem sýnir hugmyndir að staðsetningu Listaháskóla í norðvesturhorni Mikla-
túns. Um er að ræða athugun á fyrirkomulagi skólans og umfangi á tveimur til þremur hæð-
um sem Borgarskipulag hefur unnið í samvinnu við fulltrúa Listaháskólans. Hugmyndir hafa
ekki verið kynntar fyrir nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar. Aðlægar götur eru sýndar
óbreyttar, en ef til framkvæmda kemur yrðu gerðar ráðstafanir til að aðskilja umferð að
Listaháskóla og Kjarvalsstöðum frá nærliggjandi íbúðabyggð.
!
" " "
"
"#
"
!
!
!
"
!
"
"! " "" " " !
"
! "
Tölvuteikning/Onno